Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Side 27

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Side 27
íslenzkum lætur nærri að reikna með, að landbúnaður í Noregi sé um 20 sinnum umfangsmeiri en hér á landi. Þessi samanburður verður þó ekki gerður hér, enda er norsk rannsóknastarfsemi fjölbreyttari en sú íslenzka, þannig að seilast þarf til stofnana utan rannsóknamála hér á landi til að samanburður verði réttur. LOKAORÐ Kynning sú, sem hér hefur verið gerð á langtímaáætlun Norðmanna í landbúnaðarrannsóknum, er ýmsum ann- mörkum haldin. í fyrsta lagi skal bent á þann, að saman fléttast bein þýðing á álitsgerðinni og viðbætur og dæmi um íslenzk rannsóknamál, án þess að ljóst sé í hvert skipti, hvað er þýtt og hvað eru viðbætur. Þetta á ekki að þurfa að valda vandræðum, þar sem álitsgerðin sjálf er aðgengileg hverjum, sem vill kynna sér hana. Þá er ástæða að minna á, að efnið hefur verið stytt mjög og eru þá mörg álitamálin um, hvað velja ber og hverju hafna. Tilgangurinn með að koma þessu á framfæri er sá, að vekja athygli á þeirri gloppu í tilraunamálum okkar, að engin heildaráætlun skuli vera til í tilraunamálum land- búnaðarins á íslandi. Það hefur verið gert með því að benda á, hvernig unnið er að þessum málum í Noregi, en hliðstætt veðurfar og hliðstæð skilyrði eru til að stunda landbúnað víða um Noreg og á íslandi. Það og fjölmargt fleira veldur því, að af Norðmönnum er unnt að taka nokkurt mið í þessum efnum. ÞAKKARORÐ Eg þakka Haraldi Árnasyni, skólastjóra við Bændaskólann á Hólum, fyrir að hafa gefið mér tækifæri til að vinna þetta verk við skólann. 29

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.