Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1973, Blaðsíða 32
heyfeng og leiðrétta túnastærð, og er þetta bæði gert fyrir
landið í heild og einnig fyrir tíu hreppa, sjö á Norðurlandi
og þrjá á Suðurlandi.
Ljóst er, að margir aðrir þættir en kal valda sveiflu í
Uppskeru túnanna og má fyrst og fremst nefna vaxtarkjör
yfir sprettutímann og áburðarnotkun. Hér verður gerð til-
raun til að fjarlægja áhrif þessara þátta á uppskeruna,
þannig, að kalskemmdirnar standi eftir sem aðal áhrifa-
valdur um sveiflu í heyfeng, og að ár, snemma og seint á
árabilinu, verði sem sambærilegust. Búfjáráburður hefur
verið ríkjandi á túnum fram um 1920, og er áætlaður
uppskeruauki fyrir þennan áburð talinn 7,5 hkg/ha af heyi
á ári hverju. Upp úr 1920 kemur svo tilbúinn áburður á
markaðinn og eru áhrif búfjáráburðar á uppskeruna látin
minnka um 0,3 hkg/ha á hverju ári, þannig, að hann verð-
ur án áhrifa árið 1955. Búfjáráburður hefur á seinni árum
verið mikið notaður í flög og einnig mikið á tún, en áhrif
hans eru smávægileg í samanburði við hið mikla magn til-
búins áburðar, sem hefur verið notað á túnin.
Tölur um sölu tilbúins áburðar eru í Hagskýrslum og
Búnaðarriti. Frá þessu áburðarmagni er dregið það áburð-
armagn, sem áætlað er að hafi farið í akurlendi. Allur annar
áburður er talinn hafa farið á tún, og er einungis tekið til-
lit til N-áburðar, þar sem áhrif P- og K-áburðar eru minni
og notkun þeirra fylgir auk þess nokkuð notkun N-áburðar.
Áætlað er, að uppskera aukist að meðaltali um 1,9 hkg/ha
við hver 10 kg af N /ha. Síðan er uppskera hvers árs reiknuð
svo sem borið hefði verið á 100 kg N /ha.
Leiðrétting vegna sumarveðráttu er á þá lund, að reikn-
að er með að uppskera norðanlands aukizt um 4,2 hkg/ha
við hverja °C, sem meðalhiti tímabilsins júní—ágúst vex
og sunnanlands um 4,9 hkg/ha fyrir hverja °C, sem meðal-
hitinn í júní—júlí vex. Var síðan uppskeran hvert ár leiðrétt
til meðalhitans 1931—1960,ogvar Akureyri notuðsemgrund-
völlur fyrir Norðurland og Sámsstaðir fyrir Suðurland. Fyrir
landið í heild var notað meðaltal leiðréttingar fyrir báða
landsfjórðunguna.
34