Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1997, Síða 61

Frjáls verslun - 01.07.1997, Síða 61
Traðarkot er stærsta bílahúsið með 271 stæði. Breytingarnar á bílastæði SPRON hafa mælst vel íyrir. styst frá fyrirtækjunum sem þeir eiga er- indi við." Viðskiptalíf borgarinnar líður víða fyrir að ekki eru næg stöðumælastæði í ná- grenni fyrirtækja. Dæmi um þetta eru of- anverður Skólavörðustígur og Barónsstíg- ur, neðsti hluti Grensásvegar og Ægis- gata/Ránargata. Á þessum stöðum er ein- nig erfitt fyrir íbúana sjálfa að fá stæði á daginn en gjaldskyld stæði gætu verið góð lausn fyrir alla aðila. GÓÐ SAMVINNA Stefán segir að fyrirtæki leiti iðulega samvinnu við Bílastæðasjóð. Gott dæmi eru breytingar á bilastæði SPRON við Skólavörðustíg þar sem settir voru upp í maí nýir mælar sem taka 10, 50 og 100 kr. mynt. Tímagjald hækkaði úr 50 (100 krón- ur en um leið er nú hægt að greiða fyrir frá 6 til 60 mínútur. Breytingin hefur mælst vel fyrir því nú kostar stutt heimsókn í SPRON minna en áður og viðskiptavinir eiga alltaf tiltæka mynt í mælana. Bílastæðasjóður býður fyrirtækjum að kaupa föst stæði í bílahúsunum fyrir starfsfólk sitt fyrir 2.000 - 6.000 kr. á mán- uði Um leið dregur úr þörf fólksins fyrir stæði í námunda eða utan við fyrirtækin Bflastæðasjóður Skrifstofa Skúlatúni 2 Sími: 563 2380 en viðskiptavinir eiga þar þá greiðari að- gang. Nýting bílahúsanna er nokkuð misjöfn. Bergstaðir, Vesturgata 7, Kolaportið og Ráðhúskjallarinn eru með besta nýtingu en Traðarkot og Vitatorg minni. Menn binda vonir við að breytingar við Hverfisgötu eigi eftir að breyta þessu. Bygging nýrra bíla- húsa er ekki á döfinni en komið hefur til tals að nýta þak Faxaskála fyrir gjald- skyld langtímastæði. Rekstra rtekjur Bílastæða- sjóðs voru 274 milljónir á síð- asta ári. Sjóðurinn stendur undir rekstri en ekki frekari fjárfestingum. Síðustu tvö ár hefur tekist að greiða niður skuldir sjóðsins sem voru 810 milljónir árið 1993 en 718 í árs- lok 1996. En bílahúsin eru öll ný og fljótlega má reikna með að sjóðurinn lendi í áframhaldandi skuldasöfnun þegar kemur að viðhaldi þeirra. Gjaldskrá Bílastæðasjóðs er mismun- andi eftir staðsetningu: Gjald allt frá 30 upp í 120 kr. á klukkutíma, algengast þó 50 krónur. Hefur svo verið frá 1988 og breyt- ingar löngu tímabærar, að sögn Stefáns, þar eð verðið er ekki lengur sú stýring á nýtingu sem því er ætlað að vera. Segist Stefán þora að fullyrða að í engri höfuðborg í Evrópu sé gjald fyrir bíla- stæði lægra en hér á landi. Stefán Har- aldsson fram- kvæmdastjóri.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.