Vísir - 15.04.1978, Síða 8
8
Laugardagur 15. april 1978 vism
Framboðsfrestur
til borgarstjórnarkosninga i Reykjavík 28.
mai 1978 rennur út miðvikudaginn 26.
april n.k.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslist-
um þann dag kl. 15.00 til 16.00 og kl. 23.00
til 24.00 i dómhúsi Hæstaréttar við Lindar-
götu.
14. april 1978,
Yfirkjörstjórn Reykjavikur,
Björgvin Sigurðsson
Guðmundur V. Jósefsson,
Ingi R. Helgason.
Skrífstofu minni
hefur verið falið að selja hluta úr jörð við ölfusá meðan
við Selfoss.
Eignarhlutanum fylgir m.a. 30 hektarar ræktað lands,
veiðiréttur i ölfusá, góð 3ja herbergja ibúð, helmings hlut-
deild i rúmum útihúsum.
Makaskipti við ibúð á Reykjavikursvæðinu æskileg.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Lögmannsskrifstofa
Jóns E. Ragnarssonar
hæstaréttarlögmanns,
Túngötu 5, simar 17200 og 17900,
heimasimi 13795.
Byggingafélag verkamanna,
Reykjavík
Til sölu
þriggja herbergja ibúð i 12. byggingar-
flokki við Bólstaðarhlið. Félagsmenn skili
umsóknum sinum til skrifstofu félagsins
að Stórholti 16 fyrir kl. 12 á hádegi mánu-
daginn 24. april n.k.
Félagsstjórnin.
Skrifstofustarf
Skrifstofumaður óskast á skrifstofu Saka-
dóms Reykjavikur. Góð rithönd og vélrit-
unarkunnátta áskilin.Eiginhandarumsókn*
ir sendist skrifstofu Sakadóms
Reykjavikur fyrir 27. april n.k.
Yfirsakadómari
Nauðungoruppboð
annað og siðasta á hluta i Leirubakka 32, talin eign Hauks
M. Haraldssonar fer fram á eigninni sjálfri miövikudag
19. april 1978 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
I------------------------------------
Nauðungaruppboð
annað og siöasta á eigninni Lækjargötu 9, Hafnarfirði,
þingi.eign Erlu Gunnarsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri
þriðjudag 18. aprfl 1978, kl. 2.30. e.h.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði
Fró Grunnskólum Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem
fædd eru á árinu 1972) fer fram i skólum
borgarinnar mánudaginn 17. og þriðju-
daginn 18. april n.k. kl. 15-17 báða dagana.
Á sama tima þriðjudaginn 18. april fer
einnig fram i skólunum innritun þeirra
barna og unglinga sem þurfa að flytjast
milli skóla.
Fræðslustjórinn í Reykjavik.
Ómar Þ. Halldórzzon rœðir við Guðmund
Rúnar Lúðvíksson sem um þessar mundir
gefur út hljómplötu með 270 Selfossbúum!
Fimm milljón
króna hugsión
Um þessar mundir er aö koma á markað
hljómplata með söng og hljóðfæraslætti u.þ.b.
270 Selfossbúa. Lögin á plötunni eru 13 eftir jafn-
marga höfunda og aðilarnir sem flytja þau eru
sömuleiðis 13. Þessir aðilar eru að sjálfsögðu
misfjölmennir, allt frá einum upp í 55 manns.
önnur hliðin inniheldur kórsöng og lúðrablástur/
en á hinni fá popparar staðarins að leika lausum
hala. Platan er því eins konar þverskurður af
tónlistarlífi þessa fjölmennasta hreppsfélags
landsins.
Helgarblaðið veit ekki ti! að slík plata hafi
komið út áður og fékk því útgefandann, Guð-
mund Rúnar Lúðvíksson, til að gefa lesendum
blaösins nánari upplýsingar um þessa sérstæðu
plötu. Guðmundur Rúnar er tuttugu og f jögurra
ára gamall og hefur ekki komið nálægt plötuút-
gáfu fyrr. Hann er framkvæmdastjóri félags-
heimilisins Herðubreiðar á Seyðisfirði og hlaut
menntun sína í Hótel- og veitingaskólanum sem
er eftir því sem hann segir sjálfur eini skólinn á
landinu sem lætur nemendurna éta prófverkefn-
in sín.
En hvað kemur til að fram-
kvæmdastjóri austur á Fjörðum
ræðst i plötuútgáfu með efni frá
Selfossi?
„Hugmyndin er orðin nokkuð
gömul, sex ára eða meira. Ég
hef búið á Selfossi af og til
siðustu árin og fann strax og ég
kom hingað að hér er óhemju-
mikið músíklif. Þá kviknaði sú
hugmynd að sem flestir af þess-
um aðilum kæmu fram á e.k.
byggðarlagsplötu, plötu sem
hefði skemmti- og menningar-
gildi i nútið og auk þess sögulegt
gildi þegar fram liðu stundir.
Ég reikna dæmið þannig að
þessi plata verði talin þeim mun
verðmætari sem lengra liður frá
útkomu hennar, a.m.k. i augum
Selfyssinga. Nú,á siðasta ári
talaði ég um þetta við þessa
aðila sem allir lýstu áhuga á
þátttöku svo það var ekki eftir
neinu að biða.
Þetta eru 13 aðilar sem eiga
lög á plötunni, samtals um 270
manns og liggur i augum uppi
að svona framkvæmd tekst ekki
nema með miklum samvinnu-
vilja allra. Ætli það séu ekki um
10 prósent allra ibúa á Selfossi
sem koma þarna við sögu á einn
eða annan hátt.”
Og efnið?
„Músiklega skiptist það i
tvennt. A annarri hliðinni er
samkór staðarins, karlakór,
kirkjukór, kórar barna- og
gagnfræðaskólans, lúðrasveitin
og hljómsveit tónlistarskólans.
A hinni eru lög eftir popparana
á staðnum, flutt af ólafi
Þórarinssyni, Sveinbirni Odds-
syni, hljómsveitinni Evrópu og
fleirum. Ég tel að mjög vel hafi
tekist til með lagavalið. Það
sýnir mikla breidd i músiklif-
inu.”
En ertu ekkert hræddur um að
þessi breidd komi niður á söl-
unni?
„Alls ekki. Ég tel að þarna sé
komin plata fyrir alla fjölskyld-
una. Og kannski er þessi plata
einmitt merkilegust fyrir það að
á henni er ekkert kynslóðabil.
Þar eru börn og foreldrar,
ömmur og afar og ef til vill
langömmur og langafar — hver
veit? Já, þú talar um sölumögu-
leika. Ég er alls ekki að þessu til
að græða á þvi. Ef platan stend-
ur undir sér er ég ánægður. Mig
langaði bara til að sýna hvað er
að gerast i tónlistinni á Selfossi,
hvað er hægt ef viljinn og áhug-
inn eru fyrir hendi. Auk þess
langaði mig sérstaklega að gefa
poppurunum tækifæri til að
sýna hvað i þeim býr. Þar eru á
ferðinni menn sem hafa litið
haft sig i frammi en ættu að
réttu lagi að vera búnir að slá i
gegn fyrir löngu.”
— Sé svo hlýtur þetta að vera
óhemju dýr hugsjón.
„Ætli kostnaðurinn við fyrstu
tvö þúsund eintökin verði ekki
hátt á fimmtu milljón. Sjálfsagt
gera sér fáir grein fyrir þvi að
það er miklu dýrara að senda 13
aðila sinn i hverju lagi i stúdió
heldur en einn. Timinn nýtist
verr og stúdiótiminn þarna i
Hljóðrita er það dýr að þarna er
talsverður munur á. Rútu-
kostnaður, matur og fleira
þviumlikt er nokkuð sem útgef-
andi t.d. i Reykjavik þarf ekki
að hugsa um en er jafn-sjálf-
sagður gjaldaliður hjá mér og
stúdiótiminn sjálfur.
Til að gefa plötunni meira
gildi læt ég fylgja svolitinn pésa
með myndum og upplýsingum
um þá sem taka þátt i þessu.
Mér finnst það svo merkilegt að
það skuli vera hægt að fá sam-
þykki 10% ibúa þetta stórs
byggðarlags til þátttöku.að það
verði að gera þetta sem eftir-
minnilegast. Það er kannski
óraunhæfur leikur að tölum, en
imyndaðu þér 10% allra Reyk-
vikinga, niu þúsund manns, á
einni plötu! Við getum lika sagt
270 manns, samasem allir ibúar
Súðavikur.”
— Þú reiknar semsé ekki meö
að önnur byggðarlög feti i fót-
spor Selfyssinga i þessum efn-
um?
„Hvað aðrir gera veit ég ekki.
Ég hef vissar taugar til Selfoss
sem ég hef ekki til annarra
staða og mér finnst nú frekar
óliklegt að ég ráðist i sams kon-
ar framkvæmdir annars staðar.
Svo á það nú eftir að koma i ljós
hvort þetta ber sig. Sjálfsagt er
þetta framkvæmanlegt á fleiri
stöðum. Þó efast ég um að
margir staðir gætu státaö af 13
aðilum á plötu og öðrum 13
frambærilegum sem sætu
heima. Mér kæmi ekki á óvart
að Selfoss væri eini staðurinn á
landinu sem getur státað af
þvi.”
— Svo i lokin. Hvernig fer það
saman að vera framkvæmda-
stjóri austur á Fjörðum og
standa i plötuútgáfu á Selfossi?
„Það er allt hægt ef viljinn er
fyrir hendi. Ekki sist þegar
maður hefur jafn-marga góða
samstarfsmenn og að þessari
plötu standa.”
ÓÞH