Vísir - 15.04.1978, Síða 13
vism Laugardagur 15. april 1978
13
The BEATLES
Saga The Beatles er vist flest-
um kunn, þannig að við munum
að mestu láta hana liggja milli
hluta, en einbeita okkur að þeim
áhrifum sem þeir höfðu.
Utan Liverpool(fæðingarborg
Bitlanna', hafði svotil enginn
heyrt um þá getið, er þeir gáfu
út fyrstu tveggja-laga plötu
sina,Loveme, do, sem kom út á
vegum Parlophonehljömplötu-
útgáfunnar. Þetta var i október-
mánuði 1962. Plata þessi varð
ekkert sérstaklega vinsæl, en
vakti á þeim athygli. t febrúar
1963 kom svo út platan Please,
please me, sem skaut þeim á
topp breska vinsældarlistans og
markaði brautina fyrir seinni
2ja-laga plötur þeirram sen fóru
undantekningarlitið beint i 1.
sæti listans, allar götur fram til
1970, er siðasta piata The
BEATLES, Let it be, kom út
The BEATLES og
Windsor fjölskyldan
Er Bitlarnir voru að leggja
heiminn að fótum sér, var þess
ekki lengi að biða, að þjóðernis-
rembingur Breta slægi eign
sinni á þá og hampaði þeim, til
sönnunar þvi, að þrátt fyrir að
breska heimsveldið væri löngu
úr sögunni á hlutlægan máta,
væru menningarlegir yfirburðir
þess ennþá óumdeilanlegir.
Bitlarnir urðu þjóðarstolt Bret-
lands, fengu orður frá drottn-
ingu og sátu fyrir á ljósmyndum
með Harold Wilson, forsætisráð-
herra. Bitlaæðið teygði lika
anga sina inni konungsfjöl-
skylduna og rann á hinn 15 ára
Charles krónprins, sem var
farinn að láta hár sitt vaxa.
Hljóðfæraverslun ein fékk
pöntun frá Windsor-kastalanum
um rafmagnsorgel, rafmagns-
gitar og magnara. Þótti þetta
merki um, að bráðum væri von
á hágöfugri bitlahljómsveit.
Drottningarmóðirin og Snowdon
lávarður gerðu sér lika ferð,
ásamt konunglegum ljósmynd-
ara, á hljdmleika Bitlanna og
sögðust hafa haft gaman af,
þrátt fyrir að hinn óprúttni John
Lennon hafði við það tækifæri
gengið að hljóðnemanum og
urrað: — Þið þarna i ódýru sæt-
unum, klappiði, en þið þarna i
konunglegu stúkunni, hristið
gimsteinana ykkar!
Settur i stúlknabekk
Ekki voru þó allir jafn-hrifnir
af Bitlunum og drottningar-
fólkið. Ungur aðdáandi þeirra
mætti i skólann i byrjun skóla-
ársins með hár á herðar niður.
Hann bar þvi við, að þetta væri i
tisku, — sem var auðvitað lauk-
rétt. En skólastjórinn var ekki
aldeilis á sama máli og setti
bitilinn umsvifalaust i stúlkna-
bekk. Hvernig skyldi það nú
hafa lagst i stráksa?
— Þetta er bara gaman, sagði
umræddur piltur, Owen
Holmes, 14 ára við frettamenn,
daginn eftir þennan óvenjulega
atburð. — Trúlega mun mér þó
ekki geðjast að saumaskapnum,
en það verður bara gaman að fá
tilsögn i matreiðslu. Ég hef
verið f jóra mánuði að safna hári
og að þvi er ég best fæ. séð,