Pressan - 02.02.1989, Side 2
Fimmtudagur 2. febrúar 1989
PRESSU
MOLAR
réttastofu Ríkissjónvarpsins
bætist nýr liðsmaður næstkomandi
mánudag. Þá kemur þar til starfa
Unnur Ulfarsdóttir, sem verið hef-
ur blaðamaður um árabil bæði á
Vikunni og hjá Frjálsu framtaki.
Þar með fjölgar þó ekki konum á
fréttastofunni, því Unnurer ráðin í
stöðu Katrínar Pálsdóttur, sem
fengið hefur ársleyfi frá störfum...
Tæpar Ijorar vikur eru nu þar til bjor fer að flæða a landi her. Bjorstofur eru i bygg-
ingu hér og þar um landið. Þar a meðal Bjórstofa Elsu, sem ætlunin var að opna í Þórs-
katfi um næstu helgi. Nú hefur hins vegar orðiö aö seinka opnuninni um viku. — Á
myndinni má sjá nokkra helstu aðstandendur bjórstofunnar: Harald Sigurðsson.
Magnús Kjartansson, Vilhjálm Guðjónsson, Nadiu K. Banine, Elsu sjálfa, Egil Ólafs-
son og Finnboga Kjartansson. Ljósm.: Jóh. Long.
MYND
LJÓÐ
TÖN
LIST
C
á^íðastliðinn laugardag gerði
veður vont og Iét lögreglan það boð
út ganga í útvarpi að menn skyldu
halda sig heima, nema þeir ættu
brýnt erindi út í ófærðina. Leið ekki
á löngu þar til tilkynningar fóru að
heyrast í útvarpi urn ýmsa fundi og
mannfagnaði, sem frestað var
vegna veðurs. Klukkan tvö þennan
dag átti að frumsýna barnaleikritið
Ovita í Þjóðleikhúsinu og hafa ef-
laust einhverjir átt von á að sýning-
in yrði felld niður, eins og funda-
höld fullorðna fólksins. Sú varð þó
ekki raunin, heldur var frumsýnt
fyrir börnin þrátt fyrir óþekkt veð-
urguðanna...
Það er listaveisla með kaffi-
sopa á dagskránni í sýningar-
salnum Nýhöfn við Hafnar-
stræti í kvöld. Þangað mæta
Ijóðskáldin Steinar Jóhanns-
son, Sveinbjörn Þorkelsson,
Júlía Arndís Arnadóttir, Margrét
Óskarsdóttir, Steinunn Ás-
mundsdóttir, Ingibjörg Þóris-
dóttir, Bragi Ólafsson og Mel-
korkaTheklaÓlafsdóttirog lesa
úrverkum sínum. Elísabet Indra
Ragnarsdóttir ætlar að leika
einleik á fiðlu.
Aðstandendur Nýhafnar, sem-
lofa kaffiveitingum í hléi, segj-
ast ætla að reyna að gera uppá-
komu sem þessa að föstum
mánaðarlegum lið i starfsemi
listasalarins. Þar stendur yfir
sýning Kristínar Þorkelsdóttur
á vatnslitamyndum. Frá henni
varsagt í síðasta Pressuplús. —
Listaveislan hefst í kvöld klukk-
an hálfniu.
velkomin
1. Þessi sfúlka fæddist 28. janúar,
fyrsta barn Gudrúnar Sveinsdótt-
urog Rúnars Þóröarsonar. Hún vó
13 merkur og var 51 sm löng viö
fæðingu, finleg dama.
i heiminn
2. Einum degi siðar, 29. janúar,
fæddist Þórhildi Þorsteinsdóttur
og Kristjáni Guðnasyni einnig
fyrsta barn sitt. Það var líka
stúlka, 16 marka þung og 52 sm
löng.
I
3. Hér kemur þriðja barnið á heim-
ili Elsu Hallvarðsdóttur og Guð-
finns Árnasonar. Stúlkan fæddist
27. janúar, vó 14 merkur og var 50
sm löng. Heima biðu hennar tvö
eldri systkini.
Þráinn klippir og klippir
Vel miöar með nýjustu kvikmynd Þráins Bertelssonar,
Magnús. Hún var tekin upp í fyrra og nú er veriö aö klippa.
„Myndin er rúmlega hálfnuð í klippingu núna,“ segir Þráinn.
„Ég reikna með aö vera meö tilbúið sýningareintak i höndunum
i lok maí. Ég ætla þó ekki að frumsýna fyrr en í september.
Reynslan hefur kennt okkur kvikmyndageröarmönnum aö þaö
þýöir ekkert aö sýna á sumrin. Það er því um aö gera aö þrauka
fram á haust.“
Vinnuheiti nýju myndarinnar er Magnús. Þráinn segist ekki
enn geta upplýst neitt um endanlegt heiti.
„Ég er búinn aö kalla hana Magnús svo lengi aö mér dettur
ekkert annað í hug. Reyndar voru einhverjir aö stinga því aö mér
að kalla hana bara Megas. Fara sömu leiðina og Magnús Þór
Jónsson þegar hann breytti sinu nafni hér um árið.“
Þráinn Bertelsson stefnir á að frumsýna Magnús i haust.
4. Og hér kem ég, enn ein stelpan!
Ég fæddist líka 27. janúar og var
12 merkur og 50 sm. Foreldrar
minireru Fanney Ásgeirsdóttirog
Gestur Skarphéðinsson og ég er
fyrsta barn þeirra.
5. En ég er sko strákur! Mamma
mín heitir Arna Vignisdóttir og
pabbi minn Rúnar Þórisson. Ég
fæddist 29. janúar og var 16,5
merkur og 53 sm á lengd. Ég er
fyrsti strákurinn sem þau eignast,
en þau eiga tvær stelpur fyrir.
6. Æ, ég get ekki haldið geispan-
um lengur... Fyrsta barn Dagmar-
ar Bjartmarsdóttur og Arnórs G.
Ólafssonar fæddist 28. janúar.
Hún vó 14 merkur og var 51 sm
löng.
7. Mér líður sko vel! Sjáiði það
ekki alveg? Ég er strákur og fædd-
ist 26. janúar, 17,5 merkur og 53
sm. Foreldrar mínir eru Ágústa
Óskarsdóttir og Pétur H. Pálsson
og ég er fjórða barn þeirra. Og
getiði hvað. Heima hjá mér eru
ÞRJÁR systur svo ég flyt i algjört
kvennariki!
8. Ég er líka fjórða barn. Mamma
mín og pabbi eru Jóhanna G.
Árnadóttir og ingimar Cizzowitz.
Ég á tvo bræður og eina systur.
Þegar ég fæddist 26. janúar var
ég 12,5 mprkur óg 51 sm langur.