Pressan - 02.02.1989, Síða 8
8
Fimmtudagur 2. febrúar 1989
VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÖGUM
Útgefandi Blað hf.
Framkvæmdastjóri Flákon Hákonarson
Ritstjórar Jónína Leósdóttir
Ómar Friðriksson
Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn <pg skrifstofur: Ármúla 38, sími: 68 18 66. Auglýsingasími:
68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 68 18 66. Setning og
umbrot: Filmur og prent. Prentun: Blaóaprent hf.
Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alpýöu-
blaöiö: 800 kr. á mánuði. Verð i lausasölu: 100 kr. eintakiö.
ÞARFIR
IBUÐAKAUPENDA
Pressan kynnir í dag mjög athyglisverðar niðurstöður
úr könnun sem Félagsvísindastofnun hefur gert fyrir fé-
lagsmálaráðherra á aðstæðum þeirra sem eiga óaf-
greiddar lánsumsóknir hjá Húsnæðisstofnun eða ætla.
að sækja um lán á næstunni. Eins og fram hefur komið
í fréttum er hér um gífurlegan fjölda að ræða. Frá því
að gerð var breyting á húsnæðiskerfinu árið 1986 hefur
stofnunin afgreitt nærri átta þúsund lánsloforð. Á bið-
lista eru um níu þúsund umsækjendur og má búast við
að nálægt tuttugu þúsund nýjum umsóknum berist á
næstu tveimur árum.
Það vekur athygli að skv. þessari nýju könnun býr
meirihluti þeirra sem nú þegar eru á biðlista í eigin hús-
næði. Hins vegar er aðeins þriðjungur þeirra sem ætla
að sækja um lán á næstunni í eigin húsnæði.
Það hlýtur líka að vera umhugsunarefni að skv. þess-
ari könnun telja aðeins 44% þeirra sem þegar eru komn-
ir á biðlista við Húsnæðisstofnun að þeir búi við of
þröngar aðstæður í dag. Mikill meirihluti umsækjenda
telur sig nú þegar búa í góðu húsnæði.
Þá kemur einnig fram að meðal þeirra sem þegar hafa
lagt inn lánsumsókn eru 52% á aldrinum 20 til 30 ára.
Það má aftur á móti búast við að fjöldi ungra umsækj-
enda aukist á næstunni því af þeim sem ætla að sækja
um húsnæðislán á þessu og næsta ári eru 63% á aldrin-
um 20 til 30 ára.
í dag er meðalbiðtími umsækjenda við Húsnæðis-
stofnun 34 mánuðir vegna lánsloforða sem gefin eru út
á þessu ári. Félagsmálaráðherra hefur kynnt mikilsverð-
ar tillögur um nýtt skipulag húsnæðislánakerfisins með
svokölluðu húsbréfakerfi. Kostur þess er að með því yrði
dregið úr þeirri miðstýringu lána sem ríkt hefur i hús-
næðismálunum. Könnun sú sem Pressan kynnir í dag
sýnir að hópur þeirra sem eru að sækja um íbúðalán í
fyrsta sinn og búa við þröngar aðstæður er ekki eins stór
og talið hefur verið. Aðstæður umsækjenda eru mis-
munandi en biðraðarþunginn á Húsnæðisstofnun
stendur í vegi fyrir eðlilegri fyrirgreiðslu við ungt fólk
sem hyggur á húsnæðiskaup. Miklar vonir eru bundnar
við fyrirhugaðar breytingar félagsmálaráðherra á hús-
næðiskerfinu. Húsbréfakerfið getur grisjað biðröðina
hjá Húsnæðisstofnun ríkisins en stjórnvöld verða að
kosta kapps um að húsnæðismál unga fólksins komist
í viðunandi ástand. Slík stefna af hálfu hins opinbera er
ekki síður mikilvæg en fyrirgreiðsla ríkisins við atvinnu-
vegina.
Nýr
Ómar Fridriks-
son, sem verið liefur
fréltasljóri PRESS-
UNNAR, varnýver-
ið ráðinn í slöðu rit-
sljóra við blaðið.
Eru ritstjórarnir þar
með orðnir Iveir.
Ómar er mennl-
aður í stjórnmála-
frœðum og hefur
m.a. slarfað sem
blaðamaður á Helg-
arpóstinum, Víkur-
blaðinu, fréHatíma-
ritinu Þjóðlífi og
Alþýðitblaðinu.
ritstjóri
Ovitarnir
„Það væri aldeilis munur, ef óvitarnir í leik-
húsinu við Austurvöll vœru jafnmeðfœri/egir
og þú, Flosi minn. “
hfn presscm
„Petta er sem sagt mál sem hef-
ur þann tilgang aö fá úr þvi skorið
hvað lögin segja viö þvi þegar yfir-
menn leggjast svo lágt að vinna
fyrir undirmenn sina.“
— DagfariDVummálsóknFlugleióaá
hendur Verslunarmannafélagi Suó-
urnesja.
„Okkur vantar hin mjúku gildi.
Manneskjan getur ailtaf lagað sig
að nýjum aðstæöum...“
— Eirikur Guðjónsson, lesandi Pjóó-
viljans þessa viku.
„Kosningar i dag eru „þvingað-
ar kosningar“, þér er bara ieyft aö
éta ákveðinn bita, en ekki velja á
diskinn.“
— Dr. Gunnar Jónsson „fjölfræöing-
ur“ ! viðtali við Mogga.
„Hugsunin var að gera eitthvað
einfalt, skýrt og ögrandi og sem
bæri vott um tiltölulega lítið hug-
myndaflug."
— Kristján Guðmundsson myndlist-
armaður um fyrstu einkasýningu sfna i
viðtali við Morgunblaðió.
,',Unglingavandamálið hefur
snúist við meö þessari kynslóð,
sem verður ekki einu sinni ólétt af
rælni, kæruleysi er ekki til, allt er
svo planað, tiðahringirnir komnir
inn á tölvuforritin, votir draumar
snúast um módelstörf og market-
ing.“
— Hallgrlmur Helgason um ungu kyn-
slóðina ur sinu höfði I DV.
„Þeir fáu ránsvíkingar sem
hingað komu virðast helst hafa lit-
ið á ísland sem einskonar elli-
heimili."
— Árni Björnsson i Þjóðviljanum um
víkingatímabitió á íslandi.
„Hér hélt maöur i barnaskap
sinum aö islenskt verkafólk ynni
svo langan vinnudag vegna þess
að dagvinnulaunin hrökkva engan
veginn fyrir framfærslu en lengd
vinnudagsins kæmi niður á af-
köstunum.“
— GesturGuðmundsson i Þjóðviljan-
um um hugmyndir Jóns Baldvins um
aga og agaleysi.
„Einnig varð ástarsamband
Fossey viö myndatökumanninn
aldrei nógu sannfærandi þótt þau
færu saman i baö.“
— Þorfinnur Ómarsson I kvikmynda-
gagnrýni í Þjóðviljanum.
„ffrœðum Ó.
Grímssonar er lögð
áherzla á tvö undir-
stöðuatriði til að
koma pólitískri ár
sinni fyrir borð:
Gleymsku almenn-
ings þegarfrá líður
atburðinum og end-
urtekin ósannindi. “
— Sverrir Hermannsson i grein I Mbl.
„Þaö er með ólíkindum hvernig
einhverjum lítt þekktum og sér-
lega þreytandi og syfjulegum,
kanadískum raulara liðst að troða
sér inn i þennan þátt um hann
Hrafn okkar.“
— Gunnar Birgisson og Birgir Jóa-
kimsson I Velvakanda.
„Ég sat i hægindastól og var með
eyrun sperrt, þvi hann sagði mér
sögur allan tímann.“
— Ása Björk Ólafsdóttir hönnuður,
um fyrirsætustörf hjá Alfreó Flóka.
„Yfir borðum voru sagðar
krassandi kjaftasöpur eins og
allir gera þegar þeir éta. Sú
besta var um þig.##
— Sigurður Þór Guðjónsson I Tðnlistargagnrýni í Þjóðviljanum.