Pressan - 02.02.1989, Page 17
Fimmtudagur 2. febrúar 1989
17
Þorsteinn Jónsson, form. Fé-
lags kvikmyndagerðarmanna:
Erfitt að treysta___________
kvikmyndasjóði
Það hefur vakið undrun margra
þeirra sem þekkja til íslenskrar
kvikmyndagerðar að úthlutunar-
nefnd kvikmyndasjóðs dró til baka
styrk sem búið var að veita Bíói hf.
til framleiðslu á Meffí. Sérstaklega
með tilliti til þess að handrit að ís-
lenskum kvikmyndum hafa yfir-
leitt tekið miklum breytingum frá
úthlutun styrkja til frumsýningar
myndanna og er það jafnvel haft
fyrir satt að sumir leikstjórarnir
hefji stundum tökur með hálfklár-
uð handrit og séu að skrifa handrit-
in fram á síðasta tökudag. Þor-
steinn Jónsson, formaður Félags
kvikmyndagerðarmanna, var
spurður álits á þessari ákvörðun út-
hlutunarnefndar:
„Ég held að kvikmyndagerðar-
menn séu almennt sammála um að
upprunalegt handrit þurfi að breyt-
ast verulega til að hægt sé að rétt-
læta það að styrkur sé dreginn til
baka, enda hafa oft orðið mjög
mikiar breytingar á handritum frá
því úthlutunarnefnd kvikmynda-
sjóðs veitir styrk og þar til mynda-
tökum lýkur.
Ég tel það einnig orka mjög tví-
mælis að stofnun á borð við kvik-
myndasjóð geti dregið loforð um
styrki til baka vegna þeirra gífur-
legu framkvæmda sem slíkt loforð
setur í gang. í flestum tilfellum er
úthlutunin það merki sem kvik-
myndagerðarmenn bíða eftir til að
geta hafist handa; þá er farið að
gera samninga við lánastofnanir,
starfsfólk, um leigu á tækjum og
fleira. Það er mjög erfitt að snúa
við eftir að farið hefur verið af stað
og ég get ekki betur séð en eftir
þetta verði mjög erfitt fyrir kvik-
myndagerðarmenn að treysta á fyr-
irheit um styrki frá kvikmynda-
sjóði.
Samkvæmt núgildandi reglum
hefur úthlutunarnefndin einræðis-
vald og getur því hagað úthlutunum
að vild, hvort sem mönnum líkar
betur eða verr. Flestir kvikmynda-
gerðarmenn eru mjög óánægðir
með að nefndin skuli eingöngu
skipuð mönnum sem hafa litla
þekkingu á kvikmyndaframleiðslu.
Til að unnt verði að veita styrkina
af einhverri skynsemi verða að sitja
í nefndinni menn með bæði fræði-
lega og verklega þekkingu á kvik-
myndagerð. Sem betur fer eru þessi
mál nú í endurskoðun og hefur
menntamálaráðherra skipað sér-
staka nefnd, sem á meðal annars að
endurskoða starfsemi kvikmynda-
sjóðs.“
Nóttin á herðum okkar
í kvöld, fimmtudagskvöld, verða áttundu áskriftar-
tónleikarSinfóníuhljómsveitar íslands. Þrjú verk verða
á efnisskránni. Shadows, eftir finnska tónskáldið Aurli
Sallinen, sem er eitt af vinsælli verkum finnskra tón-
skálda um þessar mundir, en Sallinen er með fremstu
tónskáldum Finna á vorum dögum. Verkið mun upp-
haflega vera samið sem millikafli í óperu og var frum-
flutt á Scandinavia Today í Bandaríkjunum 1982, undir
stjórn Rostropovitch. Þá verður fluttur Píanókonsert
nr. 3 eftir Beethoven, einn allra frægasti píanókonsert
hans, en allir einleikskonsertar hans fyrir píanó eru á
dagskrá hljómsveitarinnar í vetur. Upphaflega stóð til
að Jónas Ingimundarson léki einleik í verkinu, en hann
dró sig í hlé og í stað hans leikur Þjóðverjinn Christian
Zakarias. Hápunktur tónleikanna verður síðan án efa ,
frumflutningur á nýrri ljóðasinfóníu eftir Atla Heimi
Sveinsson, Nóttin á heröum okkar, sem samin er við
ljód eftir Jón Óskar. Þetta er gríðarlega mikið verk, hef-
ur tekið tónskáldið allt að tveimur áratugum að semja
það, en það byrjaði sem þrjú lög fyrir djúpa kvenrödd
og kammerhóp en endaði sem sinfónía. Verkið er mann-
margt, í því syngja m.a. einsöng tvær söngkonur, Mari-
anna Eklöf og Ilona Maros, og auk þeirra syngur í verk-
inu kvennakór íslensku óperunnar. Auk Sinfóníunnar
er verkið skrifað fyrir tvo konsertflygla og á báða er
leikið fjórhent, gítar, hörpu og fimm slagverksleikara.
Stjórnandi verður aðalstjórnandi Sinfóníunnar, Petri
Sakari.
SKIUÐ SKATTFRAMTAU
ÍTÆKATfÐ____
Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra um ís-
lenska kvikmyndagerð:
Útflutningsgrein i
stil við fiskeldi
Það er mjög óvanalegt, ef
ekki einsdœmi, að sótt sé um
ríkisábyrgð á lánum vegna
framleiðslu kvikmyndar. Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra var því spurður álits á um-
sókn aðstandenda Meffíar:
„í mínum augum er kvik-
myndagerð ekki bara listgrein
heldur atvinnuvegur og hugsan-
Iega útflutningsgrein á borð við
fiskeldi. Það er því í sjálfu sér
ekki óeðlilegt að kvikmyndafyr-
irtæki sitji við sama borð og
önnur fyrirtæki. Þótt ég sé
almennt þeirrar skoðunar að
draga eigi úr ríkisábyrgðum ber
að líta á það að kvikmyndagerð
er ung atvinnugrein hér á landi.
Spurningin er bara hvort ábyrgð
og tryggingar og annað sem
gjörningnum fylgir séu fyrir
hendi. Eg hef falið ráðuneytis-
stjóra fjármálaráðuneytisins að
athuga þetta mál af mikilli
alvöru og vænti þess að sú
athugun geti leitt til niðurstöðu
mjög fljótlega. “
Skattframtali 1989 vegna tekna 1988 og eigna í árslok á að skila í síðasta
lagi 10. febrúar.
Fylgiblöð með skattframtali liggja frammi hjá
skattstjórum sem jafnframt veita frekari
upplýsingar ef óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varðveiti
launaseðla áfram efftir að skattframtali hefur
verið skilað. Launaseðlar eiga að sanna, ef á
þarf að halda að staðgreiðsla hafi verið dregin af launum.
SIDASTISKILADAGUR SKATTFRAMTALS
ER 10.FEBRÚAR.