Pressan - 02.02.1989, Page 28
PRESSU
e
ftir helgi tekur Sveinn Ein-
arsson, fyrrum Þjóðleikhússtjóri,
við starfi Hrafns Gunnlaugssonar
sem yfirmaður innlendrar dag-
skrárgerðar hjá sjónvarpinu. Eitt af
fyrstu verkefnum Sveins verður að
fylgja eftir gerð sjónvarpsleikrits
eftir Hrafn Gunnlaugsson, því síðla
vetrar er ráðgert að undirbúningur
hefjist. Leikritið heitir Englakropp-
ar og mun Friörik Þór Friðriksson
sjá um leikstjórnina. Friðrik er
sjálfur að ljúka gerð myndar fyrir
sjónvarpið sem heitir „Flugþrá“.
Það var auðvitað Hrafn sem úthlut-
aði verkinu, alveg eins og hann tók
sjálfur ákvörðun um að sjónvarpið
gerði mynd eftir hann sjálfan. Ef-
laust eiga sjónvarpsáhorfendur eft-
ir að sjá fleiri verk úr smiðju Hrafns
þau fjögur ár sem hann verður í
svokölluðu launalausu leyfi...
n^Éeira um Hrafn. Hann er
einn af þeim sem lenda oft á milli
tannanna á fólki, en á sér auðvitað
harða fylgismenn og góða vini.
Þannig eru ýmsir sagðir ósáttir við
hvernig staðið var að málum í
stjórnarkjöri hjá Sambandi ís-
lenskra kvikmyndaframleiðenda.
Aðalfundur var á dögunum og urðu
Hrafn og hans menn undir í kosn-
ingu til stjórnar. Ágúst Guðmunds-
son var kosinn formaður og með
honum í stjórn þeir Þráinn Bertels-
son og Jón Ólafsson. Velunnarar
Hrafns segja að nú telji ýmsir að
þeir hafi ekki lengur not fyrir hann
eftir að hann hætti hjá sjónvarp-
inu...
Þ
i bókat
ó nú sé nokkurs konar fjara
bókaútgáfumálum eru menn í
þeirri atvinnugrein auðvitað farnir
að huga að næsta flóði. Og enn
munu hinar klassísku viðtalsbækur
verða á ferðinni. Heyrst hefur að
slík bók verði t.d. rituð um Ingólf
Guðbrandsson, fyrrverandi for-
stjóra ferðaskrifstofunnar Út-
sýnar...
B^íokkrir ungir og efnilegir
Iistamenn, kvikmyndagerðarmenn
og skáld, eru að hefja undirbúning
að gerð fyrstu íslensku kvikmynd-
arinnar eftir vísindaskáldsögu og
leita nú leiða til að fjármagna verk-
efnið. Nú á tímum leikur nokkur
vafi á hvort myndir geti yfirleitt tal-
ist íslenskar, en þessi á að verða
rammíslensk enda ætlað að byggja
á íslenski skáldsögu og væntanlega
kostuð af innlendum aðilum. í hópi
þeirra sem orðaðir hafa verið við
myndina eru kvikmyndagerðar-
mennirnir Halldór Gunnarsson og
Helgi Sverrisson, sem síðustu mán-
uði hafa unnið að gerð heimilda-
myndar fyrir sjónvarpið um Jón
Sveinsson (Nonna og Manna), Kári
Schram kvikmyndagerðarmaður,
skáldið Sjón og Jón Sverrir
Proppé...
^5ýning Alþýðuleikhússins á
finnska leikritinu „Eru tígrisdýr í
Kongó?" þykir gott innlegg í um-
ræðuna um alnæmi. Leikritið hefur
verið tekið til sýningar hjá leikfé-
lögum á öllum Norðurlöndunum
og farið mikla sigurför. Landlækn-
isembættið hefur styrkt sýningar-
haldið þar sem leikritið er talið eiga
erindi til ýmissa áhættuhópa. Nem-
endur framhaldsskólanna hafa sóst
eftir að fá verkið til sýningar og
yfirleitt borga nemendafélögin fyr-
ir sýningarhaldið. 400 nemendur
Fjölbrautaskóla Suðurlands sáu
sýninguna í gær og hlustuðu á er-
indi fulltrúa landlæknisembættis-
ins. Sama dag var ráðgert að halda
sýningu á Litla-Hrauni, en áður en
lagt var af stað á Hraunið mun ekki
hafa verið frágengið hverjir borg-
uðu fyrir sýninguna. Þrátt fyrir að
sýningin eigi sérstakt erindi til svo-
kallaðra áhættuhópa virðist sem
yfirvöld hafi ekki hugsað til enda
hverjir ættu að bera kostnaðinn...
f orsvarsmenn útvarpsins eru
sagðir óánægðir með hvernig út-
varpsráð stóð að afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar fyrir þetta ár. Það
eina í rekstri Ríkisútvarpsins, sem
stóðst áætlanir á síðasta ári, var út-
varpsreksturinn í Efstaleiti. Hjá
sjónvarpinu fóru einstaka deildir
hins vegar verulega fram úr áætiun-
um. Framkvæmdastjórn lagði til-
lögur að fjárhagsáætlun fyrir út-
varpsráð, sem breytti þeim á þann
veg að 6 milljónir voru færðar frá
útvarpinu til innlendrar dagskrár-
deildar hjá sjónvarpinu. Innlend
dagskrárdeild fór hins vegar 9 millj-
ónir fram úr áætlunum á síðasta
ári. Útvarpsmenn telja útvarpsráð
sýna sér fádæma vanþakklæti fyrir
ábyrga fjármálastjórn, með því að
verðlauna eyðsluseggina...
111 hefur verið skrafað
um sviptingarnar hjá ferðaskrif-
stofunum, þar á meðal um hugsan-
lega breytta eignaraðild að Ferða-
miðstöðinni. Þegar Andri Már Ing-
ólfsson fór úr forstjórastólnum í
Útsýn yfir í sams konar stól hjá
Ferðamiðstöðinni þótti skraf-
hreifnum sýnt að hann og faðir
hans, Ingólfur Guðbrandsson,
væru að yfirtaka Ferðamiðstöðina.
Það mun þó alls ekki standa til,
a.m.k. ekki hvað Ingólf varðar, en
Andri Már mun líklega verða hlut-
hafi, þótt núverandi eigendur, Sig-
urður Garðarsson og Sigurður Örn
Sigurðarson, eigi áfram meiri-
hluta...
L
■ H agkvæmniathugun vegna
hugsanlegrar byggingar álvers í
Þorlákshöfn þykir hafa farið nokk-
uð leynt. Ástæðan er sögð sú, að
Þorlákshöfn hafi reynst æskilegri
kostur en áhrifamenn vonuðust til í
upphafi. Einn aðalkosturinn við
Þorlákshöfn umfram Straumsvík
er sparnaður í flutningslínum fyrir
orkuna...
BILL COSBY
koiniiiii aftur.
Skyldi nokkur „pabbi“ nokkru
sinni hafa dregið að sér jafn
almenna athygli?
Á hverju laugardagskvöldi.
Föðurleg ábending til auglýsenda.
jO.
Tf
SJÓNVARPIÐ
ekkert rugl.