Tíminn - 18.03.1979, Page 23
Sunnudagur 18. mars 1979
23
PLÖTUDÓMAR_____
Mark - Almond - Other
Peoples Rooms
Horizon SP-730/Fálkinn
„Other Peoples Rooms” meö John Mark og
Johnny Almond er mjög sérstök plata og aö minu
viti afbragösgóö. Rétt er þó aö taka þaö fram aö hún
er öll mjög róleg og ekki eitt einasta lag getur talist
fjörugt eöa svo mikiö sem nálgast þaö. Þetta er
engin Travolta-plata. En þegar þessi fyrirvari hef-
ur verið settur er óhætt að segja aö platan er meö
þvi besta sem undirritaöur hefur hlýtt á I langan
tlma. Þegar maöur má vera aö þvi aö hlusta býöur
þessi plata upp á fullkomna hvild og þá gleöi sem
fylgir góöri tónlist. Tónlistin er undir sterkum
jassáhrifum en sérstakur still þeirra Marks og
Almonds gnæfir þó yfir öllu ööru og ég reyni ekki aö
skilgreina hann. Söngur Marks er fyrirtak og textar
mjög góöir.
KEJ
The Band - Anthology
E-Stsp 19/FálkiB.n
The Band kvaddi á siðasta ári meö „The Last
Waltz”, og þrátt fyrir margar fresitingar, hefur
„Bandið” haldiö sig viö þá ákvörðun aö hætta. Og
hér er komin tveggja platna albúm þar sem er
„anthology” eða tónlistarsaga þeirra, samsafn af
gullkornum, sem ekki er hægt annað en gefa fimm
stjörnur, þó að allt sé þetta aö sjálfsögöu komið út
áður.
Eflaust mætti lengi um það deila hvort eitthvað af
lögum vanti inn i þessa mynd og ekki fer hjá þvi að
maður sakni einhvers. Tilfeilið er þó að gullkornin
eru svo mörg á nær tveggja áratuga ferli bandsins
að lengi er hægt að tina til eitt enn. Það er skoðun
min að hér hafi vei til tekist og þaö sem helst vanti
sé kveðjulagið „Siðasti valsinn” en þar er raunar
um tónverk að ræða nýútkomiö á annarri snilldar-
plötu, og af þeim sökum erfitt um vik aö taka þaö
upp. Raunar mega þeir, sem unna góöri folk-rokk-
tóniist ekki láta þá plötu vanta i safnið sitt og hinir
sömu ættu aö eignast „Antohology” svo framar-
lega sem þeir eiga ekki þessi lög á fyrri plötum
bandsins.
Tónlist bandsins og margfræg lög þeirra og marg-
endurflutt sum hver eru endalaus uppspretta
ánægju þegar menn leyfa sér og nenna aö hlusta á
meö vakandi eftirtekt. Ég vil ekki flokka þessi lög
undir slagara og ekki fremur undir venjulegt
country-rokk. Þetta er alvarleg tónlist, ákveöin
menningararfleifö og hún mun ekki öll þó „bandiö’
sé allt.
______ —KEJ
Gruppo Sportivo - Back to 78
Ariola 26472 XOT/Fálklnn
Fram aö þessu hafa tslendingar haft fremur litlar
spurnir af hollenskum hljómsveitum, öörum en
þeim „sykursætu”, sem veriö hafa fulltrúar Hol-
lands f Eurovision keppninni. Margt bendir þó til
þess aðtóntistarsmekkur tslendinga og Hollendinga
sé ekki ósvipaður, a.m.k. bendir hoilenski vinsælda-
listinn ótvírætt til þess aö svo sé.
Sú hljómsveit sem hvaö mestra vinsælda nýtur f
Hollandi f dag, heitir Gruppo Sportivo, eöa tþrótta-
sveitin, eins og nafn hennar myndi útleggjast á
islenska tungu. Þessi hollenska hljómsveit meö sitt
itatska nafn, hefur aö undanförnu aöallega starfaö i
Bretlandi viö góöar undirtektir og er henni, eins og
svo mörgum öörum „nýbylgju” hijómsveitum,
spáð miklum vinsældum I náinni framtfö.
Hljómsveitina skipa Max „Climax” Mollinger
(trommur), Eric Wehrmeyer (bassi), Peter Calich-
er (hljómborð), Hans Wandenburg (söngur, gitar),
Meike Touv og Jose Van Iersel (söngur og bakradd-
ir).
Tónlist Gruppo Sportivo er heföbundin
„nýbylgju” tónlist, en þó mun fjölbreyttari en geng-
ur og gerist hjá slikum hljómsveitum. A þessari
nýjustu plötu hljómsveitarinnar, sem er sú önnur
frá upphafi, eru 15 lög og eru þau öll af léttara
taginu. Textarnir fjalla einnig allir um frekar
léttvæga hluti, og svo viröist sem Wandenburg,
aðaltexta- og lagasmiöur hljómsveiarinnar, sé I
meira lagi gamansamur maður, en þó með fremur
sérstæða kimnigáfu. Þó að lögin og textarnir séu i
frekar gamansömum dúr, þá er það nú svo að öl.lu
gamni fylgir nokkur alvara og ekki er laust við aö á
köflum kveði við nokkuð beiskan tón hjá Wanden-
burg, s.s. i laginu „Blah blah Magazines”, sem
fjallar um bresku poppblöðin og afskipti þeirra af
hljómsveitinni. t textanum segir m.a.: This week
your NME (frb. enemý) tells you we’re like
Blondie/ Next week I’m like Dury, Let’s go
#
. . 5ÉJ (ÚO
tiÁac'm'm
★ ★ ★ +
Heeheehee... Yes it’s true we steal every Tralalala
we hear/ Yes you’re right we’re like the Monkeys/
We've got no Ideas of our own....
Þess má að lokum geta aö „Back to ’78” er aö
mörgu leyti sérstæö og skemmtileg plata, þökk sé
góöum hljóöfæraleik og þeim atriöum sem áöur eru
upp talin, en ef á heildina er litið er þessi plata þaö
léttvæg aö hún verður aldrei tekin alvarlega og skil-
ur þar af leiöandi ekki mikiö eftir sig.
—ESE
Frábær ★ ★ ★ ★ ★ - Mjög góð ★ ★ ★ ★
Viðunandi ★ ★ ★ - Sæmileg ★ ★ ■ Léleg ★
Jasmín svefnsófinn er stofuprýði á dag-
inn, en 2ja manna rúm að nóttu.
Eigum einnig
BB svefnsófann og VENUS
svefnsófann ósamt fjölmörgum
gerðum af einsmanns
svefnsófum
Verið velkomin
SMIOJWGISÍMI 44544
Meó sófasettinu FLORIDA Kynnum við merka
nyjung. Sófinn er jafnframt fullkomið hjónarum
af beztu geró, þótt engan gruni við fyrstu syn,
aó um svefnsófa se að ræóa
SVEFNSOFA
ÚRVALIÐ ER
HJÁ OKKUR
Til sölu bújörð
Jörðin Stekkjarholt i Skagafirði er til sölu
og laus til ábúðar í vor. Skipti á fasteign
æskileg.
Eigandi áskilur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar i sima 71766 Eeykjavik.
Vörubifreiðaeigendur
Óska eftir Volvo FB 88 eða Scania modei
’69-’72 með eða án krana.
Upplýsingar i sima 83619 i dag og næstu
kvöld.
Jörð til sölu
Jörð i vestanverðri Rangárvallasýslu til
sölu. Stærð ca 200 ha. Túnstærð 24 ha. Bú-
stofn getur fylgt.
Nánari upplýsingar gefnar i sima 99-6601.