Réttur - 15.03.1935, Qupperneq 2
sem sjálf nyti árangurs erfiðis síns, laus við allan er-
lendan þrældóm. Það var þessi hugsjón, sem gaf þeim
kraftinn, fórnfýsina og þrautseigjuna, — hinum sönnu.
sjálfstæðishetjum íslands.
Veruleiki auðvaldsskipulagsins.
En nú er komið 1935. Draumurinn er orðinn ,,veru-
leiki“. En v.eruleikinn lítur bara allt öðruvísi út en
draumurinn var. Síðustu 20 ár hafa sýnt þann kalda
veruleika, sem bjó á balt við frelsisbaráttuna, — afl-
ið, sem notaði sér hugsjónaást og virkilega ættjarðar-
ást alþýðu og menntamanna til að koma hagsmuna-
málum sínum í framkvæmd, — valdið, sem sveik, þeg-
ar því þótti arðrán sitt ekki nógu tryggt lengur, ef
sókninni gegn yfirdrottnun og kúgun yrði áfram hald-
ið. Hrifning Fjölnismanna, uppreisnarhugur Jóns Sig-
urðssonar, róttækni Skúla Thoroddsens eru horfin fyr-
ir kaldhæðnislegu glotti Eggerts Claessens, formanns
Sambands íslenzkra atvinnurekenda.
Það var burgeisastéttin, sem brauzt til valda á ís-
landi, en notfærði sér til þess frelsisbaráttu þá, sem.
alþýðan hélt að hún væri að heyja fyrir þjóðernislegu
sjálfstæði sínu og frelsi. Og sú burgeisastétt getur nú
litið yfir tveggja áratuga óskert valdatímabil sitt og
árangur þess.
Atvinnuþróunin hefir verið ör á Islandi á þessu
tímabili. Myndbreytingarnar á yfirstéttinni hafa gerst
hratt og alþýðan vart fylgst með í þeim né áttað sig
á hvað þær þýddu. Og „draumarnir" hafa umhverfzt
álíka hratt í veruleikanum, — og skal þetta nú allt
í stuttu máli rakið.
Verzlunarauðmagnið og ,,hugsjón“ þess.
Verzlunarauðvaldið var fyrsta innlenda auðvaldið
á Islandi. Draumsjón þess var „frjáls verzlun“ og
Jón Sigurðsson sérstakur forvígismaður þeirrar hug-
myndar. Það hefir nú haft áttatíu ára bil til að frarn-
2