Náttúrufræðingurinn - 1940, Blaðsíða 24
16
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
svart, fætur ljósrauðgráir eða grágulleitir. Stærð fuglsins í mm
er þessi: vængur 147—170, stél 88—103, nef 19—23, rist 32—
37, miðtá -)- kló 20—23. Stærð Rauðasandsfuglsins var þessi:
vængur 165, nef 20.5, rist 36 og miðtá + kló 23 mm.
6. mynd. Skræklóa (Cliaradrius vociferus vociferus)
(T. A. Coward: The Birds of the British Isles etc.)
Af íslenzkum fuglum líkist skræklóan mest sandlóunni, en
stærðarmunur er þó allmikill, því skræklóan er heldur stærri
en tildra. Skræklóan er auk þess tiltölulega miklu háfættari og
stélið er tiltölulegra miklu lengra og fleygiagaðra en á sandló-
unni. Á sandlóunni er svarta bandið á framanverðum hálsi ein-
falt, en á skræklóunni er það tvöfalt og hvítt band á milli. Allt
þetta og svo rauði liturinn á yfirgumpi, yfirstélþökum og stéli
eru svo glögg tegundareinkenni á skræklóunni, að ekki verður
villst á henni og öðrum tegundum.
Skræklóan á heima sem varpfugl í hinum tempraða hluta
Norður-Ameríku: Kanada, að undanskildum nyrztu héruðun-
um, Bandaríkjunum, N.-Mexico og Bahamaeyjum. Norðan til
í heimkynnum sínum er hún farfugl. Á vetrum dvelur hún í
suðurfylkjum Bandaríkjanna, Mexico, Mið-Ameríku, Vestur-
Indíum og Bermudaeyjum. I Ameríku hefir hún náðst allmörg-
um sinnum norðan og sunnan (í S.-Ameríku) við sín venjulegu
heimkynni, og í Evrópu hefir hún sézt 6 sinnum á Bretlandseyj-