Náttúrufræðingurinn - 1940, Blaðsíða 35
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
27
Steinsmýri í Meðallandi. Var gerð tilraun til þess að skjóta
hann, en það tókst ekki í það skiptið, en 28. s. m. var hann skot-
inn að Efri-Fljótum þar í nágrenninu. Bjarnfreð Ingimundar-
son, bóndi á Efri-Steinsmýri, sendi cand. phil. Magnúsi Björns-
syni fuglinn, og kom þá í ljós að þetta var ung turtildúfa. Hún
er nú á Náttúrugripasafninu í Reykjavík.
18. Vepja (Vanellus vanellus (L.)).
Kollsvík, V.-Barð. í bréfi til mín, dags. 30. 7. 1939, segir Hall-
dór Guðbjartsson, að vepjur hafi verið þar af og til allan
veturinn 1938—1939.
Nollur við Eyjafjörð (heimildarm. Kristján Geirmundsson).
10. marz 1939 var skotin þar vepja, og var hún send Krist-
jáni til uppsetningar. Það var fullorðinn karlfugl.
Grímsstaðir við Mývatn. I bréfi til Dr. Bjarna Sæmundssonar,
dags. 15. 3. 1938, segir Ragnar Sigfinnsson, að 13. marz
1938 hafi vepja verið að flækjast þar í kringum túnið.
Hornafjörður. í bréfi til mín, dags. 20. 1. 1940, telur Eymund-
ur Björnsson vepjur meðal flækinga, sem hann hafi séð
1939. Segir hann, að þær sjáist þar seinni part vetrar, helzt
eftir suðaustan rosa, en hverfi fljótt, ef verulega kólni.
Kvísker í Öræfum, A.-Skaft. I bréfi til cand. phil. Magnúsar
Björnssonar, dags. 24. 11. 1938, skýrir Sigurður Björnsson
frá því, að 23. nóv. 1938 hafi sézt þar vepja.
Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V.-Skaft. I bréfi til mín, dags. 12.
1. 1939, segir Bjarnfr.eð Ingimundarson, að allmikið hafi
þar sézt af vepjum það sem af sé vetrar, og séu þær nú
farnar að drepast úr hor.
Vestmannaeyjar (heimildarm. Þorsteinn Einarsson).
13. jan. 1938 sáust þar 3 vepjur saman, ein þeirra var þar
veturinn út, eða til 8. apríl að hún sást síðast.
23. des. 1938 komu vepjur til Vestmannaeyja í stórhópum,
í einum t. d. um 100. Um 12. jan. 1939 voru hóparnir að
mestu horfnir, en einn og einn fugl dvaldi þó fram á vor.
19. Áflogakragi (Philomachus pugnax (L.)).
Ungur karlfugl þessarar tegundar var skotinn í Vestmanna-
eyjum 20. ágúst 1938, og fékk ég hann fyrir milligöngu Þor-