Náttúrufræðingurinn - 1940, Qupperneq 26
18
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
8. Engjasvín (Crex crex (L.)).
Fugl þennan hefi ég einnig fengiS frá Þorsteini Einarssyni
kennara í Vestmannaeyjum. Fuglinn fannst dauður þar á staSn-
um 28. sept. 1938. Er það eini fugl þessarar tegundar, sem vart
hefir orðiS við hér á landi. Lýsing á honum, ásamt mynd, hefir
þegar verið birt í Náttúrufræðingnum,1) og verður hans því
ekki nánar getið hér.
II. SJALDSÉÐIR FUGLAR OG FLÆKINGAR.
1. Kráka (Corvus corone cornix L.).
13. apríl 1939 sá Þorsteinn Einarsson kráku í Vestmanna-
eyjum. Dvaldi hún þar um þriggja vikna tíma.
2. Bláhrafn (Corvus frugilegus frugilegus L.).
Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V.-Skaft. í bréfi til mín, dags. 12.
1. 1939, getur Bjarnfreð Ingimundarson þess, að meðal
annara flækinga hafi bláhrafnar sézt þar það sem af sé
vetrar.
Vestmannaeyjar (heimildarm. Þorsteinn Einarsson).
23. des. 1938 komu þangað ca. 10 bláhrafnar, sem dvöldu
þar fram í jan. 1939.
17. okt. 1939 sáust þar 2 bláhrafnar, og 1.—3. nóv. s. á.
ca. 10.
3. Stari (Sturnus vulgaris vulgaris L.).2)
Kollsvík, V.-Barð. (heimildarm. Halldór Guðbjartsson).
15. okt. 1939 sást þar 1 stari, sem dvaldi þar í 2—3 daga.
Skjaldfönn, N.-ísf. (heimildarm. Aðalsteinn Jóhannsson).
8. maí 1939 náðist þar 1 stari, sem var sleppt aftur eftir að
hann hafði verið merktur.
1) Finnur Guðmundsson: Fuglanýjungar. Náttúrufr., VIII. árg., 1938,
bls. 164—167.
2) Starar, sem náðst hafa hér á landi, og rannsakaðir hafa verið, hafa
allir tilheyrt þessari undirtegund. Þrátt fyrir það er náttúrlega ekki útilok-
að, að Stwmus vulgaris faroensis Feilden, sem heima á á Færeyjum, og
Sturnus vulgaris zetlandicus. Hartert sem heima á á Iljaltlandseyjum, sjá-
ist hér. Á móti því mælir þó, að báðar þessar undirtegundir virðast vera al-
gerðir staðfuglar, sem hingað til hvergi hafa sézt utan varpheimkynna sinna.