Náttúrufræðingurinn - 1940, Page 28
20
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ir miðjan apríl 1939 hafi sézt bókfinka í nokkra daga á Lamba-
vatni. Segir Eyjólfur, að hún hafi verið spök, og hafi því vel
verið hægt að athuga hana, svo enginn vafi sé, hvaða fugl það
hafi verið.
I bréfi til Árna Friðrikssonar mag. scient., dags. 20. 1. 1940,
skýrir Sigurður Arason á Fagurhólsmýri í Öræfum frá því, að
í apríl 1939 hafi verið þar fugl í nokkra daga, sem hann lýsir
þannig: „Fremur lítill en allbústinn, á stærð við steindepil eða
litlu stærri. Grár á baki, en rauðbrúnn á bringunni, vængirnir
með hvítum blettum. Höfuðið fagurblátt niður á háls, nema of-
an við nefrótina var svartur blettur, sem náði á að gizka miðja
vegu upp að augum. Fætur og nef gult. Nefið ca. 1 cm á lengd,
sívalt“. Hér getur ekki hafa verið um annan fugl að ræða en
bókfinku (karlfugl). Lýsingin tekur af allan vafa um það.
5. Fjallafinka (Fringilla montifringilla L.).
10. okt. 1938 skaut Kristján Geirmundsson fullorðinn karl-
fugl þessarar tegundar á Húsavík við Skjálfanda. Hafði fugl-
inn verið í fjörunni skammt frá laug, sem þar er.
Önnur fjallafinka sást hjá Kvískerjum í Öræfum 10. nóv.
1938 (samkv. uppl. í bréfi frá Sig. Björnssyni, Kvískerjum, til
cand. phil. Magnúsar Björnssonar, dags. 24. 11. 1938). Um
hana hefir þegar verið getið í Skýrslu Náttúrufræðifélagsins,1)
en þar er talið, að hún hafi sézt 17. nóv., en á að vera 10. nóv.
6. Norræni fuglakóngur (Regulus regulus (L.)).
(Regulus regulus (? regulus (L.))).
Karlfugl þessarar tegundar hefi ég fengið frá Benedikt Sig-
urðssyni, Flatey á Mýrum, A.-Skaft. Fuglinn fannst þar með
litlu lífsmarki 7. okt. 1939. Því miður verður ekki skorið úr því
með vissu, hvort fuglinn tilheyrir undirtegund þeirri (Regulus
r. regulus (L.)), sem heima á í Skandinavíu og annars staðar
á meginlandi Evrópu, enda þótt mestar líkur séu til þess, að
sú undirtegund slæðist hingað til lands. Má í því sambandi
benda á það, að norrænir fuglakóngar, sem náðst hafa á Fær-
1) Bjarni Sæmundsson: Nýjungar úr dýraríki íslands. Skýrsla um hið
íslenzka Náttúrufræðifélag. Félagsárin 1937 og 1938.