Náttúrufræðingurinn - 1940, Qupperneq 72
64
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
til gosanna í Mælifellshnjúk? Og ennfremur: Var hægt að gera
sér nokkra grein fyrir því, hvenær þessi gos hefðu farið fram,
miðað við aldur annara bergmyndana í fjöllunum umhverfis
Skagafjörð?
Til þess að geta skýrt þetta að nokkru í sambandi við þau gögn,
sem hér liggja fyrir, verð eg í sem styztu máli að rifja upp aðal-
drætti um berglagaskipun í Skagafirði, og sem þá gildir víða um
Norðurland vestan Skjálfandafljóts. Berglögunum má skipta í
þrjár deildir, mjög mismunandi að aldri — þótt auðvitað sé einn-
ig mismunur á aldri berglaganna innan deilda eftir afstöðu —.
Berglög neðstu deildar eru langelst, og ná þau víðast upp fyrir
mið fjöll, sumstaðar vantar jafnvel næstu deild ofaná, eða hún er
eydd í burtu. Milli efstu berglaga neðstu deildar, og ofaná þeim,
eru víða allþykk lög af móleitu móbergi, og jafnvel rauðleitur
sandsteinn (Hólabirða). I þeim lög^um eru sumstaðar skóga- og
jurtaleifar frá hlýindisloftslagi á þessum fyrri hluta af myndun-
arsögu íslands. Ofan á þessi lög hefir svo víða hlaðizt önnur deild,
sem er að mestu úr grágrýtiskenndu basalti, er nefna mætti há-
fjallagrágrýti. Þótt hún sé miklu yngri en deildin fyrir neðan, er
hún þó runnin áður en núverandi firðir og dalir fóru að skerast
niður. Þessi deild myndar því yfirborð háfjallanna, þar sem henn-
ar á annað borð gætir. Þriðju deildarinnar gætir aðeins til heiða
og jökulhálendisins, hefir þar hlaðizt ofan á miðdeildina þykk
myndun úr móbergi og grágrýtislögum, og er sá hlutinn langsam-
lega yngstur, ekki myndaður fyrr en á jökultíma, og hefir jafnvel
fengið smáviðbót af hraunum, eftir að honum lauk.
Ef nú er athuguð undirstaða Mælifellshnjúks, þá heyrir öll
Hamraheiðin til hinni fornu basaltmyndun. Á því tímabili, er leið,
þar til nýrri berglög bættust ofan á, hafa orðið á henni nokkrir
þverbrestir, frá austri til vesturs, og bergflekarnir missigið lítið
eitt, en sem heild virðist hún hafa snarazt til suðurs og suðvesturs,
því þannig hallar flestum hennar sérkennilegu bergpöllum. Ofaná
hana hafa svo byggzt Mælifellshnjúkur að norðan en Járnhryggur
er sunnar dregur. Virðist undirstaða Járnhryggs hafa lagzt mis-
tækt ofan á heiðina, og í neðstu lögum hans kennir móbergs og
rauðasteinsmyndana. Það eru deildaskilin milli neðstu deildar og
þeirrar næstu, enda efri lög Járnhryggs með ágætum einkennum
háfjallagrágrýtis. Þegar svo Mælifellshnjúkur er athugaður, sést,
að norðanvert við Tröllaskarð vottar fyrir samskonar bergi í und-
irstöðu hans og í Járnhrygg, þótt þar liggi það nokkru lægra, en