Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 22
„HANN AFI MINN E R BÚINN A Ð FLYTJA SÉR AÐRA MÖMMU'
brúðuforeldranna (sjá dæmi í 6. ramma) eða að afinn sé pabbi pabbans og amman sé
mamma brúðumömmunnar. í Töflu 4 kemur fram að svo til allar villurnar, sem 6 ára
og eldri börn gera, eru einmitt af þessu tagi.
Tafla 4 Tíðni og tegundir villna í svörum við spurningunum: „Er dúkkuafi pabbi einhvers?" og „Er dúkkuamma mamtna einhvers?"
4 ára 5 ára 6 ára 7 ára 8 ára Alls
N=23 N=23 N=21 N=13 N=10 N=90
„Nei." eða „Ég veit það ekki." 78% 35% 9% 0% 10% 32%
Afi er pabbi pabbans en
amma er mamma mömmu 4% 17% 24% 23% 10% 15%
Afi og amma eru pabbi og
mamma beggja foreldranna 0% 39% 62% 69% 80% 43%
Aðrar villur 17% 9% 5% 8% 0% 9%
c) 3. þrep, 8-9 ára börtt
Öll þau hugtök, sem hér er fjallað um, eru
innan þeirra marka sem rannsóknin
spannaði.
Bam á þessu þrepi færir sig áreynslu-
laust frá sjónarhorni eins fjölskyldu-
meðlims til annars og áttar sig á vensl-
um þeirra innbyrðis þó þau séu allt önn-
ur en vensl þessara ættingja við barnið
sjálft.
Börnin ráða nú einnig við spurn-
ingar varðandi vensl í brúðufjölskyld-
unni” (sjá dæmi í 7. ramma).
nú afstæö, gagnkvæm og gegnvirk, a.m.k.
7. rammi
Jón 8:2.
S: Hru (dúkku)afinn og amman pabbi og
mamma e-s?
J: Já afinn er pabbi pabbans og amman er
mamma hans.
S: Gætu þau verið pabbi og mamma Hildar
(brúðumömmunnar)?
J: Nei, maður getur ekki giftst systkinum
sínum.
11 Til þess að teljast rétt, þurfti annars vegar að koma fram í svörum barnsins að brúðuafi og amma væru pabbi og
mamma annars hvors brúðuforeldrisins, og hins vegar að þau gætu þar með ekki verið foreldrar hins. Sum
börnin á 2. þrepi sögðu að afinn væri pabbi pabbans og amman mamma mömmunnar. Þá var gengið eftir þvf
hvort barnið teldi þennan afa og þessa ömmu vera hjón eða búa saman og svörin talin rétt ef barnið sagði að
þau væru ekki hjón. Þetta síðastnefnda svaramynstur kom þó sárasjaldan eða aldrei fyrir.
20