Morgunblaðið - 02.11.2010, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2010
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Árásirnar átvíbura-turnana í
New York og her-
málaráðuneytið í
Washington fyrir
tæpum áratug
voru viðurstyggi-
legar og fordæmdar víðast.
Þann dag sem ódæðið var
framið var oftast haft á orði
að fátt yrði samt í heiminum
eftir það. Það reyndist rétt.
En hvernig horfir myndin við
frá sjónarhorni hermd-
arverkamannanna og þeirra
sem þjálfuðu þá og sendu til
árásarinnar?
Sjálfsagt telja þeir að að-
gerðin hafi heppnast nær full-
komlega ef frá er talið að hug-
rakkir farþegar einnar
þotunnar náðu að koma í veg
fyrir að henni væri steypt sem
eldsprengju á Hvíta húsið eða
Þinghúsbygginguna. Þús-
undir saklausra borgara
týndu lífi í aðgerðinni. Sá
mikli skaði varð ekki endir
heldur fremur upphaf. Hefnd-
araðgerðir og „fyrirbyggjandi
aðgerðir“ fylgdu í kjölfarið og
þar særðist og dó margur sem
átti ekki sökótt við neinn. En
málinu lauk heldur ekki þar.
Óttinn við hryðjuverk tók sér
bólfestu í brjósti almennra
borgara víða um heim og hef-
ur ekki þaðan vikið. Og við-
brögð yfirvaldanna hafa verið
margvísleg og valdið almenn-
ingi í heiminum ómældum
óþægindum, ekki síst flug-
farþegum og ekki þarf að
spyrja um útgjaldahliðina.
Auðvitað er ekki hægt að
útiloka að umfangsmikil leit á
farþegum og í farangri hafi
bjargað mannslífum, en ekki
hafa þó enn borist fréttir um
að sprengjur hafi fundist við
vopnaleit. Vissu-
lega má vænta
þess að fæling-
armáttur öryggis-
aðgerða skýri það
að einhverju leyti.
En það er óneit-
anlega ekki fallið
til þess að skapa traust á ör-
yggisþættinum, að síðustu
allmargar tilraunir til að
sprengja flugvélar í loft upp
hafa misheppnast vegna þess
eins að sprengjubúnaðurinn
virkaði ekki eins og til hafði
verið stofnað. Sprengjurnar
höfðu í öllum tilvikum „komist
í gegn“ í skósólum, nær-
buxum eða í póstfarangri far-
þegaflugvéla. Jafnvel þótt
faðir eins tilræðismannsins
hefði gengið svo langt að vara
öryggisstofnanir við syni sín-
um dugði það ekki til. Sá
komst um borð með búnað
sinn og náði að ræsa hann að
hluta.
Í Bandaríkjunum einum
hefur verið stofnað til nýrra
leynistofnana þar sem hundr-
uð þúsunda manna starfa og
framleiða tugi greinargerða á
dag um margvíslegar hættur
sem uppi eru. Hætt er við að
margt geti týnst í slíkum
haug. Og einnig er líklegt að
persónuleg réttindi borg-
aranna minnki og öryggis-
heimildir til að bregðast við
hermdarverkamönnum verði
misnotaðar gagnvart þeim.
Þess sjást þegar merki.
Dæmið sem hinn breski
Brown gaf lofar ekki góðu, en
hann setti Ísland á lista yfir
10 ógnvænlegustu hryðju-
verkaöflin í heiminum þá
stundina og þar skipaði
Osama Bin Laden efsta sætið.
Honum hlýtur að hafa verið
skemmt.
Óttinn við hryðju-
verk hverfur ekki
þrátt fyrir yfirþyrm-
andi öryggis-
aðgerðir}
Götótt eftirlit
Ísland hefur ítuttugu mán-
uði setið uppi með
ríkisstjórn sem
hefur helst afrek-
að það að hafa
dregið máttinn úr
atvinnulífinu og aukið á
vanda heimilanna. Svo að
segja á öllum sviðum hefur
ríkisstjórninni tekist að fara í
þveröfuga átt við það sem
æskilegt hefði verið og afleið-
ingin er verra efnahags-
ástand og lakari staða heim-
ilanna í landinu en ástæða var
til.
Við þessar aðstæður er já-
kvætt að fram komi tillögur
sem eru nánast alger and-
hverfa stefnu ríkisstjórn-
arinnar. Þingsályktun-
artillagan sem
sjálfstæðismenn
boðuðu í gær að
lögð yrði fram á
Alþingi á fimmtu-
dag yrði mikið
framfaraspor
næði hún fram að ganga. Þar
er gert ráð fyrir að afnema
skattahækkanir ríkisstjórn-
arinnar, ýta undir atvinnu-
sköpun og bæta stöðu skuld-
ugra heimila.
Tillögurnar eru kynntar
undir yfirskriftinni „Gefum
heimilum von“ og er ekki van-
þörf á eftir langvarandi von-
leysi núverandi ríkisstjórnar.
Heimili landsins geta ekki
lengur búið við óbreytta
stjórnarstefnu. Þau eiga skil-
ið að öðlast nýja von.
Hugmyndirnar hafa
þann kost að vera
andhverfa stefnu
ríkisstjórnarinnar}
Tillögur að stefnubreytingu Á
dögunum lét Mohamed El-Erian,
framkvæmdastjóri stærsta skulda-
bréfasjóðs heims, þau orð falla á
ráðstefnu í New York að gjaldþrot
gríska ríkisins væri óumflýjanlegt.
Skuldir gríska ríkisins nema nú um 120% af
landsframleiðslu og miðað við efnahagsáætlun
stjórnvalda í tengslum við neyðarlán ESB og
AGS verður hlutfallið komið í 150% innan þriggja
ára. El-Erian benti á að efnahagsáætlunin sner-
ist fyrst og fremst um niðurskurð og hann einn
og sér leysir ekki sjálfan skuldavandann. Til þess
þarf hagvöxt og fátt bendir til þess að hann verði
mikill í Grikklandi á næstu árum. Ekki síst í ljósi
þess að þarlendir stjórnmálamenn héldu þannig
á málum að aðildin að evrusvæðinu hefur grafið
verulega undan samkeppnishæfni hagkerfisins.
Sem betur fer datt engum ráðstefnugesti í hug
að spyrja El-Erian hvernig hann mæti stöðu mála hér á
landi.
Ástæðan fyrir því er einföld: Skuldir hins opinbera
nema um 100% af landsframleiðslu í fyrra séu lífeyr-
isskuldbindingar taldar með. Þetta hlutfall mun fara
hækkandi á næstu árum þar sem áætlað er að ríkissjóður
verði áfram rekinn með halla á næstu árum þó svo að mik-
ill niðurskurður sé ráðgerður. Útlit er fyrir að hagvöxtur
verði neikvæður í ár og verði jafnframt enginn á næsta
ári. Þetta þýðir einfaldlega að skuldastaðan versnar enn
frekar.
Með öðrum orðum: Skuldastaða ríkisins getur vart tal-
ist sjálfbær og þær efnahagsáætlanir sem
byggjast á því að skuldahlutfallið verði komið í
60% af landsframleiðslu innan fárra ára eru
byggðar á mikilli bjartsýni, svo ekki sé sterkar
að orði kveðið.
Þó svo að samkeppnisstaða íslenskra út-
flutningsfyrirtækja hagnist á lágu raungengi
krónunnar hafa helstu drifkraftar hagvaxtar –
fjárfesting og einkaneysla – fjarað út. Lítill
áhugi virðist vera meðal ráðamanna og þeirra
sem véla með peningamálastefnuna að magna
upp þessa krafta.
Allt tal um rísandi land undir slíkum kring-
umstæðum er fyrst og fremst til marks um
undarlega kímnigáfu. Nær lagi er að líta aftur
til sögunnar til þess að fá innsýn í þann vanda
sem við er að etja. Í fljótu bragði virðist
ástandið á Íslandi líkjast þeim efnahagsvanda
sem kom upp í sumum ríkjum Rómönsku-Ameríku við
upphaf níunda áratugarins. Gríðarlegur skuldavandi í
kjölfar mikils innflæðis á fjármagni sem átti rætur sínar
að rekja til breytinga í alþjóðahagkerfinu. Eftir að fjár-
magnið hætti að flæða stóðu þessi ríki uppi afar skuldsett
og hagkerfi þeirra voru illa búin til þess að laga sig að
breyttu jafnvægi. Við tók áratugur skuldakreppu, at-
vinnuleysis og stöðnunar og á endanum þurfti að koma til
víðtækra skuldbreytinga í samstarfi við alþjóðastofnanir
og bandarísk stjórnvöld. Því miður virðumst við að vera
feta sama veg, hvort sem okkur líkar betur eða verr.
ornarnar@mbl.is
Örn
Arnarson
Pistill
Ástandið er vont og fer versnandi
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þ
róunin í Grímsvötnum að
undanförnu er mjög lík
því og var í aðdraganda
eldgossins 2004. Ef
hlaupið kemur eldgosi af
stað nú, á sama tíma í ferlinu og fyrir
sex árum, gæti það hafist síðdegis í
dag.
„Atburðarásin núna er furðu-
lega lík atburðunum 2004. Því er lík-
legt að ef til goss kemur verði það
svipað og þá,“ segir Páll Einarsson,
prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla
Íslands.
Vísindamenn gátu séð á jarð-
skjálftamælum 28. október 2004 að
hlaup væri byrjað að grafa um sig í
Grímsvötnum. Hlaupið niður
Skeiðará hófst síðan fyrir alvöru að-
faranótt 30. október. Það kom af stað
eldgosi sem hófst að kvöldi 1. nóv-
ember. Við hlaup úr vötnunum lækk-
aði vatnsborð Grímsvatna og þar með
fargið ofan á kvikuhólfinu og þegar
kvikuhólfið er nálægt brotmörkum
getur vatnsborðslækkun dugað til
þess að hólfið bresti, kvika leitt til yf-
irborðs og gos hafist. Á vef Jarð-
fræðistofnunar er minnt á að talið sé
að þetta hafi gerst 1922 og 1934 og
margoft á 19. öld. Við eldgosið 2004
var í fyrsta skipti hægt að staðfesta
þessa kenningu Sigurðar Þórarins-
sonar jarðfræðings.
Kvikusöfnun í sex ár
Páll Einarsson segir að eldstöðin
hafi safnað kviku frá því eftir eldgosið
2004. Fyrr á þessu ári hafi kviku-
þrýstingur verið kominn upp fyrir
það sem var fyrir sex árum. Því hafi
vísindamenn síðustu mánuði talið að
eldstöðin væri tilbúin að gjósa við
næsta hlaup, öfugt því sem var við lít-
ið hlaup sem varð fyrir tveimur árum.
Íshellan virðist hafa skaddast í
Gjálpargosinu 1996 og Grímsvatna-
gosinu 2004 þannig að jökullinn hefur
sjaldan náð að safna vatni í stór
hlaup. „Nú hefur safnast þarna upp
vatn í tvö ár þannig að hlaup var
fyrirsjáanlegt. Það er bara spurning
hvort hlaupið myndi virka eins og
gikkur á eldstöðina, eins og 2004,“
segir Páll.
Talið er að hlaupið í Gríms-
vötnum hafi byrjað síðdegis á
fimmtudag en það var staðfest á
föstudag. Hlaup í Gígjukvísl hófst
síðan fyrir alvöru í fyrradag, 31.
október. Hlaupið hefst því á sama
mánaðardegi eða degi seinna en fyrir
sex árum. Það er væntanlega til-
viljun.
Mælingar Veðurstofunnar
benda til að hlaupið vaxi hraðar nú en
2004 og það nái hámarki á 3-4 sólar-
hringum. Þá kemur jökulvatnið nú
niður Gígjukvísl í stað Skeiðarár
vegna breytinga sem orðið hafa á
jökulsporðinum.
Óvanalega snöggt gos
Ef þróunin heldur áfram í sama
takti og 2004 má búast við að eldgos
hefjist í Grímsvötnum í dag. Þegar
þetta er skrifað er eldstöðin þó ekki
farin að senda nein merki um það.
Páll segir að ef til goss kemur
megi búast við að það verði mest
fyrstu tvo sólarhringana en svo dragi
smám saman úr og vísar til reynsl-
unnar frá 2004. Talið er að gosinu
hafi lokið að kvöldi 5. nóvember eða
snemma að morgni 6. nóvember
2004. Var þetta óvanalega snöggt
gos því Grímsvatnagos hafa oft
staðið yfir frá einni til þremur
vikum.
Vegagerðin telur að brýrnar á
Gígjukvísl ráði við jökulflóðið,
ef það verði svipað og áður.
Öskustrókurinn getur
hins vegar truflað
flugumferð, eins og
gerðist 2004.
Atburðarásin lík að-
draganda gossins 2004
Hlaup getur komið af stað gosi
Grímsvötn
Sk
ei
ða
rá
rj
ök
ul
l
Hábunga
Þórðarhyrna
Grænalón
Öræfa-
jökull
Skaftafell
Hlaup í Gígjukvísl
G
íg
ju
kv
ís
l
Sk
ei
ða
rá
1 Gos hefst undir jökli
2 Gosið brýst upp úr jöklinum
3 Eldvarp nær upp úr vatnsborði
Berggrunnur Gosrás,hraunkvika
Sigketill
Jökull
Bræðslu-
vatn
Bólstraberg
Vatn brýst
undan jökli í
jökulhlaupi
og minnkar
þrýsting á
gosrásina
Berggrunnur
Gjóska
Berggrunnur
Gjóska
breytist
síðar í
móberg
Hraun getur
farið að renna
Vitað er um að minnsta kosti
60 gos í eldstöðvakerfi Gríms-
vatna síðustu 800 ár og hafa
flest þeirra orðið innan Gríms-
vatnaöskjunnar. Er þetta því
virkasta eldstöðin á Íslandi.
Eldvirkni var í lágmarki á
árunum 1938 til 1996. Aðeins
er staðfest að smágos varð
1983 en það er talið upphafið
að nýju óróatímabili.
Mikið eldgos varð á árinu
1996 í Gjálp, 10 km norðan
Grímsvatna, ásamt miklum
flóðum sem lokuðu Hring-
veginum. Síðan urðu gos í
Grímsvötnum í desember
1998 og nóvember
2004.
Hefðbundin Gríms-
vatnagos eru sjaldnast
stór en geta verið öflug
skamma hríð í upp-
hafi. Gosmökkurinn
getur truflað flug-
umferð.
Virkasta eld-
stöð landsins
YFIR 60 GOS Í ELD-
STÖÐVAKERFI GRÍMSVATNA
Páll
Einarsson
prófessor