Morgunblaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
8
8
3 5 9
1 3 7 5 6
7 3 1 4
6 1
5
9 6 3 4 8
1 9 4 3
5 4 6 7
1 5
1 8 3 4 9
1
8 6
8 4 9 7
3 5 8
9 1 6 3 5
9 3
5
2 1 9
6 8 5
8 2
1 6 4
6
7 1 5 2
1 6 2 7
4 8 3 2 9 5 7 1 6
5 6 2 1 7 4 9 8 3
7 1 9 6 3 8 5 2 4
9 7 1 3 6 2 4 5 8
2 3 8 5 4 9 1 6 7
6 5 4 8 1 7 3 9 2
8 2 7 9 5 3 6 4 1
3 9 6 4 8 1 2 7 5
1 4 5 7 2 6 8 3 9
4 1 5 2 6 8 3 7 9
2 6 3 9 5 7 8 4 1
9 7 8 4 3 1 6 2 5
1 9 4 5 8 2 7 3 6
6 8 7 1 4 3 5 9 2
5 3 2 6 7 9 1 8 4
3 5 6 7 9 4 2 1 8
8 4 1 3 2 5 9 6 7
7 2 9 8 1 6 4 5 3
4 8 6 5 7 1 9 3 2
3 7 2 6 9 4 8 1 5
1 5 9 2 3 8 7 4 6
7 9 4 3 8 6 2 5 1
6 1 5 9 4 2 3 7 8
2 3 8 1 5 7 6 9 4
5 6 7 8 1 3 4 2 9
9 2 3 4 6 5 1 8 7
8 4 1 7 2 9 5 6 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 2. nóvember,
306. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra
yður illt, ef þér kappkostið það sem
gott er? (1Pt. 3, 13.)
Víkverji hefur áður á þessumvettvangi kvartað undan
Hringekjunni, skemmtiþætti Sjón-
varpsins á laugardagskvöldum. Um-
gjörðin kringum þáttinn er ekki
nógu góð og tengingar milli atriða
engar. Hvernig væri t.d. að opna
þessa fáránlegu leikmynd, þannig að
stjórnandinn gæti vippað sér á milli
leiksviða og spjallað þar við lista-
menn? Eða fá áhorfendur í sal?
Hljómsveitin gæti þess vegna verið
stödd á Hawaii. Einnig er þessi leit
að hæfileikaríkasta Íslendingnum
heldur hallærisleg. Sú keppni er að
auki rangnefnd, þar sem greinilega
er verið að leita að besta tónlist-
arfólkinu og engu öðru. Ari Eldjárn
heldur þessum þætti uppi og ein-
staka grínatriði, enda ætti Gói að
halda sig frekar við leiklistina en
ekki þáttastjórnun. Í síðasta þætti
hló Víkverji aðeins einu sinni, eða
þegar Gói gerði grín að föður sínum,
biskupnum, sem fór á B5. Peðið var
þar skammt frá og átti sennilega að
vera Þór blessaður Saari. Finnst
Víkverja það heldur ódýrt að gera
grín að vaxtarlagi fólks.
x x x
Víkverji veltir fyrir sér hvort þaðer vegna 80 ára afmælis Rík-
isútvarpsins sem Sjónvarpið eyðir
mestu púðri í landsbyggðina þennan
veturinn. Er þá vísað til spurn-
ingakeppni sveitarfélaganna í Út-
svari, flækingsins milli byggða í
Hringekjunni og umfjöllunar í
Landanum. Að minnsta kosti þýðir
lítið fyrir landsbyggðarfólk að
hringja í Efstaleiti og kvarta.
Útsvar hefur fyrir löngu sannað
skemmtanagildi sitt og margt
skemmtilegt og áhugavert efni hefur
verið í Landanum, þætti Gísla Ein-
arssonar og félaga á fréttastofu
RÚV. Sem landsbyggðarmaður að
upplagi fagnar Víkverji þessari
áherslubreytingu í Efstaleitinu, að
Hringekjunni undanskilinni. Á með-
an reyta lattelepjandi kaffi-
húsaspekingarnir úr 101 Reykjavík
hár sitt og verða að láta sér Silfur
Egils duga. Meira að segja Egill
Helgason er farinn að fara út fyrir
borgarmörkin í Kiljunni. Er þá Bleik
brugðið! víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gustur, 4 konungs,
7 höfum í hyggju, 8 gróði, 9
beisk, 11 stund, 13 stakt, 14
get um, 15 himna, 17
stjórna, 20 stór geymir, 22 á,
23 þunnur ís, 24 lóga,
25 siglutré með seglabúnaði.
Lóðrétt | 1 bjart, 2 flennum,
3 rekkju, 4 hestur, 5 jurt, 6
þrautgott, 10 rándýr, 12
greinir, 13 málmur, 15 titra,
16 kjáni, 18 þor, 19 þátttak-
andi, 20 þroska, 21 reykir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 snjókoman, 8 vegur, 9 goðum, 10 úra, 11 tjara, 13 nýr-
um, 15 skafa,
18 salli, 21 tík, 22 signa, 23 eiður, 24 niðurlags.
Lóðrétt: 2 negra, 3 ótrúa, 4 organ, 5 auðar, 6 hvet, 7 ámum, 12
rif, 14 ýsa,
15 sess, 16 angri, 17 ataðu, 18 skell, 19 liðug, 20 iðra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ungir menn.
Norður
♠G62
♥K97654
♦–
♣KG43
Vestur Austur
♠K9 ♠854
♥Á10 ♥3
♦986542 ♦G1073
♣Á86 ♣D10752
Suður
♠ÁD1073
♥DG82
♦ÁKD
♣9
Suður spilar 6♥.
Alan Sontag og Jeff Meckstroth
mættust á HM í Stokkhólmi 1983, þá
ungir menn. Makkers Sontags í norður
vakti á multi 2♦ og Sontag spurði með
2G. Svarið var 3♦, sem sýndi „góða“
veika tvo í hjarta. Sontag íhugaði að
spyrja um lykilspil, en svarið 5♥ (tvö
lykilspil) myndi setja norður í sagnhafa-
sætið og Sontag hugnaðist ekki útspil í
spaða. Hann lokaði því augunum og
stökk í 6♥.
Meckstroth var í vestur, doblaði og
lagði niður ♥Á. Sontag opnaði augun og
kreisti fram brosgrettu. Á meðan hugs-
aði Meckstroth stíft. Langstökkið í
slemmu benti til að sagnhafi ætti eyðu
og Meckstoth og vildi ekki láta trompa
♣Á. Hann spilaði því öðru hjarta. Sontag
henti þá spöðum niður í tígul, trompsvín-
aði fyrir ♠K og losaði sig við laufin fjög-
ur niður í spaða og tígul: tólf slagir.
2. nóvember 1913
Morgunblaðið kom út í fyrsta
sinn. Í ávarpi til lesenda sagði
Vilhjálmur Finsen ritstjóri:
„Dagblað það sem hér byrjar
starf sitt á fyrst og fremst að
vera áreiðanlegt, skemmtilegt
og lipurt ritað fréttablað.“
Hvert eintak kostaði 3 aura. Í
upphafi voru áskrifendurnir
38 en ári síðar á annað þúsund.
2. nóvember 1914
Lög um notkun bifreiða voru
staðfest. Enginn mátti stýra
bifreið nema hann væri „fullra
21 árs að aldri“. Í þéttbýli
mátti ökuhraði aldrei vera
meiri en 15 kílómetrar á
klukkustund en 35 kílómetrar
utan þéttbýlis.
2. nóvember 1961
Borgarstjórn Reykjavíkur
samþykkti að „gera var-
úðarráðstafanir til almanna-
varna“. Þetta var gert „vegna
yfirvofandi geislunarhættu og
ófriðarhættu“. Næstu tvo
mánuði á undan höfðu Rússar
sprengt þrjátíu kjarnorku-
sprengjur í tilraunaskyni.
2. nóvember 1976
Punktur, punktur, komma
strik, fyrsta skáldsaga Péturs
Gunnarssonar kom út. Útgef-
andinn sagði bókina fjalla um
„borgarbarnið Andra, líf hans
og umhverfi“.
2. nóvember 2000
Verslunarmiðstöðin Gler-
ártorg á Akureyri var opnuð.
Þar eru um tuttugu verslanir
af ýmsu tagi í níu þúsund fer-
metra húsnæði sem byggt var
á hálfu ári.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég ætla að leggja mitt af mörkum til að gera
þriðjudaga að meiri gleðidögum, mér hefur fund-
ist þeir frekar daufir það sem af er ári,“ segir
Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri Eymundsson, sem
heldur hátt í 200 manna kokteilboð í kvöld í tilefni
fertugsafmælis síns. „Það ber að grípa hverja
ástæðu til að gleðjast,“ segir Bryndís sem heldur
jafnan upp á afmælið, hvort sem er á sjálfan af-
mælisdaginn eða síðar, eins og hún fékk að reyna
þegar hún var fimm ára. „Þá fluttu foreldrar mín-
ir þremur dögum fyrir afmælið mitt í hálfklárað
raðhús sitt í Efra-Breiðholti og sömdu við mig um
að fresta afmælinu mínu fram í desember. Mér þótti þetta sjálfsagt
mál, sem sýnir náttúrlega bara hvað ég er ótrúlega samningsfús.“ Af-
mælisdagurinn hlaut enn meira vægi í huga Bryndísar um 10 ára ald-
urinn, þegar hún uppgötvaði við lestur Aldarinnar okkar að hún deil-
ir afmæli með Morgunblaðinu, sem kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Hún segist alla tíð hafa verið upp með sér yfir þeim tengslum. Auk
þess að undirbúa afmælisdaginn er Bryndís á kafi þessa dagana við að
undirbúa jólabókaflóðið í Eymundsson. „Maður er kominn í jólaham,
það stefnir í mjög góð bókajól og miklu betri barnabókajól en í fyrra.“
Bryndís Loftsdóttir vörustjóri 40 ára
Samningsfúst afmælisbarn
Nýirborgarar
London
Eyja Ósk fædd-
ist 2. október
kl. 13.55. Hún
vó 3.140 g og
var 45,5 cm
löng. Foreldrar
hennar eru
Lauren og Xav-
ier Þór Ful-
bright.
Reykjavík
Brynjar Smári
fæddist 10. júní
kl. 00.28. Hann
vó 3.435 g og
var 52 cm lang-
ur. Foreldrar
hans eru Gunn-
hildur Ásta
Traustadóttir
og Baldur
Helgi Möller.
Flóðogfjara
2. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.46 3,3 9.00 1,1 15.06 3,6 21.30 0,8 9.15 17.09
Ísafjörður 4.56 1,8 10.59 0,6 17.01 2,0 23.36 0,4 9.33 17.01
Siglufjörður 0.38 0,3 7.08 1,2 12.59 0,4 19.18 1,2 9.16 16.43
Djúpivogur 5.51 0,8 12.14 2,0 18.25 0,8 8.47 16.35
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Hrútur Þú kannt að finna fyrir truflunum í
dag, en engu að síður jákvæðum truflunum.
Spurðu fólk spurninga þar sem svarið er
nokkuð opið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Stundum hindrar það þig að einbeita
þér um of að smáatriðunum. Láttu aðstæður
ekki leiða þig út í hluti sem þér eru á móti
skapi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Óttinn er ekki óvinur, hann er bara
skilaboð eins og þjófavörn sem kviknar á við
minnsta áreiti. Verkefni sem eru hagstæð
starfsframa þínum fara í gang.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú sýnir af þér rausnarskap og verð-
ur einstakrar heppni aðnjótandi í kjölfarið.
Veldu viðfangsefnin af kostgæfni, þannig að
hjálp þín skili sér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gerðu ferðaáætlanir fyrir framtíðina
núna. Farðu í göngutúr ef þér finnst blóð-
þrýstingurinn vera að hækka.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hafðu ekki áhyggjur þótt pyngjan sé
létt því þú hefur svo mikið að gefa öðrum af
sjálfum þér. Að vera í núinu er arðvænlegt
fjárhagslega, tilfinningalega og persónulega.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér verður gert tilboð sem hljómar þann-
ig að það er of gott til að vera satt. Líttu í eig-
in barm; ekki skamma aðra. Nú finnst þér þú
í meiri tengslum við umhverfið en áður.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þegar þú leyfir andagiftinni að
ráða för, lendirðu á óvæntum stað þar sem
galdrar gerast. Segðu hvað þér finnst en ekki
reyna að þröngva skoðunum þínum uppá
aðra.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er ákaflega dýrmætt að geta
haldið sér í takti við umhverfi sitt og unnið úr
þeim jákvæðu straumum sem leika um lífið.
Reynið að sýna öðrum kurteisi og þolinmæði.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vertu auðmjúk/ur því það þurfa
allir að leggja sitt af mörkum til að halda frið
innan fjölskyldunnar. Einhver nákominn þarf
virkilega á hjálp þinni að halda.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert til í allt, jafnvel að flytja.
Leyfðu málum bara að hafa sinn gang og
njóttu lífsins með bros á vör.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er nauðsynlegt að eyða tíma með
ungviðinu og um leið að finna barnið í sjálfum
sér. Reyndu að halda aftur af þér í eyðslunni.
Stjörnuspá
Staðan kom upp í A-flokki Haustmóts
Taflfélags Reykjavíkur sem lauk fyrir
skömmu. Daði Ómarsson (2.172) hafði
hvítt gegn Sigurbirni Björnssyni
(2.300). 42. Hxf4! Hfe8 hrókurinn var
friðhelgur vegna mátsins uppi í borði.
Framhaldið varð eftirfarandi: 43. Hd4
g5 44. Hxa3 h5 45. b4 Kg7 46. b5 Hb8
47. Hg3 Kf6 48. a4 Rc6 49. Hd2 Ra5
50. Hf2+ Kg6 51. Hgf3 He5 52. Hf7
g4 53. h4 Hb6 54. Hxd7 g3 55. Hff7
He3 56. Hg7+ Kh6 57. Hge7 Hb3+
58. Kc2 Hf6 59. Hh7+ Kg6 60. Be4+
og svartur gafst upp. Lokastaða efstu
manna í A-flokknum varð þessi: 1.-3.
Sverrir Þorgeirsson (2.223), Sig-
urbjörn Björnsson (2.300) og Guð-
mundur Kjartansson (2.373) 6 vinn-
inga af 9 mögulegum. 4.-5. Daði
Ómarsson (2.172) og Þröstur Þórhalls-
son (2.381) 4½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.