Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.06.2006, Qupperneq 25

Sagnir - 01.06.2006, Qupperneq 25
w • . . ofjfurýannstýaffejtJoaö sem Jehnýannst Jjctt. ^P^istýrœÖifej vaffninj oy ffaft striö Breytingar innan myndlistar við upphaf áratugarins voru að stórum hluta sprottnar af þeirri ólgu sem þá var í heiminum. Af erlendum vettvangi var Víetnamstríðið ofarlega í hugum manna árið 1972. Stríðið hafði aldrei verið boðað fonnlega en engu að síður staðið frá því árið 1954. Stríðið stóð á milli kommúnista í noröurhluta landsins og andkommúnista í suðurhluta þess sem studdir voru af Bandaríkjunum.2 Almenningur fylgdist með stríðinu meðal annars í íslenskum dagblöðum á árinu 1972. Ahugavert er að sjá hvemig söguskoðunin er mismunandi eftir dagblöðum, sérstaklega Þjóðviljanum og Morgunblaðinu. Samkvæmt Morgunblaðinu leiddi Nixon þjóð sína í stríði gegn kommúnistum í Norður-Víetnam og sérstaklega var greint frá sigmm Suður-Víetnama.3 Annað má lesa í Þjóðviljanum sem hélt uppi miklum áróðri gegn Víetnamstríðinu og áleit Nixon stríðsglæpamann. Hryðjuverk vom áberandi í heiminum árið 1972. Hrottalegust þeirra má vafalaust telja atburði á Ólympíuleikunum í Milnchen þar sem níu ísraelar vom teknir í gíslingu af átta palestínskum skæruliðum. Harmleiknum lyktaði með því að sextán lágu í valnum, gíslamir níu, sex af skæmliðunum og einn lögreglumaður.4 Greint var ítarlega frá atburðinum í íslenskum dagblöðum en utan fréttaskýringa af atburðunum í Míinchen, þar sem Arabar kröfðust lausnar tvö hundruð palestínskra fanga í ísrael í stað gíslanna er teknir vom á leikunum er ekki lögð mikil áhersla á deilur milli ísraela og Araba. Almenningur hefur almennt haft mikinn áhuga á heimsmeistaramótinu í skák sem haldið var sumarið 1972 í Laugardalshöll þegar þeir Spassky og Fischer áttust við. Eins og flestum er kunnugt lyktaði þessu svokallaða einvígi aldarinnar með sigri Fischers.5 Nixon Bandaríkjaforseti og Brezhnev, forseti Sovétríkjanna, boðuðu nokkra þíðu í köldu stríði á fundum sem haldnir vom í maí 1972, þar sem áherslur vom á takmarkanir á gereyðingarvopnum og umhverfis- og mengunarmál. Þrátt fyrir það mátti ekki sjá að þítt væri á milli skákmeistaranna tveggja, sem töluðust víst aldrei við á meðan einvíginu stóð.6 Áhugavert er hvemig Morgunblaðið fylgdist með Fischer leika á móti Spassky og hvemig því var öfugt farið í Þjóðviljanuml Einvígið markaði nokkur þáttaskil í sögu skáklistarinnar og í köldu stríði hafa margir sjálfsagt álitið sigurinn merkilegan á táknrænan hátt í baráttu stórveldanna í austri og vestri. Af innlendum vettvangi var fiskveiðilögsaga Islendinga og deilan við Breta i því sambandi án efa mesta hitamálið. Þann 15. febrúar 1972 var á Alþingi þingsálykmnartillaga um útfærslu íslensku fiskveiðilögsögunnar í fimmtíu sjómílur samþykkt einróma með atkvæðum allra sextíu þingmanna.7 Sjá má að mikil samstaða hefur verið um málið innan allra stjómarflokka en vinstri stjóm var starfandi í landinu árið 1972. Þann 1. september 1972 var fiskveiðilögsagan færð út en það reyndist ekki neinn leikur að fá hana viðurkennda. Mikill hiti varð á milli íslendinga og Breta vegna málsins, sem var enn í hnút í lok ársins 1972. Forseti íslands, Kristján Eldjám, og forsætisráðherra, Ólafur Jóhannesson, ræddu landhelgismálið í nýársávörpum sínum árið 1973 og minntu á að íslendingar þyrftu að standa vörð um réttindi sín þegar kæmi að varðveislu lífríkis íslandsmiða.8 Einnig má sjá á umræðunni um fiskveiðilögsöguna að umhverfisvemd var farin að spila stórt hlutverk í almennri umræðu. Herra Kristján Eldjám sagði í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar árið 1973 að færsla landhelginnar þann 1. september 1972 yrði „þáttur vor i hinni vistfræðilegu vakningu og endurreisn, sem... kennd [mun] verða við þessa öld.“.9 Á þessum tíma var mikil vakning í heiminum meðal ungs fólks og ekki langt liðið frá stúdentamótmælum í Evrópu í lok sjöunda áratugarins. Á áttunda áramg tuttugustu aldarinnar fór af stað feminísk bylgja sem skilaði konum auknum réttindum og nýjum hugmyndum um stöðu kynjanna. Það var á þessum tímum breyttra hugsjóna og tækniframfara að nýlistin fór að ryðja sér til rúms hér á landi. Við þá þróun innan myndlistarinnar voru ekki allir á eitt sáttir. Pjfjstrafitfist eöa nýfist 7 Árið 1972 var nokkuð langt úín liðið síðan snarpar deilur höfðu orðið um óhlutbundna list hér á landi, abstraktið og geometríuna. Mörgum er kunnugt um aðför Jónasar Jónassonar frá Hriflu að ákveðnum hópi „Ríkisstjórnarskiptm” eftir Hildi Hákonardóttur frá árinu 1972. listamanna árið 1942. Jónas, sem á þessum tíma var stjómmálalegur foringi bændastéttarinnar í landinu, var einnig valdamesti maður í listalífi landsins þar sem hann var formaður Menntamálaráðs, sem sá meðal annars um innkaup listaverka á vegum ríkisins. Þegar skoðaðar em skýrslur ráðsins frá fyrri hluta fimmta áratugarins sést að Jónas úthýsti öllum þeim listamönnum sem fóm nýjar leiðir í listsköpun sinni, til dæmis Þorvaldi Skúlasyni og Snorra Arinbjarnarsyni. Aftur á móti stuðlaði hann að því að Menntamálaráð keypti verk eftir listamenn sem unnu með hina hefðbundnu frásagnarlegu „íslensku“ list, svo sem Guðmund Einarsson frá Miðdal, Eggert Guðmundsson og Finn Jónsson.10 Eftir að Valtýr Stefánsson tók við sæti formanns Menntamálaráðs fóm breytingar innan ráðsins að segja til sín og næstu árin á eftir kviknaði sóknarandi meðal yngri listamanna sem máluðu í óhlutbundnum stíl. Árið 1947 var haldin fyrsta septembersýningin hér á landi, en þær áttu eftir að verða fjölmargar.11 Þeir listamenn sem sýndu á septembersýningunum vom gjaman settir undir hatt septemberkynslóðarinnar. Þeirra á meðal vom: Þorvaldur Skúlason, Ásmundur Sveinsson, Sigurjón Ólafsson, Nína Tryggvadóttir, Svavar Guðnason og Gunnlaugur Scheving. Svo virðist sem viðbrögð við abstraktlistinni hafi verið nokkuð skipt hér á landi, svipuð þeim sem listastefnan vakti erlendis.12 Margir álitu stefnuna róttæka og menningarlega uppreisn. Aðrir gerðu sér grein fyrir því að þessir íslensku listamenn hefðu komist í snertingu við heiminn og farið í leiðangur til að kanna ótroðnar slóðir.13 Eftir því sem árin liðu varð sátt um abstraktlistina og þannig stóð hún ekki lengur fyrir þá róttækni sem einkennt hafði umræðuna hér á landi um miðja tuttugustu öldina. Á þeim tíma sem ég hef skoðað vom listamenn septemberkynslóðarinnar orðnir að ráðandi afli í íslensku listalífi og að mati yngri listamanna tákn fyrir stöðnun og affurhald í listum hér á landi. Róstusöm ár í upphafi abstraktlistarinnar vom rifjuð upp í dagblöðum ársins 1972. Einkum var rifjuð upp baráttusaga septemberhópsins í tengslum við stóra yfirlitssýningu er haldin var í Listasafni íslands á verkum Þorvalds Skúlasonar. I umfjöllunum yngri myndlistarmanna um septembersýningamar er þó helst bent á að listamenn, sem árið 1972 hafi verið sestir í sæti gamalla meistara, hafi áratugum áður þótt róttækir listamenn.14 Yfirlitssýning Þorvalds var ein sú viðamesta í Listasafni Islands á árinu. I sýningarskrá skrifar Selma Jónsdóttir, forstöðukona Listasafns Islands, að stefnubreyting Þorvalds í listsköpun sinni hafi kostað hann vinsældir sem hann hafði áunnið sér meðal íslenskra ^Sajnir 3006
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.