Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 104

Sagnir - 01.06.2006, Page 104
o$c>'tffun saynjrœ ðifeyra fieimifcTa á verafcíarve sfn um helstu leitarvélum með leitarorðunum „ebooks“ og „history", en oft þarf að kafa ansi djúpt til að finna bestu síðumar. Þær má að öllu jöfnu þekkja á því að þær em fágaðri í útliti og innihalda sárasjaldan ónýta tengla. Oft er þó takmarkaður aðgangur eins og t.d. á vef University of California Press sem er með því besta sem finnst á vefnum. fjreinar Til erheilmikið afgagnasöfnum í dag þarsem hægt eraónálgastgreinarúr tímaritum.Yfirleitt þarf að borga fyriraðgang að þessum gagnagmnnum. Ef farið er inn á www.bok.hi.is og tengillinn „Gagnasöfn“ valinn birtist listi yfir þær fræðigreinar sem til em gagnasöfn fyrir. Ef við veljum svo tengilinn „Sagnfræði" fáum við upp lista af tenglum. Meða! þeirra em eftirfarandi tenglar en þeir tengjast hinum ýmsu gagnabönkum sem innihalda efni sem gæti verið gagnlegt fyrir sagnfræðinga.7 lngenta - öll frœðasvið Islandssaga í greinum Lexikon des Mittelalters ProQuest - öll frœðasvið Scopus - öll frœðasvið, prufuaðgangur til ársloka 2006 hag í því að birta rangtúlkanir.13 frumfieimifcfir Margir háskólar og stofnanir víða um heim bjóða skannaðar myndir af síðum frumheimilda. Þá er yfirleitt um að ræða aðgang að handritum og fornum bókum í elstu þekktu gerðum sem til em. Dæmi um íslenskar frumheimildir á netinu er t.d. Sagnanet (www.sagnanet. is) og Stofnun Arna Magnússonar (www.am.hi.is) þar sem er komið þó nokkuð af skönnuðum fmmeintökum íslenskra fombókmennta. Einnig heldur Þjóðskjalasafn Islands úti gagnabönkum þar sem hægt er að leita í gömlum skjölum og manntölum (www.archives.is). Hægt er að finna alla helstu slíka gagnabanka á Hvar.is. Skannaðar erlendar frumheimildir má t.d. finna á EuroDocs (library.byu.edu/~rdh/eurodocs) og Gallica (gallica.bnf.fr). Einnig má benda á The Avalon Project (www.yale.edu/lawweb/avalon/avalon.htm) hjá Yale-háskóla en þar er ekki að finna skannaðar myndir af upprunalegum gögnum heldur einungis texta frumheimildanna. Til að fá tiltölulega heildstæðan lista yfir frumheimildir á netinu má skoða síðuna Repositories of Primary Sources (www.uidaho.edu/special-collections/Other.Repositories.html) sem sýnir hvar hægt er að finna frumheimildir frá öllum heimsálfum. Þar er einnig hægt að finna tengla á íslenskar síður. Allir íslendingar hafa aðgang að sumum þessum gagnabönkum og borgar ríkið brúsann af því, en aðrir gagnabankar eru einungis aðgengilegir af háskólanetinu. Hægt er aó kaupa einstaklingsaðgang að mörgum gagnabönkum en aðrir eru einungis fyrir takmarkaðan hóp notenda, eins og t.d. sérstaka háskóla og stofnanir. Þær takmarkanir gilda um flesta þessara gagnabanka að tímaritsgreinamar ná sjaldnast lengra aftur í tímann en að áttunda áratugnum.8 Einnig virðist úrvalió sem Islendingar og háskólanemar hafa aðgang að takmarkast við tímarit á ensku og Norðurlandamálum. Samt er þó nokkurt úrval af frönskum heimildum á veraldarvefnum eins og sjá má hjá bókasafni Háskólans í Chicago (http://www.lib.uchicago.edU/e/ets/efts/French.html). Fréttir hafa lengi verið mikilvæg heimild fyrir sagnfræðinga. Á veraldarvefnum er úr nógu að moða þegar kemur að fréttum og fréttatengdu efni. Sá er þó gallinn á gjöf Njarðar að fréttaefhi á veraldarvefnum nær ekki langt aftur í tímann og þverr mikið þegar skoðað er lengra aftur en 1993.9 Á þessu em þó undantekningar og em mörg fréttablöð í óða önn að skrásetja gamlar fréttir í gagnagrunna. Hér um bil undantekningalaust þarf þá að borga fyrir aðgang að eldra efni. Þess má geta að Morgunblaðið er með slíkan gagnabanka (www.mbl. is/mm/gagnasafn) sem nær aftur til ársins 1986. Ennffemur er boðið upp á aðgang að Morgunblaðinu frá upphafi (árinu 1913) á skönnuðu formi hjá timarit.is. Þar er einnig að finna fjölmörg önnur íslensk tímarit (www.timarit.is/mbl). Mörg erlend stórblöö hafa svipaða þjónustu á boðstólum gegn gjaldi. Hér má nefna gríðarlegt gagnasafn New York Times (pqasb.pqarchiver.com/nytimes/advancedsearch.html) sem þar sem hægt er að leita í greinum allt aftur til ársins 1851. Einnig má nefna Le Monde (www.lemonde.fr) og E1 País (www.elpais.es) sem búa líka yfir gagnasöfnum með eldri blöðum. Gagnasafn E1 País nær aftur til 1976'° og gagnasafn Le Monde til 1987." cíf&ffrce 'öior'ö asöfn Alfræðiorðasöfn geta oft verið gagnleg þegar byrjað er á heimildaöflun. Á netinu er að finna mörg alfræðiorðasöfn. Nokkur af þessum söfnum eru með frjálsan aðgang og treysta á auglýsingatekjur eða gjafir. Dæmi um þetta er Wikipedia (www.wikipedia.org) sem hefur að geyma hundruð þúsunda greina um margvísleg efni og er þokkalega vel ritstýrt. Til er aragrúi af alfræðiorðasöfnum á netinu sem virðast nýta sér gögn af Wikipedia. Einnig má nefna Encyclopedia Britannica (search.eb.com) sem er þó mjög stuttaraleg í lýsingum samanborið við Wikipedia enda líklega mun bundnari af plássleysi þar sem hún er auðvitað einnig gefin út á bókarformi. Nýlega var gerður samanburður á þessum tveimur alfræðiorðasöfnum og Wikipedia kom ekki illa út í samanburði við Britannicu samkvæmt frétt frá BBC News með tilliti til villufjölda.12 Þó er í annarri grein frá sama fjölmiðli réttilega bent á að meiri hætta sé á að greinar í Wikipedia séu skrifaðar af fólki sem sjá sér ^ffnnferar töfur oy sffýrsfur Hja flestum ríkisstjómum og mórgum stofnunum er hægt að fá netaðgang að tölulegum upplýsingum og skýrslum. Hér em nokkur dæmi um slíkar síður: WRToS Utskýring http://www.hagstofa.is Hagstofa íslands. http://www.cia.gov/cia/ publications/factbook CLA World Factbook. http://www.census.gov Opinberar tölur í Bandaríkjunum. http://www.statistics.gov.uk Opinberar tölur i Bretlandi. http ://www.oecd. org/ statsportal Tölur og skýrslur hjá OECD. http ://www.amnesty. org/ai 1 i b/ aireport/index.html Skýrslur frá Amnesty Intemational. Oft em tölulegar upplýsingar teknar beint upp úr gagnagrunnum og þarf þá að skrifa inn leitarskilyrði til að fá niðurstöður. Undir engum kringumstæðum ætti að vísa beint í niðurstöður úr slíkri leit. Hér er skynsamlegast aö vísa á upphafssíðu og lýsa síðan þeim leitarskilyrðum sem notuð vom; sjá hér síðar. ösmyncfir Ljósmyndír em líka heimildir sem hægt er að nálgast á veraldarvefnum. Það sem aðallega ber að hafa í huga við leit að myndum á netinu er að myndir þar era af mismiklum gæðum. Yfirleitt reyna menn að spara plássið sem vefir taka á tölvum með því að minnka myndimar og gæði þeirra. Oft em slíkar myndir fullkomlega gagnslausar fýrir sagnfræðinga sem þurfa helst að hafa myndir í það mikilli upplausn að þær séu birtingarhæfar í ýmiss konar fjölmiðlum. Þar fyrir utan þarf að vera hægt að greina vel smáatriði á myndum. Einnig er auðveldara að koma auga á falsanir ef myndir em í miklum gæðum. Hér koma helst að gagni ljósmyndasöfn sem hægt er að finna á netinu. Langflestar þeirra mynda sem hægt er að finna á leitarvélum em gagnslausar þótt undantekningar séu til á því. Fyrir íslenskar greinar og ritgerðir er helst hægt að benda á Ljósmyndasafn Reykjavikur (www.ljosmyndasafhreykjavikur.is). Þar er hægt að leita að myndum á vefnum en til að fá mynd í fullum gæðum þarf að hafa samband við starfsmenn til að fá hana senda (t.d. í tölvupósti). Svona þjónusta kostar yfirleitt eitthvað og er það mjög mismunandi hve hátt verð er sett upp fyrir hana. Auðvelt er að finna erlend ljósmyndasöfn á netinu með því að skrifa t.d. „photography collection“ í leitarvél. Meðal þeirra safna sem til dæmis koma upp 1 slíkri leit er New York Public Library Digital Gallery (www.nypl.org/ digital) sem er mjög stórt safn af ýmiss konar myndum hvaðanæva úr heiminum. JOZ JSaynir zoo6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.