Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.06.2006, Qupperneq 112

Sagnir - 01.06.2006, Qupperneq 112
&ajnaJoinj zoo6: &aynf rœhi joófitífí ^SajnaJoinj 2006: ^ajnýrœhi oyjovfitííi Sagna-þing var haldiö fóstudaginn 19. maí í húsnœöi Reykjavíkurakademíunnar. Yfirskrift þingsins var sagnfrœöi og pólitik en þaö hefur verið þó nokkuð í umrœðunni undanfarið. Voru fengnir þrír ungir sagnfrœðingar til þess að tala um þetta málefni. Ritstjórn Sagna sá um fundarstjórn. Jýftann "ffjaíti ffioróteinsscn vT3 sem stundum nám í sagnfræði erum þjálfuð til að fjalla um söguna og atburði hennar. Við lærum að afla heimilda, vinna úr þeim, draga lærdóm af þeirri vitneskju sem við söfnum sarnan og að draga ályktanir út frá þeim. Við erum í sjálfu sér ekki skapendur atburðarása frekar en aðrir almennir borgarar. Okkar vinna er hins vegar aö rannsaka atburði og gjörðir fólks til þess að geta skýrt fyrri atburðarásir og að leita leiða til að lýsa þeim. Við vorum mörg okkar hér saman komin í fyrra og hlýddum á ágætar framsögur fjögurra sagnfræðinema sem íjölluðu um hlutleysi í sagnfræði. Þar kom fram almennt mat manna að hlutleysi í sagnfræði sé ekki til og að þess í stað þá getum við beitt fyrir okkur hlutlægni og eða meðvitaðri afstöðu. Báðar aðferðimar er krefjast heiðarleika í vinnubrögðum gagnvart viðfangsefni, lesendum og ekki síst gagnvart okkur sjálfum. I sagnfræðirannsóknum er nauðsynlegt að byrja á því að staðsetja sig gagnvart efninu og átta sig á því hver okkar afstaða er til þess að vera meðvituð um okkar eigin annmarka við umíjöllunina. En það að vera sagnfræðingur útilokar þó ekki neinn frá því að vera þátttakandi í því þjóðfélagi sem hann býr í. Við eigum ekki að forðast að vera út á meðal fólks og taka afstöðu í málum líðandi stundar. Það gerir okkur ekki endilega hæfari fræðimenn ef við lokum okkur af þó svo að það geti jú hjálpað til með einbeitingu sem aftur eykur afköstin a.m.k. hjá sumum okkar. Við höfum samt ekki öll lært sagnfræði til þess að verða fræðimenn. Sagnfræðingar vinna við ólíkustu störf í samfélaginu. Það eru t.d. stjórnmálamenn sem lærðu sögu. Ég tel að þessi menntun sé ágætis undirbúningur fyrir m.a. þátttöku í stjórnmálum. Það spillir ekki fyrir að hafa þekkingu á fortiðinni þegar spá skal í framtíðina. Það fellst í eðli stjómmálabaráttu að reyna ná yfirráðum, ef ekki áþreifanlegum þá í það minnsta andlegum. Ein leið til þess að ná stjóm á beitingu tungumálsins þannig að merkingar og hugtök sem notuð em henti þeim boðskap og eða áróðri sem fram skal færa. Önnur leið er að ná tökum á sögunni og túlka hana sínum málstað í hag. Slíkt er ekki óþekkt og hæg heimatökin að finna mýmörg dæmi um hvemig atburðarrás hefur verið lagfærð til að henta málstað stjómmálamanna. Þá getur hjálpað til að vera lærður í fræðunum bæði til að geta betur ástundað slíkt og eins til að sjá í gegnum staðhæfingar sem ekki em á rökum reistar. Vel þekkt dæmi í þessum efnum eru m.a. tilraunir manna til að afneita helför gyðinga í seinni heimstyijöldinni. Það er ekki aðeins með mistúlkun á sögunni og misbeitingu tungumálsins sem hægt er að hafa áhrif á vitund okkar. Önnur leið er að leggja fé í gæluverkefni eins og Kristnihátíðarsjóð, forsætisráðherrabókina og eða sögu þingræðisins. Kristnihátíðarsjóður er glöggt dæmi um það hvernig kolröng stefna var tekin í veitingu fjármuna til fomleifarannsókna þannig að heildarsýn á fomleifar þjóðarinnar skekktist verulega með áherslu á kristna arfleið þjóðarinnar í stað þess að jafnvægi væri gætt í rannsóknum. Það er eðlilegt í sjálfu sér að við tímamót að tekin sé til umijöllunar saga ákveðinna fyrirbæra. Forsœtisráðherrar Islands : ráóherrar Islands og forsœtisráðherrar í 100 ár er í sjálfu sér þar engin undantekning. Það er hins vegar athyglisvert til hverra var leitað til þess að rita einstaka kafla í bókinni. Vissulega er ágætt mannval í flestum tilfellum í höfundalista bókarinnar. Þó em nokkur atriði sem ég vil tæpa á þar. Fyrsta er hvort íslenskir fræðimenn séu það fáir og eða misjafnir að gæðum að ekki hafi verið hægt að manna alla penna með sagn- og eða stjómmálafræðingum þannig að leita þurfti til stjórnmálamanna og blaðamanna. Annað atriði er hvemig eigum við að taka kafla um Davíð Oddsson skrifaðan af nánum samstarfsmanni hans. Eða þeim köflum skrifuðum af samflokksmönnum viðfangsefna sinna. Fyrirfram þá er eðlilegt að spyrja hvort samflokksmaður sé líklegur til þess að fjalla á hlutlægan hátt um erfið málefni sem ráðherrann tókst á við í stjómartíð sinni. Fyrir utan að ef um væri að ræða einlægan vilja til að styðja við íslenska fræðimenn þá hefðu launaðir stjómmálamenn ekki tekið að sér að vinna vinnu fræðimanna. Ég tel það rýra gildi bókarinnar að áhugamenn skrifi suma kafla bókarinnar. Nú gætum við sagt sum sé að ég væri að rifna af menntasnobbi en ég tel að svo sé ekki þar sem flestir höfunda em vel menntaðir. Það skýtur hins vegar skökku við að nota ekki krafta sagnfræðinga við verkið. Við biðjum ekki sagnfræðing um að koma með lögskýringu, hvers vegna vom þá lögfræðingar fengnir til þess að skrifa sagnfræði? Sagnfræðin gengur í gegnum tískur rétt eins og flest allt sem tengist menningu. Með nýjum aðstæðum í stjómmálum og með nýjum upplýsingum eða aðferðum sem koma fram getur vaknað þörf eða opnast aðstæður til að líta á liðna atburði frá nýjum sjónarhomum. Eðlilegt dæmi um slíkt eru kaldastríðsrannsóknir á síðustu öld. Sagnfræðingar hafa á síðustu 60 ámm skipst á að koma fram með túlkanir á upphafi kaldastriðsins. Ný hugmyndafræði kom fram reglulega. Þær sveifluðust allt frá því að skýra kalda striðið sem viðbrögð Vesturveldanna við útþenslu kommúnista í heiminum yfir í að skýra það sem viðbrögð Sovétmanna við heimsyfirráðatilburðum og neo-colonisma Vesturveldanna. Það er ábyrgðarhlutur að skrifa sögu. Saga er stór þáttur í sjálfsmynd þjóðar sem aftur hefur afgerandi áhrif á hvemig hún bregst við atburðum sem drífa á daga hennar. Þannig er saga mikilvæg fyrir stjómmál. Það er hægara um vik að ná fram breytingum ef byggt er á samhengi við liðna tíð. Það má til að mynda ætla það að við væmm enn undir erlendri stjóm ef við hefðum ekki átt okkar eigin sögu sem við gátum vísað í baráttu okkar. Að ætla sagnfræðingi að vera hlutlaus í umijöllun um stjómmálasögu íslands er í raun að ætlast til þess að ffæðimaðurinn sé ekki hluti af samfélaginu. Standi utan þess. En þá komum við að vandamáli, hver er betur til þess fallinn að fjalla um íslenskt samfélag og þar með íslenska stjómmálasögu en sá sem þekkir íslenskt samfélag? Það er ekki hægt að ætlast til þess að útlendingur sem ekki tali málið geti fengið heildannynd á viðfangsefninu án þess að hann kunni tungumálið. Þegar þessi sami útlendi fræðimaður leggur það á sig að læra málið þá verður það óhjákvæmilegt að hann kynnist innviðum islensks samfélags og þar með er hann kominn í sömu spor og innfæddi fræðimaðurinn. Hann orðinn tengdur umfjöllunarefninu. í hinum allra besta heimi væri þessi vinna okkar blátt áfram og engum efa undirorpin. Okkur væri enginn vandi búinn við að gæta hlutleysis. Enginn mundi efast um ástæður okkar. En við emm ekki í allra besta heimi, okkar vinna verður þess vegna ástæða til efa og spuminga þar sem gagnrýnendur koma til spyrja ekki bara um vinnubrögð heldur líka persónulega afstöðu okkar. ffári ffyfPaóan Stjómmál er ekki það sama og pólitík. í maimánuði í Reykjavík er sennilega ekkert jafn merkingarlaust og stjómmál. Því miður. íslenska orðið stjórnmál vísar ekki í neina umræðuhefð, deilur um hvemig samfélag við viljum byggja. Stjómmál em rifrildi í sjónvarpssal, opin prófkjör, frambjóðendur brosandi af flettiskiltum, skipulagsmál, baktjaldamakk. Fólk sem er pólitískt hlýtur að leiða þessa vitleysu hjá sér. Að mínu mati merkir pólitík að hafa ákveðna sýn á heiminn og hlutverk okkar í honum og vinna að framgangi hugmynda sinna. Karp um hvort flugvöllurinn eigi heima á Lönguskerjum eða Hólmsheiði er ekki pólitískt hitamál heldur skipulagsmál. Jafnrétti kynjanna og umhverfisvænir samgöngukostir em hins vegar hápólitísk mál: Þau snúa að því hvemig lífi við lifum og í hvemig samfélagi. Pólitík í þessum skilningi er ekki nema lítill hluti af starfi stjómmálaflokka. Og stjórnmálaflokkar standa aðeins fyrir litlum hluta þeirrar pólitíkur sem stunduð er. Að hafa skoðun á, eða tilfinningu fyrir, llO ^Sajnír zooé
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.