Uppeldi og menntun - 01.07.2013, Blaðsíða 5
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(2) 2013 5
frá ritstjórUM
Í þessu hefti Uppeldis og menntunar eru fimm ritrýndar greinar, þrjár viðhorfsgreinar
og einn ritdómur. Ritrýndu greinarnar fjalla um fjölbreytt efni á sviði menntavísinda:
stefnur og strauma í leiðsögn kennaranema, starfssvið, viðhorf og áherslur í kennslu
tónmenntakennara, nýfrjálshyggju í stefnuskjölum um námsgagnagerð, viðhorf ung-
menna til mannréttinda innflytjenda og upphaf kennaramenntunar í uppeldismið-
uðum handmenntum á Íslandi.
Viðhorfsgreinarnar eru að þessu sinni um þemahefti sem Mennta- og menningar-
málaráðuneytið og Námsgagnastofnun gáfu út til þess að fylgja eftir svonefndum
grunnþátttum menntunar í aðalnámskrá leik-, grunn – og framhaldsskóla. Grunn-
þættirnir eru sex og birtust viðhorfsgreinar um þrjá þeirra í síðasta hefti. Í þessu hefti
er fjallað um grunnþættina Sjálfbærni, Jafnrétti og Heilbrigði og velferð sem komu út
á vormánuðum 2013. Greinarnar eru ólíkar að gerð enda ekki hugsaðar sem formlegir
ritdómar heldur umfjöllun höfunda um ólíka grunþætti.
Ritstjórar og ráðgefandi ritnefnd tímaritsins vinna stöðugt að því að endurbæta og
efla ritrýningarferli tímaritsins í því skyni að halda gæðum tímaritsins og auka þau.
Unnið er að því að til verði frá og með næsta ári stærri ráðgefandi ritnefnd eða alþjóð-
legur ráðgjafahópur. Nú er líka tekið við handritum og rannsóknargreinum á ensku
og ekki er lengur miðað við að handrit þurfi að koma fyrir sérstakar dagsetningar
enda skila höfundar handritum á öllum tímum ársins. Tímaritið er nú birt EBSCO-
host gagnasafninu átta mánuðum eftir birtingu hvers tímarits, auk þess sem það
verður birt áfram á vefnum timarit.is ári eftir útgáfu. Á næstunni verður tímaritið sett
í pdf-formi í Skemmuna, eldri hefti frá árunum 2005–2009 og stakar greinar frá og með
2010, einnig með birtingartöf. Loks má geta þess að sótt hefur verið um að tímaritið
verði tekin inn í ISI-gagnagrunninn.
Ritstjórar hafa í samstarfi við höfunda lagt metnað í að gera þær greinar sem hér
birtast svo vel úr garði sem kostur er. Allir þeir sem hafa lagt hönd á plóg við útgáfu
þessa heftis eiga þakkir skyldar. Þar ber að nefna höfunda, ónefnda ritrýna og ekki síst
vandvirka yfirlesara á íslensku og ensku um texta og heimildanotkun og þá sem sjá
um útgáfuna, prenta tímaritið og dreifa því til áskrifenda.