Uppeldi og menntun - 01.07.2013, Blaðsíða 77
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(2) 2013 77
MARGRÉT A. MARkÚsDÓTTIR
MeNNTAvísINDAsvIðI HáskÓLA ísLANDs
sIGRÚN AðALBJARNARDÓTTIR
MeNNTAvísINDAsvIðI HáskÓLA ísLANDs
Viðhorf ungmenna til mannréttinda
innflytjenda og móttöku flóttafólks:
Viðtalsrannsókn
Meginmarkmið rannsóknarinnar var að öðlast dýpri skilning á viðhorfum ungmenna
til réttinda innflytjenda og móttöku flóttafólks . Viðtöl voru tekin við 15 og 19 ára ung-
menni (nítján talsins) . Þemagreining var notuð til að greina gögnin og sýndi hún að
flestum ungmennanna var umhugað um tækifæri innflytjenda í samfélaginu . Þemun voru
íslenskukunnátta, jöfn réttindi og fordómar . Þá kom í ljós að þau ungmenni sem sýndu nei-
kvæðari viðhorf en önnur til innflytjenda gerðu meiri greinarmun á „okkur“ og „hinum“
í orðræðu sinni um innflytjendur . Neikvæð umræða þeirra um innflytjendur einkennd-
ist að nokkru leyti af hugmyndum um hvað það er að vera Íslendingur og af andstöðu og
ótta við breytingar á íslenskri menningu, trú og samfélagi . Þá sögðu ungmennin mikilvægt
að taka á móti og hjálpa flóttamönnum; þeir eigi að njóta mannréttinda eins og aðrir . Sum
þeirra töldu þó nauðsynlegt að takmarka fjölda flóttamanna og athuga bakgrunn þeirra .
Efnisorð: Mannréttindi, borgaravitund, ungmenni, innflytjendur, flóttafólk
inngangUr
Fjölmenning verður sífellt meira áberandi í samfélögum nútímans. Aukin alþjóða-
væðing á þar hlut að máli með auknum samskiptum fólks, m.a. á netinu, og meiri
hreyfanleika þess milli ólíkra staða í heiminum en áður. Ýmsar ástæður geta legið að
baki fólksflutningum milli landa og má þar nefna átök í heimalandi og leit að betra
lífi (Unnur Dís Skaptadóttir, 2004). Frjálst flæði vinnuafls, sem er eitt meginmarkmiða
Evrópusambandsins, hefur einnig auðveldað fólksflutninga milli Evrópulanda, þar á
meðal til Íslands (EURES, e.d.).
Menningarlegur margbreytileiki ríkja hefur kallað á umræðu um mannréttindi
fólks sem sest að í nýju landi. Þær áherslur urðu til dæmis áberandi í kjölfar þess
Uppeldi og menntun
22. árgangur 2. hefti 2013