Uppeldi og menntun - 01.07.2013, Blaðsíða 101
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(2) 2013 101
GísLI ÞoRsTeINssoN
MeNNTAvísINDAsvIðI HáskÓLA ísLANDs
BRyNJAR ÓLAfssoN
MeNNTAvísINDAsvIðI HáskÓLA ísLANDs
Upphaf kennaramenntunar í
uppeldismiðuðum handmenntum
á Íslandi 1892–1939
Greinin fjallar um rannsókn á upphafi og þróun kennaramenntunar á Íslandi í uppeldismið-
uðum handmenntum, frá árinu 1892 til ársins 1939 . Uppeldismiðaðar handmenntir (slöjd)
á Íslandi voru í upphafi byggðar á hugmyndafræði slöjds á Norðurlöndunum . Slöjd er upp-
eldiskerfi sem nýtir handverk sem tæki til að efla þroska barna í gegnum skólastarf . Rannsókn
höfunda sýnir að uppeldismiðaðar handmenntir voru hvati að upphafi kennaramenntunar á
Íslandi . Flestir upphafsmenn stefnunnar hér á landi sóttu sér menntun til Norðurlandanna og
studdust við kennsluaðferðir frumkvöðla slöjdsins í Danmörku og Svíþjóð . Seinna fór að gæta
áhrifa frá heimilisiðnaðarhreyfingunni sem, ólíkt slöjdhreyfingunni, lagði áherslu á að viðhalda
íslenskum handmenntahefðum með þjóðlegri handavinnu og koma á fót iðnaði á íslenskum
heimilum . Menntunarbakgrunnur og hugsjónir þeirra kennara er komu að kennaramenntun
í uppeldismiðuðum handmenntum í upphafi hennar lituðu innihald kennslunnar og áherslur .
Efnisorð: Uppeldismiðaðar handmenntir, slöjd, kennaramenntun, handverk, heimilis-
iðnaður
inngangUr
Viðfangsefni þessarar greinar er að segja frá upphafi kennaramenntunar í uppeldis-
miðuðum handmenntum á Íslandi fram til ársins 1939. Hugtakið uppeldismiðaðar hand-
menntir, sem notað er í greininni, er þýðing höfunda á skandinavíska hugtakinu slöjd¹.
Á Íslandi hafa hugtökin skólaiðnaður, uppeldisiðnaður og skólasmíði einnig verið notuð
(Guðmundur Finnbogason, 1994; Jón Þórarinsson, 1891; Smíðareglur við skólasmíði,
1908). Slöjd er uppeldiskerfi sem nýtir handverk sem tæki til að efla þroska barna í
gegnum skólastarf. Nemandinn lærir mismunandi handverksaðferðir, svo sem tré-
smíði, málmsmíði, saumaskap, prjón og hekl, og nýtir þær til að búa til gagnlega hluti
Uppeldi og menntun
22. árgangur 2. hefti 2013