Uppeldi og menntun - 01.07.2013, Blaðsíða 129
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(2) 2013 129
inga maría ingVarsdÓttir
Það er skemmst frá því að segja að mæting var góð og meðal annarra komu foreldrar
margra barna í leikskólanum og einn bekkur úr nærliggjandi grunnskóla til að hjálpa
til.
aÐ lOKUM þEtta
Til að mennta gagnrýna og ábyrga einstaklinga sem láta sig umhverfið varða þurfa að
vera til staðar góðar fyrirmyndir í skólanum, því nemendur læra sjálfbærni þar sem
hún er virt og stunduð í reynd. Einnig þarf menntun til sjálfbærni að vera áhugavekj-
andi, skemmtileg og í tengslum við náttúru og umhverfi (bls. 42–44). Það felst mikil
áskorun fyrir skólasamfélagið í því að innleiða menntun til sjálfbærni sem og aðra
grunnþætti menntunar. Höfundur ritsins samþættir sjálfbærni við hina grunnþættina
og segir að án hennar náist ekki markmið um jafnrétti, lýðræði, mannréttindi, heil-
brigði og velferð og réttlæti (bls. 24). Rit sem hverfist um sjálfbærni er hvalreki fyrir öll
skólastigin og nauðsynlegt að allir lesi það og tileinki sér sjálfbæra hugsun. Til að sem
bestur árangur náist þarf að tryggja að allir gangi í takt og það ríki sátt og samstaða
um markmið og leiðir. Einnig þarf að hafa í huga að góðir hlutir gerast hægt í þessu
sem öðru. Það þarf að gefa sér góða tíma til að ígrunda og finna leiðir sem byggjast á
fjölbreyttum starfs- og kennsluaðferðum. Spennandi verður að fylgjast með þróuninni
í skólamálum næstu árin og sjá hvert sjálfbærnimenntunin mun leiða skólana.
atHUgasEMD
1 SAGE Gardens er fyrirtæki sem sérhæfir sig meðal annars í að endurbæta útisvæði
í leik- og grunnskólum í samvinnu við börn, kennara og foreldra. Fyrirtækinu stýra
þau George Hollanders og Sarka Mrnakova.
HEiMilDir
Bæjarbúar geri hreint fyrir sínum dyrum . (2012, 24. apríl). Vísir. Sótt af http://www.
visir.is/baejarbuar-geri-hreint-fyrir-sinum-dyrum/article/2012304249979
Cornell, J. (1989). Sharing the joy of nature: Nature activities for all ages. Nevada City:
Dawn Publications.
Ebbeck, M. og Waniganayake, M. (2003). Early childhood professionals: Leading today and
tomorrow. Sydney: MacLennan & Petty.
Fullan, M. (2001). The new meaning of educational change (3. útgáfa). New York: Teachers
College Press.
Landvernd. (e.d.). Skólar á grænni grein. Sótt af http://landvernd.is/graenfaninn/Skolar
Leikskólabörn vilja hundaskítinn burt. (2012, 23. apríl). Vísir. Sótt af http://www.
visir.is/leikskolaborn-vilja-hundaskitinn-burt/article/2012304239973
Leikskólinn Tjarnarsel. (e.d.). https://www.facebook.com/pages/Leiksk%C3%B3linn
Tjarnarsel/144586655714415?fref=ts