Uppeldi og menntun - 01.07.2013, Blaðsíða 66
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(2) 201366
„að tryggJa framBoð og fJölBreytileika“
Tafla 2. Breytingar á skipan fulltrúa í stjórn Námsgagnastofnunar
Stjórnskipan í lögum Stjórn Námsgagna-
stofnunar skv. lögum
um Námsgagnastofnun
nr. 23/1990
Stjórn Námsgagna-
stofnunar skv. lögum
um námsgögn nr. 71/2007
Fulltrúi ráðherra Formaður Formaður
Kennarasamband Íslands – kennarar 3 1
Kennarasamband Íslands – stjórnendur 1 1
Samband íslenskra sveitarfélaga 1
Fulltrúi fræðslustjóra 1
Fulltrúi landssambands foreldra 1
Fulltrúi fræðasamfélags 1
Samtals 7 5
Fulltrúi foreldra er nýr aðili að stjórn og kemur í stað fulltrúa fræðasamfélagsins,
þ.e. fulltrúi „neytenda“ kemur í stað fulltrúa úr fagpólitík. Hvorki fyrr né nú er gert
ráð fyrir fulltrúa nemenda. Fræðslustjóraembætti voru lögð niður þegar grunnskólar
fluttust á ábyrgð sveitarfélaga og því tilnefnir Samband íslenskra sveitarfélaga fulltrúa
í stjórn. Í stað fulltrúa fræðslustjóra er fulltrúi rekstraraðila.
Regluslökun sem varðar fagmennsku og lýðræði kemur einnig fram þegar rýnt er
í markmiðsgrein eldri og núgildandi laga um hlutverk Námsgagnastofnunar. Í eldri
lögum skal stofnunin hafa „samstarf við þá aðila sem vinna að stefnumörkun, rann-
sóknum og þróunarverkefnum í skólastarfi og menntun kennara“ (Lög um Náms-
gagnastofnun nr. 23/1990). Í gildandi lögum er þetta tekið út en í staðinn er stofnun-
inni skylt að „þróa námsgögn“, hafa „frumkvæði að könnunum og rannsóknum“ og
„hafa samráð við kennara og skóla“ (Lög um námsgögn nr. 71/2007, 3. grein). Aðilar
sem koma að stefnumörkun og rannsóknum í skólastarfi eru ekki lengur jafn sýnilegir
í stefnumótun stofnunarinnar og tengsl við skóla- og menntavísindasamfélagið orðin
óljósari. Mikill aflsmunur er á því að „hafa samstarf“ og „hafa samráð“ í stefnumótun.
Í þessum og öðrum nýlegum lagabálkum er varða menntakerfið er opnað fyrir
einkavæðingu með því að slaka verulega á reglum (e. deregulate) um fyrirtæki á
markaði varðandi fagmennsku eða menntun á sviði námsefnisgerðar, ábyrgð, lýðræði
og eftirlit. Sérstaklega er tilgreint að forstöðumaður Námsgagnastofnunar, sem ráðinn
sé til fimm ára í senn, skuli „hafa háskólamenntun og þekkingu á verksviði stofnunar-
innar“ (Lög um námsgögn nr. 71/2007, 4. grein). Engar slíkar kröfur eru formlega
settar fram um stjórnendur sem sinna námsgagnaútgáfu á markaði. Í lögunum er ekki
fjallað um stjórnir stofnana eða fyrirtækja og valdsvið þeirra, fyrir utan sérákvæði um