Ægir - 01.03.2011, Side 11
11
A U Ð L I N D A M Á L
við komin með þorskstofninn
mjög neðarlega og hefðum
ekki mátt sækja í hann mikið
lengur með sama hætti.“
Þarf sterk bein til að þola vel-
gengnina
Daði segir að sterk bein þurfi
til að bregðast við með sam-
drætti aflaheimilda þegar þörf
krefji og á sama hátt sé
vandaverk að standast kröfur
um auknar veiðar þegar vís-
bendingar komi fram á mið-
unum um betra ástand. „Þeg-
ar menn eru að sjá þorsk-
gengd sem þeir hafa ekki séð
í yfir 30 ár. Það er auðvitað
skiljanlegt að þeim þyki blóð-
ugt að fá ekki að veiða
meira. En þá kemur varfærn-
issjónarmiðið til og það
grundvallaratriði að nú skal
horft til langrar framtíðar,“
segir Daði Már en hann hefur
í rannsóknarverkefnum sín-
um sérstaklega beint kastljós-
inu að samspili markaðsfyri-
komulags og arðs í sjávarút-
vegi.
„Þetta með að skapa verð-
mæti er algjört lykilatriði. Ef
við skoðum þróunina í fisk-
vinnslu hér á landi annars
vegar og í nágrannalöndum
eins og Noregi hins vegar þá
sjáum við verulegan mun á
þeim tíma sem liðinn er frá
því tímabili stóru sölufyrir-
tækjanna lauk hér á landi.
Það má segja að þróunin á
þessu tímabili hafi einkennst
af stöðugt fjölbreyttari fyrir-
tækjaflóru, eitt fyrirtæki í sjáv-
arútvegi sérhæfir sig í eina átt
á meðan fyrirtækið við hlið-
ina velur að sérhæfa sig í
aðra. Þetta er mikilvægur
hluti þess að skapa sem mest
verðmæti úr auðlindinni.
Fiskur er fjölbreytt vara og
virði hans fer eftir eiginleik-
um á borð við ferskleika,
stærð, holdfyllingu og öðrum
þeim þáttum sem hafa áhrif á
virði fisks. Einnig skiptir af-
hendingartími og afhending-
aröryggi máli. Því meiri stjórn
sem menn hafa á framleiðslu-
keðjunni því betur geta þeir
mætt kröfum markaðarins.
Við sjáum afleiðingar af
þessu í því hvernig fyrirtækin
velja að skipuleggja starfsemi
sína. Þau fyrirtæki sem
byggja á hágæða afurðum
velja oft að hafa útgerðina og
vinnsluna á sömu hendi. Á
þann hátt tryggja þau best að
veiðar og vinnsla vinni í takti
að því markmiði að uppfylla
þarfir viðskiptavinarins. Frels-
ið sem hefur leyft mismun-
andi lausnum að þróast fyrir
mismunandi framleiðslu er að
mínu mati algjört lykilatriði í
þeim árangri sem hefur náðst
í sjávarútvegi síðustu 15-20
árin hér á landi. Við erum að
sjá verulegan arð skapast af
starfi fyrirtækja í sjávarútvegi,
til dæmis með sölu á verð-
mætum ferskum afurðum, og
allt þetta byggist á fjölbreytni
fyrirtækjaflórunnar og þeim
stöðugleika sem kvótakerfið
skapar. Ég verð að segja að
ég hef svolitlar áhyggjur af
því að inni í stjórnkerfinu átti
menn sig ekki á því hversu
skynsamlega skipulagður
sjávarútvegurinn er orðinn og
að hve miklu leyti þetta
skipulag er háð stöðugleika,
viðskiptafrelsi og því að
mann fái að njóta afraksturs
Kaplahrauni 5 - Sími 565 1022 - hella@hella.is - www. hella.is
ÍSL
EN
SK
FRA
ML
EIÐ
SLA
Handfærarúllur - Festipollar
Þilfarslúgur - Fiskislöngutengi
og ýmis önnur framleiðsla og sérsmíði fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu