Ægir - 01.03.2011, Qupperneq 14
14
„Undirbúningur Íslensku sjáv-
arútvegssýningarinnar hefur
gengið mjög vel og við erum
nú þegar búin að selja 200
fermetrum meira af sýningar-
rými en á sama tíma fyrir síð-
ustu sýningu árið 2008. Í ljósi
efnahagshrunsins á Íslandi
haustið 2008 hefði mátt búist
við að það yrði þyngra undir
fæti núna og því koma þessar
góðu undirtektir okkur þægi-
lega á óvart,“ segir Marianne
Rasmussen-Coulling, við-
burðastjórnandi hjá Mercator
Media sem er skipuleggjandi
sýningarinnar. Íslenska sjáv-
arútvegssýningin fer fram í
Fífunni og Smáranum í Kópa-
vogi dagana 22. til 24. sept-
ember í haust. Þetta er í tí-
unda skipti sem þessi gamal-
gróna sjávarútvegssýning er
haldin en hún var fyrst haldin
árið 1984 og hefur síðan farið
fram á þriggja ára fresti.
Framan af var sýningin í Laug-
ardalshöll en árið 1999 var
hún flutt á nýtt og stærra sýn-
ingarsvæði í Kópavogi sem
hefur verið vettvangur hennar
síðan.
Óþarfi að breyta því sem reyn-
ist vel
Um miðjan febrúar höfðu
sýnendur frá um 20 löndum
skráð sig til þátttöku og þá
vantaði aðeins um 15% upp á
að búið væri að selja jafn
mikið sýningarpláss og selt
var fyrir sýninguna 2008.
Þjóðir sem hafa staðfest þátt-
töku í sýningunni eru Dan-
mörk, Noregur, Færeyjar og
Bretland en Kína og Ítalía
hafa einnig lýst áhuga á að
vera með. Að sögn Marianne
var einungis eftir að ráðstafa
20 sýningarplássum í stóru
sýningarhöllinni um miðjan
febrúar og 26 pláss voru enn
laus í smærri sýningarhöll-
inni. Aðspurð hvort búast
megi við miklum breytingum
á fyrirkomulagi sýningarinnar
í ár, segir Marianne svo ekki
vera því það sé óþarfi að
breyta því sem reynist vel.
Hún segir að verðlaunaaf-
hending fyrir bestu sýningar-
básana sem og verðlaun til
fyrirtækja og einstaklinga sem
skarað hafa fram úr í grein-
inni, muni eins og áður fara
fram í móttöku fyrsta sýning-
arkvöldið. Móttakan sem er í
boði sjávarútvegsráðuneytis-
ins og Kópavogsbæjar verður
nú flutt aftur í Gerðarsafn í
Kópavogi, eins og 2002 og
2005 en hún var síðast haldin
í Turninum í Kópavogi.
Fleiri VIP gestir
Alls komu um 12.500 gestir
frá 50 löndum á síðustu sjáv-
arútvegssýningu sem þótti
takast afburða vel þrátt fyrir
efnahagsþreningingar sem þá
voru að hefjast. Þá sýndu
um 500 fyrirtæki frá liðlega
30 löndum vörur sínar og
gerir Marianne ráð fyrir að
minnsta kosti jafn margir taki
þátt í sýningunni í ár. Meðal
þeirra sem sóttu sýninguna
2008 voru 75 svokallaðir VIP
gestir sem voru styrktir af að-
standendum sýningarinnar til
S Ý N I N G A R
Mikill áhugi á Íslensku sjávarút-
vegssýningunni í september
Marianne Rasmussen-Coulling segir að í ljósi efnahagshrunsins komi góðar viðtökur við Íslensku sjávarútvegssýningunni
þægilega á óvart.
Teg: K 2.21
110 bör max
360 ltr/klst
Teg: K 5.700
140 bör max
460 ltr/klst
Teg: K 6.300
150 bör max
550 ltr/klst
Teg: K 3.500
120 bör max
460 ltr/klst
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
Teg: K 7.400
160 bör max
600 ltr/klst
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð