Ægir - 01.03.2011, Side 27
27
Skorri hefur selt Tudor rafgeyma í báta frá árinu 1978:
Rafgeymarnir eitt af lykil-
atriðunum í bátnum
„Við seljum allar gerðir raf-
geyma og ekki hvað síst fyrir
bátana. Þar skiptir miklu máli
að velja rétta geyma fyrir þá
notkun sem þeim er ætlað að
standa undir en rétt val og rétt
umgengni um rafgeymana geta
skipt sköpum um endingu
þeirra. Frá upphafi hefur Skorri
sérhæft sig í sölu á vönduðum
sænskum rafgeymum frá Tudor
og við vitum af reynslunni að
þeir hafa staðið sig vel í bátun-
um,“ segir Lárus Björnsson,
rekstrarstjóri hjá Skorra hf. á
Bíldshöfða í Reykjavík, að-
spurður um þjónustu fyrirtæk-
isins við bátaeigendur.
Lárus segir þjónustu fyrir-
tækisins fyrst og fremst felast
í sölu á rafgeymum en ekki
síður í ráðgjöf til viðskipta-
vina um rétt val á geymum.
„Þetta er mjög mikilvægt at-
riði hvað bátana varðar því
um borð er einn rafgeymir
fyrir startið í bátnum, annar
sem knýr ljós og minni raf-
tæki og síðan þriðja settið,
gjarnan samtengdir tveir 12
volta rafgeymar, sem knýja
rafmagnsvindurnar. Virkni í
þessum rafgeymum þarf því
að vera mismunandi. Þannig
eiga rafgeymarnir sem knýja
ræsingu á vélinni að gefa frá
sér mikinn straum í einu á
meðan þessu er þveröfugt
farið með tækja- og færavind-
urafgeymana. Þeir þurfa að
gefa frá sér lítinn straum og
hafa langan úthaldstíma. Á
síðasta ári fengum við nýja
línu af rafgeymum frá Tudor
fyrir hæga afhleðslu sem
heita TUDOR Exbert Endur-
ance og eiga þeir að þola
mun fleiri afhleðslur heldur
en eldri gerðir. Þeir eru nú til
í þremur stærðum 135 Ah,
180 Ah og 230 Ah. Þeir hafa
reynst mjög vel og eru við-
skiptavinir okkar mjög
ánægðir með þá.
Okkar ráðgjöf til viðskipta-
vina er að greina hvaða þarfir
þeir hafa um borð og ráð-
leggja þeim síðan um hvaða
gerð Tudor-rafgeymana hent-
ar þeim best,“ segir Lárus.
Frá stærsta rafgeyma-
framleiðanda heims
Fyrirtækið Skorri rekur sögu
sína allt aftur til ársins 1978
þegar það var stofnað um
rafgeymasölu. Eins og áður
segir hefur Tudor fylgt fyrir-
tækinu frá upphafi en að
baki þeirri framleiðslu stend-
ur EXIDE í Bandaríkjunum,
sem er með stærstu raf-
geymaframleiðendum í heimi.
Línan í rafgeymum er mjög
stór, allt frá rafgeymum fyrir
stærstu vélar og tæki niður í
rafgeyma fyrir mótorhjól og
vélsleða. Þess utan selur fyrir-
tækið sólarrafhlöður, gaskæli-
skápa, gaseldavélar, gasvatns-
hitara og ljósabúnað fyrir 12
volta kerfi fyrir sumarbústaði
og fjallaskála sem eru ekki
tengdir við rafmagn, hleðslu-
rafhlöður og margt fleira.
„Síðan bjóðum við mjög
handhægan og vandaðan
hleðslubúnað eða sjálvirk
hleðslutæki fyrir rafgeyma er
ekki síður mikilvægur báta-
eigendum en rafgeymarnir
sjálfir. Í bátum sem til dæmis
eru bundnir við bryggju yfir
vetrarmánuðina þarf að huga
vel að því að rafgeymarnir
skemmist ekki. Það er vel
tryggt með þessum hleðslu-
búnaði frá okkur sem ekki
aðeins hleður geymana held-
ur vaktar þá stöðugt og gætir
þess að bæta við hleðsluna
þegar þörf er á. Rafgeymar
endast best fullhlaðnir og
margir smábátasjómenn eru
því með hleðslubúnaðinn
okkar tengdan við landraf-
magn yfir vetrarmánuðina
þegar báturinn er ekki á sjó.
Ganga þannig að því vísu að
vori að rafgeymarnir um borð
séu í góðu ástandi og tilbúnir
fyrir róðurinn,“ segir Lárus en
að hans mati má reikna með
nokkurra ára endingu á raf-
geymum þegar þeirra er gætt
með þessum hætti. „Þegar
saman fer Tudor-merkið, rétt
val á rafgeymum og góð um-
hirða þá fullyrði ég að end-
ing rafgeymanna er eftir því
góð,“ segir Lárus.
Lárus Björnsson, rekstrarstjóri Skorra. „Seljum allar gerðir rafgeyma fyrir bátaflotann og veitum ráðgjöf um hvað hentar hverjum og einum best.“
R A F G E Y M A Þ J Ó N U S T A
TUDOR Exbert Endurance. Þetta er ný
lína rafgeyma sem eru með hæga af-
hleðslu og þar af leiðandi vel dugandi
fyrir handfæravindurnar um borð.