Ægir - 01.03.2011, Blaðsíða 34
34
S M Á B Á T A S M Í Ð I
Á Siglufirði starfar fyrirtækið
Siglufjarðar Seigur ehf. og
sérhæfir sig í framleiðslu á
smábátum úr trefjaplasti og
breytingum á þeim. Fyrirtækið
var stofnað árið 2005 og er
það staðsett við Siglufjarðar-
höfn og því hæg heimatökin
að hífa báta nánast beint inn
á gólf. Nú um stundir segir
Guðni Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, að
næsta lítil spurn sé eftir nýj-
um bátum. Viðhalds- og breyt-
ingaverkefni beri því starf-
semina uppi en Guðni hefur
fulla trú á að þess sé ekki
langt að bíða að lifni yfir ný-
smíðinni á nýjan leik.
„Ég hef trú á að því að
þetta ástand muni vara út yf-
irstandandi ár en síðan mun-
um við sjá fjárfestingu í nýj-
um bátum aukast aftur,“ segir
Guðni en meðal nýsmíða-
verkefna að undanförnu hef-
ur verið smíði á bátum fyrir
sjóstangaveiði.
Vel búnir bátar
Siglufjarðar Seigur ehf. býður
fjölbreytta útfærslu af bátum
en hefur lagt aðal áherslu á
tvær skrokkgerðir í fram-
leiðslu sinni. Önnur er 3,3
metrar á breidd en hin er
3,8/3,9 metrar á breidd. Báð-
ar gerðirnar er hægt að fá í
ýmsum lengdum. Stýrishúsið
er með framhallandi gluggum
og góðu útsýni. Bátarnir eru
búnir sjótank í stefni og felli-
kili. Hægt er að fá bátana
opna með dekkhúsi yfir nið-
urgangi í vél eða með skjól-
vegg á bakborðshlið og með
lúgu við línuspil sem opnast
með spilinu. Einnig er hægt
að fá bátana alveg yfir-
byggða.
Í stýrishúsi og lúgar er góð
aðstaða fyrir mannskap, set-
krókur með borði og bekkj-
um og hægt er að fá eldunar-
aðstöðu með vask, ísskáp og
helluborði í stýrishúsi eða í
lúgar. Einnig er baðherbergi í
lúgar með klósetti og sturtu.
Rými er fyrir fjórar kojur. í
Siglufjarðar Seig hafa verið
settar mismunandi vélar, t.d.
Volvo Penta, Yanmar og
Cummings.
Skammt er liðið frá því
síðasta nýsmíði fór úr húsi á
Siglufirði en það var Ingunn
Sveinsdóttir AK-91. Sá bátur
er 11,27 metra langur og
3,8/3,9 metra breiður. Bátur-
inn er vel búinn til veiða,
með línuspili og línurennu
frá Beiti ehf., millibólaspili,
handfærarúllum og netanið-
urleggjara. Pláss er fyrir tólf
kör í lest. Eigandi Ingunnar
Sveinsdóttur er Útgerðar-
félagið Haraldur Böðvarsson
& Co á Akranesi.
„Þetta er mjög vel útfærður
bátur og búinn besta búnaði
fyrir bæði neta- og línuveiði.
Það má segja að Ingunn
Sveinsdóttir sé dæmigerður
fyrir það lag sem er á Seigs-
bátunum frá okkur,“ segir
Guðni.
Horft til Noregs
Fyrir nokkrum árum voru
seldir nokkrir Seigs-bátar til
Noregs og nú í vetur fór
Guðni á netavertíð í Lofoten
til að kynna sér aðstæður og
notkun bátanna ytra. „Þetta
gerði ég til að upplifa sjálfur
hvernig útfærsla bátanna er
best til notkunar í því formi
sem er á bátaútgerðinni í
Noregi. Þarna sá ég að út-
gerðin er nokkuð frábrugðin
því sem við þekkjum hér
heima. Menn eru í lengra út-
haldi, fara lengra til og búa
um borð í bátunum í höfnum
næst miðunum. Þar af leið-
andi er meira lagt upp úr
rými fyrir áhafnirnar og fleiri
atriðum sem eru lítið eitt
önnur en hér hjá okkur,“ seg-
ir Guðni og svarar aðspurður
að fyrirtækið vænti þess að
geta í framtíðinni selt fleiri
Seigs-báta til Noregs. „Sá var
einmitt tilgangurinn með því
að fara á vertíð þarna úti. Sjá
með eigin augum hvaða út-
færslu á bátum við ættum að
bjóða á þessum markaði.
Vonandi munum við sjá ár-
angur af þessu þegar frá líð-
ur,“ segir Guðni og bætir við
að síðar á þessu ári muni fyr-
irtækið kynna nýjung sem of
snemmt sé að greina frá
núna.
Bátasmiðjan Siglufjarðar Seigur ehf.:
Lítil spurn eftir nýsmíði en
breytingar aðal verkefnin
Ingunn Sveinsdóttir AK-91 var afhent frá Siglufjarðar Seig ehf. í vor. Öflugur og hraðgengur fiskibátur.