Skírnir - 01.01.1980, Side 99
SKÍRNIR
97
REVÍUR í REYKJAVÍK
leiksins er skopast með lagamál, slettur menntamanna, stíl frétta,
stíl kirkjunnar manna og þeirra sem líktu eftir máli íslendinga-
sagna. Hver persóna leiksins hefur sérkenni í málfari. 1 hverju
tilsvari má finna tilvísanir út í samfélagið. Þannig er umræðan
á sviðinu oft á skjön við atburðarás leiksins. Mikill hraði ein-
kennir atburðarásina, t. d. ríkir alger upplausn mestan hluta
annars þáttar. Ýkjukenndur stíllinn er oft brotinn upp með
beinni ræðu til áhorfenda.
í þeim umræðum sem urðu í kjölfar bannsins á Allt i grœnum
sjó kom afstaða höfunda til viðfangsefnisins skýrt fram. Andrés
Björnsson skrifar:
Það eru til menn sem vaða svo mjög o£aná í þjóðlífinu að þeir hljóta
öðrum fremur að vera undirorpnir hvers konar „krítík". Þessir menn eiga
því að fagna, auk annarra hlunninda, að meira er tekið eftir orðum þeirra
og athöfnum en annarra, og það er ekki nema sanngjarnt, að þeir verði að
hlíta því í staðinn, þótt menn taki einnig eftir því sem skoplegt er í fari
þeirra.14
Litlu síðar flutti Andrés fyrirlestur um gamanleiki frá upp-
hafi. Þar ræddi hann um nauðsyn þess að leikhús væri gagnrýnið
á samfélagið:
Jeg er hingað kominn til þess að óska þess, að hjer rísi upp menn og semji
skopleika fyrir þessa þjóð, sem sjeu svo snjallir, taki svo langt fram þessum
lítilfjörlegu tilraunum okkar, sem nú er rifist um, hátt og í hljóði, miklu
meira en hann á skilið, — að enginn muni eftir slíkum smámunum: Skop-
leika, sem ekki gleymi nokkrum þverbresti í þessu þjóðfélagi, heldur glenni
liann vægðarlaust framan í fólkið, þangað til það má til að sjá hann og gjöra
við honum.15
Höfundar leiksins stigu aldrei fram í dagsljósið. Bannið á
leiknum var virt, þótt það stæðist ekki fyrir lögum. Deilurnar
um Allt í greenum sjó hurfu fljótt í skuggann af öðrum pólitísk-
um æsingum þetta vor. Fyrst og fremst var það fánamálið sem
dró að sér athygli manna. Hópurinn sem stóð að leiknum kom
þar líka við sögu. Auk Andrésar voru í honum Skúli Thoraren-
sen yngri, Sigurður Sigurðsson frá Vigur, Jón J. Norland og
Guðbrandur Jónsson. Allir voru þeir heimagangar á heimili
Skúla eldri og studdu hann í pólitík. Andrés og Skúli skrifuðu
7