Skírnir - 01.01.1980, Page 131
SKIRNIR
LEIKRIT OG LEIKHÚS
129
skap og komust allténd ekki til frama í bókmenntum. Við opn-
un leikhússins 1950 voru fyrst sýndir tveir hinir sígildu íslensku
leikir, Nýársnóttin og Fjalla-Eyvindur; og fyrsta nývirki leik-
hússins, Islandsklukkan, sór sig að sínu leyti glögglega í hina
þjóðlegu leikhefð. Og þau nýju leikrit sem fram komu fyrsta
áratuginn eftir stofnun Þjóðleikhússins sömdu sig að mestu að
fyrirmynd fyrri leikritagerðar í landinu, mikið um söguleg yrk-
isefni, höfundarnir flestir komnir á efri aldur og höfðu margir
áður spreytt sig við leikrit, þó með misjöfnum árangri væri.
En Tryggvi Sveinbjörnsson, Jakob Jónsson, Sigurður Einars-
son, Davíð Stefánsson, Kristján Albertsson gengu í enga endur-
nýjun lifdaganna á leiksviði Þjóðleikliússins.
Það nýja sem fram kom áratuginn 1950—60, fyrir utan ís-
landsklukkuna, var í fyrsta lagi Silfurtunglið eftir Halldór Lax-
ness, samið að sjálfs hans sögn beinlínis til að prófa möguleika
hins nýja miðils, og svo í öðru lagi leikrit Agnars Þórðarsonar,
söguleikurinn Þeir koma í haust og borgaralegur samtíðarleik-
ur, Gauksklukkan. Þeir leikir sem mest kvað að á þessum ár-
um og hafa líka orðið varanlegir á leiksviði síðan, bæði í Reykja-
vík og úti um land, voru hinsvegar alþýðlegir gamanleikir, ætt-
aðir frá revíu og farsaleikjum fyrri ára: Kjarnorka og kvenhylli
eftir Agnar Þórðarson og Deleríum búbónis eftir Jónas og Jón
Múla Árnasyni, báðir tveir í Iðnó. Með Járnhausnum eftir þá
bræður Jónas og Jón Múla og öðru nývirki í svipuðum stíl og
stefnu, Hornakóralnum eftir Odd Björnsson og Leif Þórarins-
son og sviðsetningu sinni á Deleríum búbónis, 1970, reyndi síð-
an Þjóðleikhúsið að taka þessa leikhefð upp, eins og fleira
gott úr Iðnó, og semja hana að músíkalsmekk sem þá var kom-
inn til. Eftir sem áður er hið innlenda söngleiksform eins og
það birtist í þessum og fleiri verkum einskonar bastarður úr
revíu, farsa og gamanleik með söngvum, vaudeville, í líkingu
við Ævintýri á gönguför með sína löngu leikhefð að baki á ís-
lensku leiksviði.*
Á árunum um og upp úr 1960 dregur til meiri tíðinda í leik-
* Útgáfur og sviðsetningar leikritanna sem hér er fjallað um eru taldar
aftanmáls.
9