Jökull - 01.12.1983, Blaðsíða 157
Ferð á Vatnajökul vorið 1980
KRISTÍN INGVARSDÓTTIR
ABSTRACT
The author describes a tour on fwe snow scooters on
Vatnajökull which eight members of the Iceland Glacio-
logical Society carried out on five days in June of 1981. The
route went from Jökulheimar through Pálsfjall, Geirvörtur,
Thordarhyma, Grimsvötn, Kverkfjöll and back to Jökul-
heimar.
FERÐ Á VATNAJÖKUL VORIÐ 1980
Laugardaginn 24. maí 1980 lagði 9 manna hópur
af stað frá Reykjavík áleiðis austur með suður-
ströndinni. Þennan 9 manna hóp skipuðu Torfi H.
Agústsson, Valdimar Valdimarsson, Skúli Guð-
mundsson, Páll Fransson, Sofíía Vernharðsdóttir,
Skúli Már Sigurðsson, Vilhelm Andersen, Bragi
Hannibalsson og Kristín Ingvarsdóttir, sem ritar
þessa ferðalýsingu. Farartækin voru 4 jeppar og 5
vélsleðar. Veður var hið fegursta, sólskin og heið-
skírt og þreyta eftir annasaman undirbúning hvarf
eins og dögg fyrir sólu er jöklar sunnanlands blöstu
við. Hvítasunnuhelgin var framundan og allir búnir
að tryggja sér frí frá daglegum störfum næstu viku
og börnin komin í fóstur. Ferðinni var heitið á
Vatnajökul. I'ar sem snjóa leysti seint þetta vor, var
ekki orðið bílfært í Jökulheima. Því var ákveðið að
halda upp Breiðamerkurjökul og stefnt að því að
hafa Goðahnjúka fyrsta áfangastað á jökli, halda
síðan vestur um til Kverkfjalla, þaðan í Grímsvötn
og enda í Esjufjöllum.
Ferð okkar sóttist vel austur á bóginn og áðum við
fyrst undir Víkurhömrum þar sem við fengum okk-
ur hressingu úti í veðurblíðunni. Var mannskapur-
inn myndaður í bak og fyrir með kaífikrúsir á lofti og
munninn fullan af kjarngóðu nesti. Kvikmynda-
tökumaður hópsins, Páll Fransson, var þar manna
ötulastur bæði þá og í allri ferðinni og hefur það
vakið upp ljúfar minningar síðar að sjá þessar
myndir. Ber Páli bestu þakkir fyrir. Áfram var
haldið og þegar austar dró sást Öræfajökull skarta
sínu fegursta. Vel gekk að komast á jökulinn. Við
gátum ekið bílunum upp á jökulsporðinn og tekið
sleðana þar af. Rétt um miðnætti vorum við lögð af
stað upp jökulinn og ferðin langþráða hafin fyrir
alvöru.
Jökullinn var ber um 5 km upp og erfiður yfir-
ferðar fyrir vélsleðana með hina þungu dráttarsleða.
Allt gekk þó stórslysalaust og 21 klst. síðar vorum
Mynd 1. Goðheimar, skáli
JÖRFI á Hoðahnjúkum,
20. maí 1980. Ljósm.:
Bragi Hannibalsson.
JÖKULL 33. ÁR 155