Jökull - 01.12.1983, Blaðsíða 167
drykkjukvæði, sem Sigurður þekkti líka. Þetta
enska kvæði höfðum við nú kyrjað lengi í síbylju og
þar kom í veislunni, að okkur þótti ekki við hæfi að
fara með útlenda texta hér inni í miðri fóst-
uijörðinni. Það var byrjað að snara kvæðinu yfir á
íslensku, og allt í einu var veislan orðin að vísna-
leik og misjafnlega góða tillögur bornar fram. Eitt-
hvað nýtilegt var smíðað, en svo kom nóttin og
þreytan og við gáfumst upp, en höfðum þó af
sannfæringu snúið viðlaginu yfir á íslensku:
For to night will merry, merry be
tomorrow will be sober.
Augafullir erum við í kvöld
an allsgáðir á morgun.
Ég vaknaði við eitthvért brölt og verð þess var
að Sigurður er risinn á fætur og klukkan ekki 7 að
morgni. Hann stendur fyrir utan tjaldið í þessum
venjulegu morgunverkum og raular undir:
Kom þjónn og fleytifyll vor glös,
þá færðu stóra borgun.
Kom þjónn og fleytifyll vor glös,
þá færðu stóra borgun.
Augafullir erum við í kvöld
en allsgáðir á morgun.
Sá sem aldrei iðkar þjór
og edrú fer í bæli,
verður oft í elli sljór
og endar á dárabæli.
Augafullir erum við í kvöld
og ef til vill á morgun.
En fýrinn sem að fer á túr
og fer í bólið hreifur,
hann lifir sínu lífi í dúr
og deyr svo glaður og reifur.
Augafullir erum við í kvöld
og örugglega á morgun.
Veisluhöld í Þorsteinsskála urðu minni en upp-
haflega var áætlað. Matarbirgðir voru mjög til
þurrðar gengnar, en drykkjarfong urðu eftir á
sandinum. Þó var enn til efniviður í amrískar
pönnukökur og kökugerðarmaður fékk ómælt hól
fyrir. Raunar þóttu þær svo góðar að um þær
myndaðist einskonar helgisögn, ogjafnvel pínulítið
afsálrænum flækjum. Það gerðist þannig að í hvert
sinn, sem kona Halldórs Ólafssonar bakaði pönnu-
kökur, þá gerði hann eins og góðum eiginmanni
sæmir að hæla þeim á hvert reipi, en bætti svo
einatt við í sakleysi sínu, að þær væru hérumbil
eins góðar og pönnukökurnar, sem hann Guð-
mundur bakaði í Öskju. Félagsleg vandamál geta
skapast af minna tilefni, og það liðu fimmtán ár
Afmælisbörnin Guðmundur
og Sigurður.
11
JÖKULL 33. ÁR 165