Þjóðmál - 01.03.2009, Blaðsíða 46
44 Þjóðmál VOR 2009
þessu starfi . Tókust til dæmis ágæt kynni
með okkur Odvar Nordli .
Þau tengsl og vináttubönd sem þarna
mynduðust áttu oft eftir að koma sér vel,
svo sem þegar ég var í erlendum erinda
gjörðum fyrir verkalýðshreyfinguna og
Sölu miðstöð hraðfrystihúsanna en ekki
síst þegar vinna þurfti málstað Íslands fylgi
eftir útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200
mílur . Persónuleg tengsl eru gríðarlega
mikilvæg í alþjóðlegum samskiptum . Með
þeim er oft unnt að komast hjá því að byrja
á byrjun ar reit með viðræðum við lágt setta
embættismenn . Ef samband næst við hátt
setta embættis menn eða ráðherra geta þeir
lagt línurnar um hvern ig best sé að haga
viðræðunum þannig að fljótt sé hægt að
komast að kjarna málsins .
Íslendingarnir sem voru með mér í
Washington á sínum tíma voru Jón Rafn
Guð mundsson frá Sambandi ungra fram
sóknarmanna og Sigurður Guð munds son
frá Sambandi ungra jafnaðar manna, báðir
miklir ágætismenn . Við ræddum margt
saman . Okkur blöskraði þær árásir sem
forystumenn vestrænnar sam vinnu sættu á
Íslandi, menn eins og Bjarni Benediktsson
og Guðmundur Í . Guð mundsson . Á þá var
ráðist nánast linnulaust . Með okkur kviknaði
sú hugmynd að stofna breiðfylkingu ungs
fólks til að styðja við bakið á forsvarsmönnum
vestrænnar samvinnu . Þegar heim var komið
ræddum við þetta við forystumenn flokka
okkar . Niðurstaðan varð sú að stofna félag .
Við vönduðum vel til alls undirbúnings og
Varðberg var formlega stofnað ári síðar, 18 .
júlí 1961 . Samtök um vestræna samvinnu
studdu stofnun félagsins af ráðum og
dáð, undir forystu Péturs Benediktssonar
bankastjóra .“
Í lögum Varðbergs segir að tilgangur félagsins sé að efla skilning meðal ungs
fólks á gildi lýðræðislegra stjórnarhátta,
mikilvægis samstarfs lýðræðisþjóða til
verndar friði, vinna gegn öfgastefnum
og öfgaöflum og mennta og þjálfa unga
áhugamenn í stjórnmálastarfsemi með því
að koma á framfæri upplýsingum um sam
starf og menningu vestrænna þjóða, um
mark mið og starf Atlantshafsbandalagsins .
Þjóðviljinn brást hinn versti við stofnun
Varðbergs og kallaði það „ömurlegt af
sprengi alþjóðlegs auðvalds og hernaðar
stefnu“ . Félagið hefði verið stofnað sam
kvæmt pöntun frá NATO af „nokkrum
afdönkuðum Heimdellingum ásamt fáein
um framsóknarlituðum bitlingasmáköllum
sem þegið hafa mola af borði hermangsins“ .
Félagið væri fasískt í eðli sínu, „afsprengi
þess óþjóðlegasta og versta” sem þróast
hefði „með íslenskri æsku frá upphafi
hins erlenda hernáms“ . Þeir sem stóðu að
stofnun Varðbergs voru líka stundum kall
aðir „óhreinu börnin hans Bjarna“ Bene
dikts sonar . En Þjóðviljinn huggaði sig við
það að heiðarlegt ungt fólk fyndi að það
væri „eitthvað óheilbrigt og fráhrindandi
við þetta fyrirbrigði“ sem hefði það hlut
verk að „magna kommúnistagrýluna í aug
um ungs fólks og reyna að fá það til að trúa
á hernaðarbrölt Vesturlanda“ . Heiðarleg og
upplýst ungmenni myndu því ekki laðast
að þessum félagsskap .
Guðmundur H . Garðarsson og Odvar Nordli .