Þjóðmál - 01.03.2009, Blaðsíða 52
50 Þjóðmál VOR 2009
því . Þá hafði hún gert ítrekaðar tilraunir
til þess að ræða málið við yfirmenn sína í
framkvæmdastjórn sambandsins og koma
á framfæri við þá tillögum að úrbótum en
einungis fengið þau fyrirmæli að láta sem
ekkert væri . Þá hafði bókhald Evrópu
sambandsins ekki verið samþykkt í 8 ár
án þess að nokkuð hefði verið gert í því .
Andreasen sætti sig ekki við þessi viðbrögð
og að lokum sá hún ekki aðra kosti í
stöðunni en að gera málið opinbert .
Það vakti mikla furðu Andreasen að end
ur skoðendastofnun Evrópusambandsins
not að ist við Microsoft Excel töflureikni
for ritið í störfum sínum í stað viðurkennds
bók haldsforrits en það þýddi að kerfið var
opið fyrir hvers kyns misnotkun þar sem
mögulegt var að breyta færslum án þess að
hægt væri að rekja þær breytingar . Enn
fremur notaðist Evrópusambandið ekki
við hefðbundið bók hald með tvöföldum
færslum sem sam bandið krefst engu að
síður sjálft að fyrirtæki innan þess geri .9
Andreasen gagnrýndi harðlega að bókhald
Evrópu sam bands ins væri opið fyrir alls
kyns svindli og sagði að það væri í raun
verra en bókhald banda ríska fyrirtækis ins
Enron . Það hefði í það minnsta verið hægt
að rekja reikninga þess og færslur .10
Enn þann dag í dag, meira en 6 árum eftir
að bókhaldshneyksli Evrópusambandsins
komst í hámæli, og 14 árum eftir að endur
skoðendastofnun sambandsins neitaði
fyrst að samþykkja reikninga þess, hefur
lítið sem ekkert verið gert til þess að koma
bókhaldi sambandsins í viðunandi farveg
þrátt fyrir miklar og ítrekaðar yfirlýsingar
um annað þegar málið komst í fjölmiðla .
Enginn hefur verið látinn bera ábyrgð á
málinu . Aðeins ein manneskja hefur verið
9 „Marta Andreasen“, Wikipedia .org (skoðað 8 . febrúar
2009) .
10 „EU accounting worse than Enron, says whistleblower“,
Smh .com .au 3 . ágúst 2002 .
látin taka pokann sinn vegna þess, Marta
Andreasen .
Fleiri hneykslismál
Árið 2000 vöknuðu grunsemdir hjá endur skoð endum reikninga Evrópu
sam bands ins um að ekki væri allt með felldu
varðandi verktaka sem hagstofa sambandsins,
Eurostat, hafði samið við um ýmis verkefni .
Málið var sent til OLAF, sérstakrar stofnunar
sem sett hafði verið á laggirnar árið áður til að
berjast gegn hvers kyns spillingu í stjórnkerfi
Evrópusambandsins . OLAF aðhafðist hins
vegar ekkert í málinu . Málið vakti fyrst athygli
meira en ári síðar þegar þýski blaðamaðurinn
HansMartin Tillack hóf að sýna því sérstaka
athygli . OLAF sendi í kjölfarið frá sér skýrslu
sem sýndi fram á umfangsmikinn og skipu
lagðan þjófnað á fjármunum úr sjóðum
Evrópu sambandsins . Framkvæmdastjórn
sam bands ins hafðist loks að og lét reka
þrjá em bættis menn hjá Eurostat og segja upp
tölu verðum fjölda verktakasamninga .
Talið er að á tíunda áratug síðustu aldar
hafi Eurostat vísvitandi notast við tvöfalt
bókhald í því skyni að geta millifært háar
fjárhæðir á leyni lega bankareikninga sem
endurskoðend ur Evrópusambandsins höfðu
ekki vitneskju um og að andvirði sumra
verktakasamning anna hefði ennfremur verið
verulega ýkt . Talið er að um 4–5 milljónum
evra (580–725 milljón um króna) hafi verið
komið undan með þessum hætti á árunum
19962001 . Aðeins tókst að endurheimta
hluta af þeim fjárhæðum .11
Fjölmiðlar greindu frá því í lok júlí 2007 að
samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin hefði verið
fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefðu 1,4 milljarðar evra (203 milljarðar króna)
af fjármunum Evrópusambandsins (sem sóttir
eru í vasa skattgreiðenda aðildarríkjanna)
11 „Eurostat“, Wikipedia .org (skoðað 17 . febrúar 2009) .