Vísir - 30.04.1933, Qupperneq 1

Vísir - 30.04.1933, Qupperneq 1
Ritstjóri: PÁLL STEINGRlMSSON. Sími: 4600. Prentsmiðjusími: 4578. V Afgreiðsla: \ USTURSTRÆTl Sími: 3400. 1 2. Prentsmiðjusími: 4578. 23. ár. Reykjavík, sunnudaginn, 30. apríl 1933. 116. tbl. NÝbreytni í fyrra var, fyrir forgöngu ýmsra framleiðanda innlends varnmgs, stofnað til 'svokall- aðrar „íslenskrar viku“, í þvi skyni að hvetja menn til þess að nota innlendan varning sem mest, í stað erlends. Nokkm síðar var svo iðnsýningin hald- in, hér í Reykjavík, og varð hún að sjálfsögðu stórfengleg auglýsing fyrír íslenskar iðn- aðarvörur. Það er hinsvegar augljóst, að áhrif slíkrar stað- bundinnar auglýsingastarf- semi, næði tiltölulega skamt, ef ekki nyti blaðanna við. Áhrifa- ríkasti þáttur allrar auglýs- ingastarfsemi, verður altaf auglýsingastarfsemi blaðanna. En áhrif þeirrar starfsemi, geta verið misjafnlega víðtæk, eft- ir því, hvernig henni er hagað. Daglega flytja blöðin aug- lýsingar, sem að sjálfsögðu gera það gagn, sem þeim er sérstaklega ætlað, með þvi að gera daglegum lesöndum blað- anna kunnugt um það, sem auglýsendurnir vilja láta þá fá vitneskju um. En fjöldi þeirra sem þá vitneskju fá, er að sjálfsögðu takmarkaður af tölu þeirra manna, sem blöðin lesa daglega. Því er það, að farið er nú að tiðka það, að gefa út sérstök auglýsinga- stórblöð, ef sérstakt tilefni þyk- ir vera til þess að gera áhrif auglýsinganna sem sterkust og víðtækust, og eru blöðin þá höfð frábrugðin því venjulega, ekki aðeins að stærðinni til, heldur einnig að efni og frá- gangi og þeim dreift út meðal ahnennings. Útgeföndum „Vísis“ hefir nú, í tilefni af því, að starfsemi sú, sem hafin var með „íslensku vikunni“ i fyrra, er endurtek- in þessa dagana, liugkvæmst, að gefa út siíkt sérstakt aug- lýsinga-stórblað, og helga það íslenskum iðnaði og islenskri | verslun. Báðar þessar starfs- j greinir eru tiltölulega ungar með islensku þjóðinni. íslensk- j ur iðnaður má i raun og veru teljast að vera í fæðingunni. Og islensk verslun er aðeins fárra áratuga gömul. Öllum er þó ljóst orðið, hve veigamikil áhrif það hefir haft á velmeg- un þjóðarinnar, framfarir og menningu alla, að verslunin hefir komist í hendurinnlendra manna. Og menn vita það, að sama máli er að gegna um iðn- aðinn. Það er því full ástæða til þess, á þeim erfiðleikatím- um, sem nú ganga yfir, að magna öll þau öfl, sem nokk- urs megna, til að auka viðgang þessara starfsgreina. — Það er tilgangurinn með útgáfu þessa blaðs, sem ráðgert er að verði að minsta kosti tvítugfalt að stærð, að „leggja hönd á plóg- inn“ í þessu skyni. „Vísir“ þykist nú hafa á- stæðu til að gera sér góðar von- ir um, að þessi tilraun hans takist vel. Hann hefir yfirleitt fengið ágætar undirtektir aug- lýsanda, hajði úr iðnaðarstétt og kaupsýslumanna, sem hafa látið blaðinu í té auglýsingar um framleiðsluvörur sínar og verslunarvörur. Hefir mikil rækt verið lögð við það, að gera þessar auglýsingar sem best úr garði, svo að menn geti fengið af þeim sem glöggvasta liugmynd um fyrirtæki þau, sem hlut eiga að máli, og varn- inginn, sem þau hafa á boð- stólum, og eru i því skyni margar auglýsingarnar prýdd- ar myndum af munuin þeim, sem þær fjalla um. Má líka telja, að blaðið standi vel að vígi, til þess að hið ytra útlit þess geti orðið hið prýðilegasta, þar sem það er prentað i ein- hverri fullkomnustu prent- smiðju landsins. Þá þykist blaðið ekki síður geta miklast af því, hvernig til hafi tekist um val á aðalefni þess og meðferð á þvi. Birtast i þvi þrjár merkar greinir, um viðskiftamál og iðnað, eftir á- gætan, ungan vísindamann. Höfundurinn, dr. Björn Björns son, hefir nýverið lokið hag- fræðiprófi við háskólann i Heidelberg, og einnig hlotið þar doktors-nafnbót fyrir bók, sem Iinrm skrifaði um íslenska versiun. Mun hann vera ein- hver hinn efnilegasti fræði- rnaður íslenskur i sinni grein. Þessar þrjár ritgerðir hans, sem birtast i þessu blaði, eru um: 1. Viðskifti og viðskiftafræði. 2. Iðnað og iðju. 3. Verslun Islands. Er það fullvíst, að menn nrunu lesa þessar ritgerðir sér til ánægju og gagns. Þá lrefir blaðið og 'fengið leyfi til að birta fróðlega grein um innflutningshöftin, sem að vísu hefir birst áður í Verslun- artíðindum, en er svo merkileg og bygð á svo ítarlegum rann- sóknum, að rétt virtist að hún kæmi fleiri mönnum fyrir sjón- ir en þeirn, sem Verslunartið- indin hafa milli handa. Loks má gera ráð fyrir því, að það veki ekki alllitla athygli á blaðinu, að í þvi birtast nryndir af fjölmörgum mönn- um, eigöndum og forstöðu- mönnum iðnaðar- og versl- unarfyrirtækja, Sumir þess- ara manna eru nú lands- kunnir, en flestir þeirra eða þeir allir eru meira og minna kunnir, víða um land. Um ýmsa þessara manna, og ef til vill vel flesta, er svo ástatt, að þeir eru fæddir og uppald- ir og eiga ættingja og vini í ýmsum héruðum landsins. Af því, hve þessar atvinnustéttir eru ungar í landinu, og þó um leið i öruin vexti, leiðir það, að tiltölulega miklu meiri fjöldi þessara Inanna, eru aðfluttir borgarar, þar sem þeir starfa, heldúr en gerist t. d. i öðrum löndum, þar sem stéttirnar eru orðnar gainlar og grónar, syn- ir hafa tekið við af feðrum í marga Jiðu og nýir menn eiga erfitt uppdráttar. Af þessum ástæðum var það talið alveg víst, að vel myndi mælast fyr- ir, að birta þessar myndir, og að það mundi vekja meiri for- vitni og atliygli á blaðinu, og því fleiri vilja kynna sér það. Var upphaflega ráðgert, að fá leyfi til að birta myndir af eig- endum og forstöðumönnum sern allra flestra atvinnufyrir- tækja, en það hefir því miður ekki tekist. Ef til vill gefst þó tækifæri til að bæta úr því síðar. Fleira virðist ekki ástæða til að taka fram um þessa blað- útgáfu. Tilgangurinn með henni er sá, að stuðla að því, að iðnaðar- og kaupsýslumenn geti kynt almenningi viðsvegar um landið varning sinn, og að greiða með því fyrir hagkvæm- um viðskiftum manna á milli. Að lokum skal þess getið, að mynduril (og frásögnum um atvinnufyrirtadrin) er ekki rað- að eftir, neinni fastri reglu. Myndirnar urðu síðbúnar, og varð að prenta þær jafnóðum og þær bárust blaðinu. iiiinniiiiniiiiiniiiniiiiniiiiinniniinniininmiiiiiiiiiiinmiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiuiiiiiiHiiiiiiiniiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiii[|[iiiiiiinunmiuiHiiiiiiiii[Hiiiiiii[iii!iii[| ■ Fataefni, frakkaefni, buxnaefni, ávalt í miklu. úpvali, fpá því ódýpasta til þess dýpasta, sem til ep á mapkaðinum. 1 Til þess að fullnægja ailra eftipspupn, hefi eg sett á stofix hpadsaum á fötum við liliðina á liinni áðup þektu vinnustofu minni. Get þess vegna selt föt fpá 75.00 úp ágætum skoskum, enskum og nopskum efnum. Föt send gegn póstkröfu um land alt. Sauma eftir að- sendu málL Sparið óþarfa útgjöld og fyrirhöfn. Sendið mál af ykkup til mín, og mun eg senda velgerð föt eftir hvers ósk. Látið íslenskar, iðjusamar hendur hafa nóg að starfa. I Andrés Andrésson, Langaveg 3. iiiiiiiinmiiiimiiiiimniniiiiiiiiiiiiiiniiiiniiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiHiHiiniiiiniiiiiiiiimiHiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiniiiiiiinnmHininiiiiHHiiiiiiuiiniiiiiM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.