Vísir - 30.04.1933, Síða 59
VÍSIR
Ragnar Blöndal. Framkvæmda-
stjórar verslunarinnar eru þau Gu‘Ö-
rún og Ragnar. Þótt versluninni
væri mikill missir aÖ fráfalli stofn-
andans, hefir hún dafnaÖ vel undir
stjórn þeirra Ragnars og GuÖrún-
ar. Hefir versl. síðan rekið útbú á
Laugaveg og i HafnarfirÖi, og er
það stærsta vefnaðarvöruverslun
Hafnarfjarðar. Verslunin er rekin
á sömu lund og stofnandi hennar
hafði gert, og jafnan leitast við að
fylgjast með í öllu, er kemur nýtt
á markaðinn. Má svo segja, að
Verslunin Egill Jacobsen sé velflest-
um landsmönnum kunn, ýmist af
beinuin viðskiftum eða á annan
hátt. f þjónustu sinni hefir versl-
unin 25 manns.
Verslunin Máiarinn
var stofnuö 1924 og hafði fyrst að-
setur í Lækiargötu 2. Stofnendur
voru Pétur Guðmundsson ogSkafti
•Ólafsson, núverandi eigendur versl •
unarinnar. Rekstur hennar hafði
Pétur Guömundsson einn með
höndum fyrstu tvö árin, en þá
höfðu viðskiftin aukist svo, að þeir
félagar fengu yfrið nóg að starfa
viö þetta fyrirtæki sitt. Hafa þeir
háðir unnið við það alla tíð siðan.
í mars 1925 fluttu þeir verslunina
i Bankastræti 7, þar sem hún er
ennþá. Hafa viðskifti hennar auk-
ist jafnt og þétt. í fyrstu höfðu
þeir að eins hálfa miðhæð hússins
Bankastræti 7 undir, en nú alla
miðhæðina og kjallarann. Versl-
unin hefir umboð fyrir hið heims-
kunna þýska málningarfirma J. D.
Flugger, en öll framleiðsla þess
þykir með afbrigðum vönduð. Er
það eitt af allra elstu og kunnustu
málningarfirmum Þýskalands og
<er á þessu ári hálf önnur öld liðin
frá stofnun þess. Hefir ,,Málarinn“
allar tegundir framleiðslu þessa
firnia á boðstólum, og eru þær nú
orðið afar mikið notaðar hér á
landi. Einnig eru þeir umboðs- j
menn hins kunna enska firma
Raines & Porter, Ltd., Hull, sem
býr til hina víðkunnu Muradek
þvottekta „Distemper“-málningu
og „Velmatt“ olíumálningu o. fl.
Ennfremur versla þeir með alls
konar veggfóður og hafa umboð
fyrir Hansa Iven & Co. i Altoria,
Þýskalandi, en verksmiðjur þessa
firma eru víðkunnar. — Þegar
þeir P. G. og Sk. Ól. hófu vegg-
fóðurverslun sína, var hér að eins
enskt veggfóður á markaðinum og
komu þeir fyrstir manna með
þýskar veggfóðurtegundir á inn-
lendan markað. Verslunin Málar-
inn hefir kappkostað að halda sín-
um gömlu og góðu samböndum,
því að hún álítur hag sinna mörgtt
og góðu viðskiftamanna best
borgið með því. Njóta þeir félag-
ar hins besta trausts þeirra, sem
við þá skifta, enda eru þeir menn
áreiöanlegir og í öllu góðir við-
skiftis.
Sveinn Egilsson
hefir bilaviðgerðaverkstæði og
Ford-bílasölu innarlega á Lauga-
vegi. Sveinn Egilsson dvaldi um
nokkurt skeið í Ameríku og nam
]tar til hlitar alla meðferð og við-
gerð á bílum. Átti hann þá drjúg-
an þátt í, að koma hingað fyrsta
bílnum, er hingað fluttist, og þar
með ryðja brautina fyrir þeirri
miklu bílanotkun, sem nú er hér,
Arið 1919 kom Sveinn heim og
setti þá á stofn bílaviðgerðarverk-
stæði. 1920 bygði hann myndarlegt
hús yfir verkstæðið, og siðan hef-
ir hann aukið miög við það, uns
það nú er oröið eitt af fullkomn-
ustu verkstæðum í þessari grein.
Frá því 1925 hefir Sveinn haft
sölu Fordbila á hendi og alt þeim
tilheyrandi. Hefir hann og selt
mikið af Fordvélum í báta og fer
sú sala sívaxandi. Viðgerð bíla
annast hann og þó einkum Ford-
bíla, og eru vélar allar til þess
fullkomnar. Umboð hefir Sveinn
fyrir ýmsar þektar verksmiðjur í
bílahlutum, og má þar einkum
nefna Suberling Rubber, Co., sem
er með þektustu gúmmíframleið-
endum heimsins, svo og mörg
f'leiri. Starfsmenn hefir hann að
jafnaði 11, og hefir starfsemi hans
farið vaxandi alt frá öndverðu.
Kolaverslun G. Kr.
Guðmundur Kristjánsson var
skipstjóri í mörg ár, áður en hann
hóf verslunarstarfsemi sína; með-
al annars var hann lengi i förum
með strandferðaskipiö „Vestra“.
Árið 1918 settist hann að í Reykja-
vík sem skipamiölari og mun hafa
verið með þeim fyrstu í þeirri
grein hér í Reykjavík. Jafnframt
Guðmundur Kristjánsson.
rak hann kolaverslun, og dafnaði
hvorttveggja vel undir stjórn hans,
enda er Guðmundur alþektur dugn-
aðar og atorkumaður. Fyrir ári
síðan seldi hann skipamiðlaraversl-
un sina, en tók jafnframt í sinar
hendur allar eignir Útvegsbankans
í Keflavík. Rekur hann þar nú
verslun með kol og salt og birgir
upp nálega öll Suðumes af þeim
vörum og Grindavik einnig að
nokkru lejái. Jafnframt kaupir hann
fisk, nýjan og saltaðan, í stórum
stil, og flytur út mikið af sjávar-
afurðum.
Verslun B. H. Bjamason
í Aðalstræti 7, er stofnsett 1886.
Brynjólfur H. Bjarnason mun
vera einhver elsti núlifandi kaup-
maður borgarinnar, sem enn er í
fullu starfi. Árið 1896 keypti B. H.
B. húseignina Aðalstræti 7, og
Brynjólfur H. Bjarnason.
hefir hann rekið þar verslun sína
óslitið síðan. Verslun B. H. B.
hefir dafnað vel, enda þótt byrjað
væri smátt, og nýtur hún hins
mesta trausts hérlendra og er-
lendra viðskiftamanna. Brynjólí-
tir hefir lengst af búið í verslunar-
húsi sínu, en 1928 reisti hann
myndarlegt hús á Sólvöllum og
býr þar nú. Verslun B. H. B.
verslar með marga hluti, en aðal-
lega með allskonar verkfæri, ýmsa
hluti til smíöa, og búsáhöld. R.
H. B. rekur verslun sína ein-
göngu með eigin fé, þarf engan
láns að biðja, og sætir þvi að sjálf-
sögðu mjög hagkvæmum kaupum
erlendis.
Valdemar F. Norðfjörð,
rekur umfangsmikla umboðssölu.
Stofnaði hann verslun sína 1920,
en áður haföi hann fengist við
Valdemar F Norðfjörð.
verslunarviðskifti um mjög langt
skeið. Aðalgreinir verslunarinnar
eru útgerðarvörur, einkum veiðar-
færi, og flytur hún nú inn ýmsar
þektar vörur af þVi tægi, svo
sem iborinn segldúk frá Andrew
Mitchell & Co.; línubelgi írá John
Martin & Co.; ennfremur hefir
Norðfjörð umboð fyrir hið víð-
* kunna komvörufirma Joseph Rank
Ltd. Hull, og selur hér geysimik-
ið af hveiti og öðrum kornvörum
frá því firma. Korn- og fóðurvör-
ur selur verslunin og frá þektustu
firmum Dana i þeirri grein.
Kristján Ó. Skagf jörð
umboðs- og heildsali, hóf verslun-
arstarfsemi sína á Patreksfirði
1912, en til Reykjavíkur fluttist
hann 1916 og hefir rekið verslun
sína hér síðan. Kristján stuodaði
verslunarnám í Englandi nokkura
hríð, og lagði þar grundvöllinn að
Géöar vörur! — Gott verö!
Prímusar og
Ferðaáhöld,
Olfuvélar,
Búsáhöld,
af öllu tagi.
Ávalt fyrirliggjandi.
Hvergi ódfrara.
Hengilásar,
Smekklásar,
Smekklásskrár,
Skothurðaskrár,
Skothurðajárn
og aliar
Byggingavörur
édýrastar.
Skrúfur,
Saumur,
Gluggajárn,
Þaksaumur,
Gler.
Kítti.
Skrúflyklar frá
TALE vörur eru. bestar.
Verslíö ávalt 1
ern hestu verkfæri.
Aluminiuin - vörur
frá
- Hoj ang -
kjósa ailar
húsmæður.
Munið það!
JárnvOrudeild Jes Zímsen.