Vísir - 30.04.1933, Page 69
VÍSIR
Eto- vörur.
jUlt! 'ÍT-jSfi
wm
Súpur í rúllum
SúpuF i pökkum, ótal teg.
Kj ötkraftsteningar
Kjötkraftur i flöskum
Búdingsduft i pökkum:
VaniIIe, Möndlu, Sdkkulaöis
Vörur þessar Iiafa þegar unn-
iö sér almenna hylli.
Flest allir kaupmenn borg-
arinnar selja Eto vörur.
Einkaumboð fyrir:
RICHABD GRAEBENER.karlsruhe
H. ÓLAFSSON & BERNHðFT.
síðuna yfirleitt, utan Reykjavík-
ur?
Eg veit það ekki. En grimur
minn er sá, að börn og ungliug
ar hefði gott af því, að fá meira
lýsi, en þeim er yfirleitt gefið
nú. Sumstaðar til sveita er ný-
mjólkin seld úr búinu, svo að
börn munu namnast hafa nægi-
lega mjólk, sist nýmjólk. Og í
kaupstöðum og kauptúnum er
1 víða mjólkurskortur eða mjólk-
in þá svo dýr, að fátækt fólk
hefir ekki efni á því, að kaupa
hana handa börnum sínum.
Þar sem svo hagar til, virðist
alveg sjálfsagt, að bæta börnun-
um nýmjóikurskortinn með
hreinsuðu þorskalýsi. Það svík-
ur þau ekki. — Og þó að engum
mjólkurskorti sé til að dreifa,
virðist alveg sjálfsagt, að láta
börn og unglinga ekki vera án
þessa ágæta heilsugjafa.
sáralitill. Það er engu likara, en
að fólkið haldi, að síldin sé ekki
eiginlega mannamatur. Hún sé
að minsta kosti ekki handa Is-
lendingum. Hún sé bara handa
útlendingum og líklega nógu
góð í þá. — Við Islendingar get-
um ekki verið að því, að leggja
okkur slikt til munns.
Það mun örugt, að sildin sé
góð og holl fæðutegund. — Hún
er sögð næringarefnarík og bet-
ur til þess fallin en margar aðr-
ar fæðutegundir, að matbúast
á fjölbreytilegan hátt.
Á námskeiðum þeim, sem
haldin hafa verið í þvi skyni,
að kenna fólki síldarátið og
kenna húsfreyjum og ungum
stúlkum að matreiða síld ineð
ýmsu móti og búa til allskonar
sildarrétti, hefir ahnenningi ver-
ið gerður kostur á þvi, að
bragða ýmsa síldarrétti ókeyp-
is. Og fólkið hefir komið og
smakkað réttina og látið mjög
vel yfir. Því Iiefir þótt þeir vera
herramannsmatur. En fæstum
hefir dottið í hug, að kaupa síld
og neyta hennar að staðaldri.
Eg hygg, að þetta einstaka
tómlæti fólks, að því er til sild-
arinnar tekur, sé nálega óverj-
andi. — Síldin er ódýr, ljúffeng
og holl fæðutegund. Hún er
bætiefnarik, að þvi er vísindin
telja, en þess liáttar fæðutcg-
undir ætti að vera i miklum
metum hafðar og jafnan á hvers
manns borði.
Eins og alhr vita, er krökt
af sild hér við land á hverju
súmri, og stundum veiðist svo
jnikið, að enginn vill kaupa öll
þau ósköp, hvorki til bræðslu
né söltunar. — Hverjum manni
eða hverju heimili ætti að vera
innan handar að afla sér síldar
til heimilsnotkunar á liverju
ári, en hversu margir gera það?
Eg veit það ekki með neinni
vissu, en hitt veit eg, að þau
heimili eru miklu fleiri, sem
láta það ógert. — Og það er illa
farið.
Bændur og kaupstaðbúar all-
ir, sem fyrir heimili eiga að
sjá, ætti að gera sér að fastri
reglu, að afla sér einnar síldar-
tunnu á hverju hausti. Þar fengi
þeir góða fæðutegund, holla og
næringarmikla. Og verðið er
oftastnær svo lágt, að engum
ætti að vera ofvaxið að kaupa.
Þorskalýsi.
Það hefir löngum verið kunn-
ugt, að þorskalýsið er bæðí
liolt til manneldis og nærandi.
Þegar eg var að alast upp,
lieyrði eg gamla karla tala um
það, að þeir hefði drukkið sjálf-
runnið þorskalýsi á yngri árum,
er þeir stunduðu sjóinn. —
Þeir sögðust hafa rent stórum
bollum eða krúsum í kaggann
og þambað lýsið eins og mjólk
eða vatn. Og þeir sögðust alt af
hafa verið hraustir og heilsu-
góðir, aldrei orðið misdægurt.
Þeir fengu ekki einu sinni kvef
eða „inflúensu“, ef þeir drukku
„blessað lýsið“. — Og þeir sögð-
ust hafa orðið filefldir af lýsinu.
Einn sagðist hafa komið „grút-
máttlaus“, þ. e. kraftalaus, í
vcrið, en liann liefði gert sér að
fastri reglu, að drekka aldrei
minna en einn vænan kaffi-
bolla af lýsi á dag alla vertiðina
á enda. Og árangurinn hefði
verið furðulegur. I vertíðarlok
hefði liann verið orðinn „vel af
manni“, jafnvel sterkur og sí-
spriklandi i fjöri. Og alt hefði
þelta verið lýsinu að þakka. —
Hann sagði að það hefði verið
föst og ófrávíkjanleg regla, að
skipshöfnin hefði raðað sér á
lýsiskaggann áhverjum morgni,
áður en róið var. Mundi hver
maður liafa drukkið sem svar-
aði vænum kaffibolla, en sum-
ir meira. Það hefði yljað þeim á
sjónum og bægt frá þeim öllum
lasleika. Stundum drukku þeir
brennivín og urðu fullir, ef þeir
neyttu þess á undan lýsinu, en
drykki þeir lýsið fyrst, gekk
þeim seint að verða ölvuðum.
Nú á síðustu árum hefir mik-
ið verið um það rætt, að nauð-
synlegt væri, að gefa börnum
og unglingum þorskalýsi. Þeim
væri fátt nauðsynlegra, en sól-
skinið og lýsið.
Sérstaklega hefir einn af
læknum landsins, dr. med.
Gunnlaugur Claessen, skrifað
talsvert um málið og veit eg til
þess, að orðum lians hefir ver-
ið mikill gaumur gefinn. Hér i
Reykjavik mun vera orðið tals-
vert algengt, að gefa börnum
þorskalýsi og er það mest-
megnis hvatningarorðum dr. G.
Gl. að þakka.
En livernig er þetta úli um
sveitirnar? — Eða við sjávar-
Erlendar fréttir.
Briissel í apríl.
United Press. FB.
Nýtt háloftsflug.
Max Cosyns, lærisveinn og að-
stoðarmaður Piccard’s prófessors, á
ferðum hans upp i háloftin, undir-
býr nú háloftsflugferð upp á eigin
spýtur. Ætlar hann að nota flug-
kúlu Piccard’s, „Belgica“, og ljúka
við hinar vísindalegu athuganir,
sem Piccard gerði í flugferðum sín-
um. Cosyns er 25 ára, en hann er
þegar talinn mjög efnilegur vísinda-
maður. Hann naut aðstoðar Ernest
Demuyter’s til þess að læra með-
ferð loftfara (balloon), en Demuy-
ter vann þrívegis Gordon Bennett
flugverðlaunin fyrir Belgíu. — Co-
syns hefir í huga að leggja i há-
loftsflugferð sína einhvern tíma á
tímabilinu 15. júní—15. september
og sennilega leggur hann upp á stað
nokkrum skamt frá belgisku-frakk-
nesku landamærunum. Verður
staðarnafninu haldið leyndu. Að-
stoðarmaður hans verður Jacques
Debruyn, ungur verkfræðingur, sem
tekið hefir próf við háskólann í
Brússel. Þeir félagar ráðgera að
leggja upp í háloftin, þegar veðuf-
lag er þannig, að þá reki hægt suð-
austur á bóginn, og búast þeir þá
við að lenda einhversstaðar á Saar-
svæðinu. Þeir hugsa sér að fara af
stað i dögun og vera alls 15 klst.
á flugi.:— Stuðning til háloftsflugs
þessa veitir Fonds Nationale de la
Recherce Scientifique, en félag
þetta er stofnað af Alberti, kon-
ungi Belgíumanna.
Los Angelos í apriL
United Press. - FB.
Múmíurannsóknir í Mexíkó.
Paxson C. Hayes, prófessor, sem
dvalið hefir 4 ár i Mexíkó, við forn-
minjarannsóknir, heldur þvi fram,
að fyrir 6000 árum hafi nsaþjóð
bygt norð^estur-hluta Mexikó. Hef-
ir prðfessorinn rannsakaö múmí-
ur, sem fundust i rakalausum hell-
um þar í landi og komist að þess-
ari niðurstöðu. Fór hann þeirra er-
inda suður til Mexikó, að reyna að
rannsaka upprmia Indíána. Alls
rannsakaði hann 34 múmíur. M. a.
lét Paxson svo um mælt:
„Eg hygg, að risar þessir hafi
verið af mongólsku kyni, af ólik-
um stofni þeim, sem Indíánar eru
af komnir, að því er ætla má.
Múmíurannsóknirnar hafa leitt í
ljós, að höfuðlag risanna hefir ver-
ið annaö og greftrunarsiðir aðrir
en tíðkast meðal Indíána. Auk þess
eru augu þeirrra skásett. Meðal-
maður, fullvaxinn, hefir verið 6 fet
og 7 þuml. Þeir höfðu smáar fæt-
ur, en hendurnar voru af eðlilegri
stærð. Múmíurnar mega heitar ó-
skemdar. Risaþjóð þessi hefir haf.t
svart hár. — Mjög lítið af verk-
færum og veiðarfærum var grafið
með líkunum, en Indíánar leggja,
sem kunnugt er, slíka hluti í graf-
ir vina og ættingja, til notkunar á
„veiðilendunum“ handan landamær-
anna.“
SjalfSfSrjkf þv’offaeftii
HeiðraSa húsmóðirl
Fyrst að ekki finst betra og ómengaðra
þvottaefni en FLIK-FLAK, og FLIK-FLAK
er eins gott og það er drjúgt — og þegar þér
vitið, að FLIK-FLAK getur sparað yður tíma,
peninga, erfiði og áhættu — er þá ekki sjálf-
sagt, að þér þvoið að eins með FLIK-FLAK.
FLIK-FLAK er algerlega óskaðlegt, bæði
fyrir hendurnar og þvottinn; það uppleysir
öll óhreinindi á ótrúlega stuttum tíma — og
það er sótthreinsandi.
Hvort sem þér þvoið strigapoka eða silkL
sokka, er FLIK-FLAK besta þvottaefnið.
Heildsölubirgðir hjá
I. BRYNJÓLFSSON & KVARAN.