Vísir - 24.12.1953, Síða 28

Vísir - 24.12.1953, Síða 28
28 JÖLABLAÐ VÍSIS tvo sólarhringana styttum við okkur stundir í hellinum meS ýmsu móti, en úti fyrir var rigning, krapaél og snjókoma á víxl. Um síðir, 3. sept., virtist veðrið vera að skána dálítið, svo við kvöddum tjaldstað okkar þá um morguninn kl. 6%. Þennan dag skiptust á hvassar krapaskúrir og sólskin. Færðin var afleitt; yfirborðið var hrufótt eins og'sjávarís á heimsskautasvæðinu og ofan á því krapalegur, og við vorum báðir votir og kaldir og í slæmu skapi. Þegar við komum að „Scotia“-sleðanum, hnýttum við honum aftan í hinn. Hlössin á sleðunum voru nú orðin miklu léttari en fyrir þrem vikum, en meiðarnir voru orðnir eyddir og hrjúfir, og bráðlega komum við af snjón- um á beran ís með nöbbum og hrufum, sem léku þá enn verr. Ástandið versnaði bráðlega. Fyrir framan okkur var flak- andi sprungusvæði, er virtist ætla að loka leiðinni. Við skild- um sleðana eftir, til að leita fyrir okkur. Leiðin til svarta klettsins reyndist brátt ófær, 'svo við snerum til vinstri og komumst á hæð eina úr grjót- hröngli, en sunnan undir henni 'lá harður snjóskafl og náði niður á slétta jökultotuna. Ef við kæmumst á þennan stað, var vandinn leystur. Við sner- um aftur til sleðanna, drógum þá dálítið til baka og beygðum um leið suður á við, i því skyni að komast hjá verstu sprung- unum. Ein þeirra, nokkuð stór, var nærri búin að gera okkur griklt, en við fundum 10 metra langa snjóbrú, sem við kom- umst á yfir um, og notuðum við þetta vaðinn í fyrsta og einasta skiptið á ferðinni. Þegar við komumst af sprungusvæð- inu, komum við á stórhrufótt- an skrúfís, sem reyndi svo mjög á sleðana að minni sleðinn brotnaði og við urðurn að hlaða mestöllum farangrinum á hinn. Rétt um það bil sem- myrkrið skall á, komumst við að litlu hæðinni. Nú var farið að rigna aftur svo við settum upp blautt tjaldið, fengum okkur bita og lögðumst til svefns. „Björn“ framundan? Morguninn eftir var komið sólskin og við hófum ferð okk- ar niður gamla snjóskaflinn. Brattinn var svo mikill, að annar okkar varð að fara á eftir og halda við sleðana, með- an hinn fór á undan og stýrði þeim. Aftur urðu draúmar okk- ar um að bruna á fleygiferð niður hjarnbrekkurnar að engu, — nokkrar jökulsprungur, sem við sáum neðst í brekkunni, bægðu frá öllu heimskulegu flani. Við beygðum til vinstri fram hjá sprungunum og fór- um eftir næstum láréttri jökul- totunni, þar til hún þynntist og við stóðum á jökulurðinni og stönzuðum við lítið stöðuvatn með smájökum á floti. — Hinn ágæti, gamli ,,Scotia“-sleði dugði okkur ferðina út, og við ákváðum að hafa hann með okkur heim, jafnvel þótt við yrðum að skilja allt annað eftir. Hann var smíðaður í Noregr fyrir skozkan suðurheims- skautsleiðangur og nú hafði | hann dugað okkur ágætlega á þessari jökulferð. Hann hvílir sig nú og hallast kyrfilega upp að veggnum beint á móti okkur, meðan við erum að skrifa; lík- lega dreymir hann um mikla sigra á nýjum víðáttum. Norðurbakki vatsins mynd- aðist af jökulveggnum, en á allar aðrar hliðar lá jökul- ruðningur blandaður grjót- rusli af eldfjallauppruna -að vatninu. Handan við vatnið, að sunnan, var þröngur dalur og hinum megin við hann lang- ur.fjallrani, sem við töldum al- veg víst að væri „Björn“. í norðvestri, um þrjá kílómetra burtu, var svarti gigurinn, sem virtist hafa brotist upp úr hjarninu og myndað V-lagaða gjá í jökulinn. Jarðvegurinn milli okkar og gígsins var flat- ur, en sundur skorinn af mörg- um vatnslænum, nema þar sem fallegur, íítill, keilulaga gígur reis, fagurrauður og um hundr- að metra hár. Þegar við höfðum valið okkur tjaldstæði á flatri sillu þrem metrum yfir yfir- borði vatnsins, tók veðurfræð- ingurinn að sér að tjalda, en ljósmyndarinn fór að skoða „leikfangs“eldgíginn. Legið úti matarlausir og tóbakslausir. Næsti dagur var sunnudagur, og við hugsuðum sem svo, að þar sem við værum nú búnir að ljúka ætlunarverki okkar, þá ættum' við að hvíla okkur reglulega vel. Þetta var sjötti sunnudagurinn síðan við fórum að heiman, og enginn þeirra hafði verið verulega velheppn- aður. En vistirnar voru farnar að rýrna og þær urðu að duga okkur til bæja, svo að við lögð- um af stað upp úr nóni að leita hins vandfundna Núps- staðarbæjar. Fyrst í stað geng- um við hratt niður á við á greiðfæru landi á vinstri bakka árinnar, en brátt fóru djúp og að því er virtist ófær klettagil að vera á vegi okkar, svo við lögðum beint upp í skriður f jallsins „Björn“. Það yrði lahgt mál að skýra frá öllum skorningunum sem við fórum yfir eða gengum upp fyrir endann á, en að síðustu kom- umst við í aðaldalinn; voru þar ágætis hagar og fjöldi sauð- kinda, en ekki sást neitt til manna eða híbýla þeirra. Um klukkan hálfníu var farið að dimma, svo við ákváðum að æja. Stór klettur í gili einu virtist líklegur til að skýla okkur eitthvað. Við höfðum verið svo óvai’kárir, því mið- ur, að fara næstum því mat- arlausir af stað, þótt reynsla okkar hefði átt að kenna okkur að varast slíkt. Það eina el'ds- neyti sem við fundum, voru nokkrir gulvíðissprotar og fá- ein sprek, sem við týndum upp af vegi okkar. Við gátum samt steikt nokkrar flesksneiðar og hitað svolítinn vatnssopa. Svo fórum við að búa um okkur eins og bezt gekk og reyndum að sofa. En þetta var auma nóttin. Kaldur gustur blés á víxl upp og niður gilið og sletti úr sér kalsaskúrum öðru hverju. Annar okkar var mjóg lasinn og til. að auka enn a vesaldóm okkar hafði gleymst, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum að taka nema ögn af tóbaki með í ferðina. Dagur rann að siðustu upp yfir tvo vesælustu einstaklinga, sem fyrirfundust, eða réttara týnst hÖfðu á íslandi. Komið til byggða — óvænt. Þegar annar okkar hafði nært sig á dálitlu af hráu svína- fleski og hinn á súkkulaði og bjartsýni, héldum við enn af stað kl. 4,15 árdegis. Sólin fór brátt að skína milli skúra og eftir að við höfðum fundið stóra flekki af indælum, þroskuðum blábérjum, fórum við að verða bjartsýnni. Nú, í fyrsta sinni, vorum við allt í einu komnir á skýra og greinilega götu og hafið var beint framundan. Klukkan 9% komum við fram á hamrabrún, litum niður fyrir og — vorum nærri því dottnir niður í kálgarðinn á búgarði tvö hundruð fetum fyrir neðan. Við hlupum aftur á bak nokkur skref, settumst niður og gerð- um okkur gott af því sem ’við áttum eftir af mat, því við bjuggumst við langvinnum út- skýringum af okkar hálfu út af því að birtast þarná allt i einu, áður en við gætum vænst matar úr annarri átt. Svo tygjuðum við okkar til niður- g'öngu og fundum brátt götu- slóðann niður að bænum. Tvö eða þrjú börn voru úti við og virtust vera að mjólka belju. Þegar þau sáu þessa skeggjuðu og sólbrendu ferðalanga störðu þau á okkur forviða og ótta- slegin, og hafa sjálfsagt munað eftir sögunum frá vetrarkvöld- unum um útilegumenn og sauðaþjófa óbyggðanna, því þau flýðu burtu og skildu kúna Bernh. Petersen IleTkjavík Símar: 1570 (2 línur). Símnefni: ,,Bernhardo“. upir: Þorskalýsi, Síldarlýsi, Síldarmjö!, Fiskimjöl, ' HarSfisk, Söít hrogn, Sykursöltuð hrogn. Svtlur: Kaldhreinsað meðalalýsi, Fóðurlýsi, Lýsistunnur, Siláartunnur, Kol í heilum förmum, Salt í heilum förmum. JVý ísiSSliugnin huicS- itw*t»i n s unn w$ iöð Sólvallagötu 80. — Sími 3598. $ 9 ® ® S '9

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.