Vísir - 24.12.1953, Blaðsíða 34

Vísir - 24.12.1953, Blaðsíða 34
34 JÓLABLAÐ VÍSIS inn. Og í fyrsta skipti sem hanri J fór þarna ofan var hann svo óheppinn að stingast á öxlina og meiddist töluvert. En börn- in horfðu á hann stjarney.gð og' hrifin og gleymdi hann allri kvöl er hann sá eftirvæntingu þeirra. „Þau voru svo yndisleg,. að þau gagntóku hjarta mitt og ég elskaði þau eins og ég ætti þau sjálfur. Næstu nætur gat ég lítið sofið fyrir verk í öxlinni en á meðan ég var í hópi barnanna gleymdi ég hon- um alveg.“ Þarna áréttaði hann þau sannindi að menn eigi að gleyma sjálfum sér annarra vegna. Börnin eru hrifin af honum og álíta hann vera regulegan jólasvein. Þau urðu 15 þúsund sem sátu á kjöltu hans síðast liðið ár, er hann hélt tvær sýningav á dag Komið við hjá SjódrottningunnL Sýningarnar eru bæði að morgni og eftir nón. Þá heyrist fyrst 1 sleðabjöllum og síðan þagna þær. Þá standa allir á öndinni af eftirvæntingu og enginn bærir á sér. Svo koma stígvél jólasveinsins, með hringlandi bjöllum, í Ijós við arinopið á reykháfnum, síðan sjást rauðu buxurnar hans og síðast kemur hann allur í ljós, með blikandi augu og baugana rjóða af kulda, eins og hann sé nýkominn úr sleðaferð. Þetta er aðeins upphafið að leiknum. Síðan sezt hann í öndvegi hjá arinum og á -ar- inhillunni eru smágjafir handa börnunum. Börnin ganga nú fyrir hann eitt í einu. En á leiðinni koma þau við hjá snjódrottningunni, sem situr honum til hægri handar og þau hvísla nöfn sín að henni og hvers þau óski helzt um jólin. Síðan koma þau til hans titr- andi af eftirvæntingu og stór- eyg af æsingi, en þau sefast brátt er hann ávarpar hvert utn sig með nafni. Áheyrendur undrast þetta en börnunum þykir það eðlilegt. Hér eru reyndar dálítil brögð í tafli. Snjódrottningin hefur hnapp í eyranu, sem er | raun réttri hljóðnemi, og þánnig berast nöfnin til hans.- Hann spyr aldrei börnin hvað þau vilji fá í jólagjöf. Með mjúkri og hljómmikilli röddu talar hann við þau um hina yndislegu jóiahátíð og þann anda sem þá ríkir. Minnir börnin á að til sé börn, sem og bendir börnunum á hversu sælt sé að gefa og að sýna öðrum góðvild og ástúð. Fyrir tveim árum varð lítil stúlka svo yfirkomin af þessum orðum hans að hún reif úr sér lausa tönn og gaf honum! Stundum eru börnin all að- súgsmikil, en hann er ávallt ljúfmannlegur og góður við þau. Að síðustu tekur hann smágjafir af arinhillunni og gefur þeim. — Hann hefur lag á að sjá það út hverjir séu for- eldrar barnanna og hefur þá oft góð orð um að það sé lán- samir foreldrar, sem eigi svo efnileg börn. Klunnin og svínift. í matstofu verzlunarinnar geta hundruð manns setið yfir borðum,, og, þar;... snæða þau daglega hádégisyerð, jóla- sveinninn og snjódrottningin. Er þáð þá stárf .jólasveinsiris að skera srieið af dýrindisköku, sem svo er úthlutað og getur hvert barn í salnum sótt köku- sneið til hans. Og Um leið og hann byrjar það verk les hann ætíð stutta og fallega bæn. -— En við verzlunina er um jóla- leytið annar skemmtikraftur, Felix Adler ag nafni. Hann er klunni að atvinnu og er ekkert hrifinn af því hvernig fólk þyrp ist um jólasveininn. Hann ligg- ur á því lúalagi að reyna að draga athygíina að sér, og með' ajöfullegri nákvæmni ryðst hann inn í salinn, þegar Bill Strother fiytur hina sakleysis- legu borðbæn. Og ekki er nog með að klunninn komi inn þeg- ar verst gegnir, heldur hefur hann gyltu með sér, sem heitir Amalia. Er hún aðstoð hans þegar hann skemmtir. Lengi þoldi Bill þessar smánarlegu móðganir, en að því kom að hann gat ekki þagað. Hann fór til forstjóra verzlunarinnar og baðst undan því að klunninn og svín hans kæmu inn á þess- um tíma. Þau stingi svo ó- þvrmilega í síúf við þann hug- blæ sem hann vildi skapa með bæn sinni. Voru þá klunninn og gyltan Amalia gerð útlæg úr matsalnum á þessum tíma. Heimsókn í fangelsi. En jólasvemnmn Bill Strother kemur víðar fram en í stór- verzluninni. Einu sinni höfðu góðviljaðir menn farið þess a leit að hann værí sendur til ungra misgjörðamanna, sem dvöldu á betrunarheimili. En heimsóknin var vanhugsuð, enda hafði Bill ekki sjálfur fengið þá hugmynd. Hinir ungu óbótamenn gerðu gys að frómleik jólasveinsins og þyrpt- ust um hann svo að hann ótt- aðist að hinn dýri jólasveins- -skrúðl yrði fyrir skemmdum. Þá kom nú klunninn. erkió- vinúrinn, cg gylta hans til hjálpar og dreifðu áhuga pilt- anna, svo að þeir gleymdu að hnýsast í hákolluna, skeggið og annan búnað jólasveinsins. Mesta ánægju hefur Bill af því að heimsækja börn, sem sökum. vanheilsu eða einhverra líkamlegra bækla verða að vera , i hinni nýju verksmið!" “-*« nýjar vélar og framlei&siunanurri breytt til batnaðar. Nú er kaffi- bætirinn mótaður í töflur, sem eru handhægari og auðveidari í not- kun heldur en stangirnar voru. I töflunum helst hinn óviðjafnanlegi keimur og angan kaffibætisins stöðugt. töfiurnar verða öllum húsmæðrum kær- komnar. Notið meira af kaffibæti og sparið með því kaffikaupiu. m AVAILT ER IUEST OG BEZT GRVALIÐ AF BARtVA*! OG KVEIVPEYSGiVl í HLIINi ^J\omit) ocj ócmnjœriót ^JJvenji lcetjra vero Sendum gegn póstkröfu um land allt. Prjónastofan HLÍINI h.f. Skólavörðustig 18. — Sími 2779.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.