Morgunblaðið - 26.06.1930, Page 9

Morgunblaðið - 26.06.1930, Page 9
■OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOB fluttist af Þingvelli um leið og lögrjetta og yfirrjettur. III. NIÐURLAGNING ALÞINGIS HINS FORNA. Það var nokkurn veginn auðráðið, að Alþingi við Öxará mundi eigi verða flutt þangað aftur, úr því að það var einu sinni komið til Reykjavíkur. Á Þingvelli hefði þurft að reisa nýtt lög- rjettuhús, og þá lá nær, að reisa það í Reykjavík eða kaupa þar hús til þing- halds, sem einnig komst til tals. En svo kom annað til. Dómaskipun landsins var mjög óhentug. Alþingi var háð einu sinni á ári. Þetta skipulag olli feikna drætti á málum. Dómstigin voru fjögur, þrjú innlend (hjeraðsdómur sýslumanna, lögmannsdómur eða lög- þings, yfirrjettur) og eitt erlent (hæstirjettur í Danmörku). Hlaut því afskaplega langur tími að líða frá því er mál var höfðað og þar til er það hafði gengið gegnum æðsta dómstól- inn. Magnús Ólafsson Stefánssonar stift- amtmanns — þeir frændur höfðu þá að heldri manna sið danskað nafn sitt ogjiefnt sig Stephensen — var þá lög- maður. Hann var, sem alkunnugt er, að mörgu leyti maður stórvel gefinn, gáfaður og lærður vel að þeirra tíma hætti, starfsmaður í besta lagi, met- orðagjnrn, fylginn sjer og óvæginn, ef því var að skifta. Hann var, ásamt Vibe landfógeta, Stefáni amtmanni Þórarinssyni — sem líka hafði dansk- beyglað föðurnafn sitt í „Thorarensen“ — og Grími Thorkclin, skipaður haust- ið 1799 í nefnd til að íhuga skólamál landsins og dómsmál. Lagði nefndin til, að Alþingi, bæði ,,lögþingið“ (lög- rjetta) og yfirrjettur, yrði algerlega lagt niður, en í staðinn yrði settur á stofn landsyfirrjettur, á borð við stifts- yfirrjettina norsku, sem þá höfðu ver- ið stofnaðir fyrir skömmu. Fara þeir nefndarmenn, og þó aðallega Magnús lögmaður, heldur kuldalegum orðum um þinghaldið á Þingvelli og þingstað- inn, og einkum fær yfirrjetturinn, sem Ólafur gamli stiftamtmaður, faðir Magnúsar, veitti forstöðu, mjög illa útreið hjá honum. Kancellí fjelst á til- lögur nefndarinnar um niðurlagningu Alþingis við Öxará og stofnun lands- yfirrjettar í Reykjavík í staðinn. Og fór það fram, að þingið var alveg lagt niður árið 1800, eins og kunnugt er. ALÞINGI 1845—1874. I. Alþingi endurreist. Með tilskipun 28. maí 1831 og 15. maí 1834 varu sett svo nefnd ráðgjaf- arþing á stofn í Danmörku. Voru þau tvö, annað á Jótlandi og hitt í Hróars- keldu. Þing þessi áttu ráðgjafarat- kvæði um ýms löggjafarmál. Á Hró- arskelduþingi átti ísland og Færeyjar að hafa 3 fulltrúa. Var með ísland far- ið eins og það væri amt í Danmörku, að öðru en því, að landsmenn kusu eigi þessa fulltrúa sína, heldur gerði kon- ungsvaldið það. Islandi var þá, og hafði lengi verið, stjórnað í Kaupmanna- höfn, og fóru stjórnarskrifstofurnar tvær, Kancelli og Rentukammer, með íslensku málin. íslenskir menn hugðu margir, sem von var, að landinu 'mundi lítið gagn standa af afskiftum dansks ráðgjafarþings af íslenskum málum. Áhugaleysi þeirra og þekkingarleysi mundi girða fyrir alla nytsemd af með- ferð íslenskra mála á dönsku þingi. Baldvin Einarsson skrifaði þegar 1831 ritling um ráðgjafarþingin dönsku og um ráðgjafarþing á íslandi. En þó komst enginn skriður á málið að marki fyr en 1837. Þá gengust ýmsir merkir menn fyrir því, að gerðar voru bænar- skrár til konungs um ráðgjafarþing hjer á landi. Komust þær sumar til Kancellis. En róðurinn var þungur, því að Kancelli taldi það ósæmilegt, að íslendingar skyldu þá biðja um sjer- stakt ráðgjafarþing, með því að Frið- rik 6., sem þá sat á konungsstóli í Danmörku, hafði lýst yfir því, að hann mundi eigi gera breytingu á ráðgjafar- þingunum. Hinsvegar var með kon- ungsúrskurði 22. ág. 1838 efnt til sam- komu embættismanfia nokkurra hjer undir forsæti stiftamtmanns. — Em- bættismannanefnd þessi hjelt tvisvar fundi, 1839 og 1841, en var svo lögð niður. Friðrik 6. ljetst 8. des. 1839. Var það happ mikið, bæði Islandi og Dan- mörku. Til ríkís kom nú Kristján kon- ungur 8., gáfaður maður og frjáls- lyndur, miðað við konungmenn þeirra tíma. Hann gaf út konungsúrskurð 29. maí 1840, þar sem gerðar voru ráð- stafanir til þess, að embættismanna- nefndin íslenska yrði spurð að því, hvort eigi myndi Islandi heppilegast að fá ráðgjafarþing á Islandi, hvort það ætti eigi að heita Alþingi og hvort það skyldi eiga að heyja á Þingvelli við Öxará. Nefndin lagði auðvitað til, að ísland fengi sjerstakt ráðgjafarþing er Alþingi hjeti. Meiri hluti nefndar- innar lagði ennfremur til, að þingið yrði háð í Reykjavík, en minni hlutinn vildi hafa það á Þingvelli við Öxará. Deildu menn mjög um þingstaðinn, sem kunnugt er. En svo fór að lokum, að Reykjavík var kjörinn þingstaður Það varð mönnum og mikið ágreinings- efni, hvernig haga skyldi ákvæðum um kosningarrjett og kjörgengi til þingsins o. fl. En svo fór, að tillögur embættismannanefndarinnar gengu í flestu fram. Með konungsúrskurði 8. mars 1843 var loks ákveðið að stofna ráðgjafarþing á íslandi, og átti þingið að heita Alþingi. Með tilskipun s. d. voru settar reglur um kjörgengi og kosningarrjett og þinghaldið alt. Upp- haflega átti þingið að koma saman sumarið 1844, en þess varð eigi kost- ur, því að stjórnarvöldin í Kaupmanna- höfn höfðu að venju dregið nauðsynleg- ar framkvæmdir til undirbúnings þing- haldinu. Fyrsta ráðgjafarþingið varð því ekki háð fyr en í júlí 1845. II. Skipun Alþingis 18U5—187h og störf. A. Landinu var þá skift í 19 sýslur eða lögsagnarumdæmi og Reykjavíkur- kaupstaður að auki. Var hver sýsla og Reykjavík kjördæmi sjer og skyldi kjósa einn alþingismann, og einn til vara, í hverju þessara kjördæma. Voru þjóð- kjörnir þingmenn á ráðgjafarþingun- um því 20, þar til 1857, að Skafta- fellssýslur urðu 2 kjördæmi. Urðu þá kjördæmi og þjóðkjömir þingmenn 21. Og var svo síðan til 1874. Auk þessa kjöri konungsvaldið alt að því 6 þing- menn, sem nefndir vóru konungkjöm- ir. Alls áttu því sæti 26 og síðar 27' þingmenn á Alþingi. Þess er þó get- anda, að í Vestmannaeyjum varð eigi kosinn þingmaður, meðan kosningar- rj ettarskilyrði Alþingistilskipunarinnar 8. mars 1843 stóðu, því að enginn hafði þar kosningarrjett. Stóð svo til 1857. Kjörtímabil þingmanna var 6 ár. Al- þingi starfaði altaf í einni málstofu þetta tímabil. Það kom jafnan saman annað hvert ár, stöku árin, nema 1851. Þá var þjóðfundurinn haldinn, en Al- þingi eigi, sem vitað er. Aukaþing var ekkert haldið á þessu tímabili, en einu sinni var þing rofið, 1869, og efnt þá til nýrra kosninga, vegna stjórnardeil unnar milli Danmerkur og Islands. Á þessu tímabili voru 14 þing háð, og þjóðfundurinn að auki, alt regluleg þing. Aukaþing þektust ekki eftir Alþr tilsk. 8. mars 1843. B. Upphaflega áttu þeir einir karl- menn kosningarrjett, er áttu fasteign wS minsta kosti 10 hndr. að mati, eða höfðu lífstíðarábúð á þjóðjörð eða kirkjujörð, er væri að minsta kosti 20 hndr. að mati, eða ættu húseign, að minsta lcosti 1000 rbdl. virði, í Reykja vík eða einhverjum verslunarstaðanna, sem þá voru. Þessi skilyrði þóttu altof ófrjálsleg, sem von var. Ákvæðin Alþtilsk. um kosningarrjett og kjör- gengi voru sniðin eftir samsvarandi fyrirmælum í tilsk. um dönsku ráð- gjafarþingin. — Auk þessara skilyrð skyldi kjósandi ennfremur vera 25 ára gamall, hafa óflekkað mannorð, og hafa forræði á fje sínu. Kjörgengis-skilyrðin voru hin sömu sem kosningarrjettar-skilyrðin, að því viðbættu, að þingmaður skyldi vera 80 ára, hafa haft fasteignaráðin í 2 ár — >hann var aðeins kjörgengur í því amti, þar sem fasteign hans var — að hann skyldi vera kristinnar trúar, þegnDana- konungs, og hafa átt heima í 5 síðustu árin í löndum Danákonungs í Norð- urálfu. Með tilsk. 6. janúar 1857 voru skil- yrði kosningarrjettar og kjörgengis mjög rýmkuð. Nú var eignarhald á fasteign eða ábúð á jörð eigi lengur skilyrði. — Nú fengu kosningarrjett bændur, sem höfðu grasnyt og guldu gjald til allra stjetta, embættismenn og þeir, sem tekið höfðu lærdómspróf við Kaupmannahafnarháskóla eða Presta- skólann, enda væru þeir eigi hjú, svo og kaupstaðaborgarar og loks þurra- búðarmenn, ef þeir greiddu 6 rbdl. til sveitar sinnar. Auk þess áttu kjósendur vitan- lega að fullnægja skilyrðunum um aldur, mannorð, fjárforræði og eigi máttu þeir heldur standa í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk. Loks átti kjósandi að hafa haft heimili í kjördæmi síð- asta árið fyrir kosningu. Kjörgengissknlyrðin urðu nú hin sömu sem kosningarrjettarskilyrðin, nema þingmannsefni átti að vera 30 ára að aldri, þegn Danakonungs, krist- innar trúar, og hafa verið 5 ár búsett- ur í löndum Danákonungs í Norðurálfu, en eigi þurfti hann að hafa átt heim- ili í kjördæminu. Alþingiskosningar voru þá opinber- ar, og þurftu eigi að fara fram sama dag um land alt, eins og nú. Kjörstað- ur var þá einn í hverju kjördæmi, enda voru kosningar oft mjög báglega sótt- ar, í samanburði við það, sem nú er. Á þessu tímabili buðu menn sig eigi fram til þingsetu, eins og nú, og mátti því verða, að sá maður yrði fyrir kjöri, sem alls eigi vildi taka við kosningu. Alþingi úrskurðaði um kjörgengi og lögmæti kosninga, eins og nú. Ef aðalþingmanns misti við, eða hann forfallaðist, þá tók vara-þingmað ur sæti. C. Alþingi kom saman 1. júlí, eða næsta virkan dag þar á eftir, ef 1. júlí bar á sunnudag, og skyldi standa 4 vikur. Þingtíminn var þó lengdur, ef á þurfti að halda. Konungsfulltrúi setti þingið og sleit því. Þingmálið var islenska, en þó mátti konungsfulltrúi tala á dönsku, en þýða átti þá jafn- harðan ræðu hans. Eftir 1849 — þávarð Páll amtmaður Melsted konungsfull- trúi — hjeldu konungsfulltrúar ræður sínar á íslensku. Fyrstu 2 þingin voru ’';V; / A , Tjaldbúðir á Þingvöllum. Alþingishúsið % 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.