Morgunblaðið - 31.12.1963, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 31. des. 1963
•*
Bíll frá slökkviliðinu dregur flugvélina af flugbrautinni. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.).
Stjelhjólið losnaði
UM hádegisbilið á sunnudag
var æfingaflugvél á flugi yfir
Reykjavík. Einn maður var í
vélinni, sem er af gerðinni Fleet
Finch. Losnaði þá stjelhjólið und
an vélinni, féll ekki ekki til
jarðar, en hékk neðan í búkn-
um. Senditæki var ekki í vél-
inni, en flugmaðurinn gerði
flugturnsmönnum vart við óhapp
ið, með því að vagga vélinni
til og frá. Sáu þeir þegar, hvað
að var, enda lafði stjelhjólið
niður úr. Slökkviliðið og sjúkra
lið var kvatt á vettvang, eins og
venja er í slíkum tilvikum. Lend
ing gekk greiðléga.
Starfsmenn flugvallarins hafa
tjáð Morgunblaðinu, að engin
sérstök hætta hafi verið á ferð-
um fyrir flugmanninn. Sú bil-
un, sem hér var um að ræða,
hafi yfirleitt ekki eldhættu eða
aðra slysahættu í för með sér.
Hins vegar getur flugvélin sjálf
laskast við lendinguna, en svo
varð ekki hér.
353 sjúklingar
komu til æfingar-
meðferðar
hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra
AÐALFUNDUR Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra var haldinn
sunnudaginn 8. des. sl.
Formaður félagsins Svavar
Pálsson flutti skýrslu stjórnar
fyrir starfsárið 1. október 1962
— 30. september 1963.
Æfingastöðin á Sjafnargötu
var rekin með sama hætti og
áður. 353 sjúklingar komu þang-
að á árinu og fengu 9451 æfinga-
meðferð. Er það um 50% aukn-
ing á meðferðafjölda frá fyrra
ári.
Þá rak félagið sumardvalar-
heimili fyrir fötluð börn í Reykja
dal í Mosfellssveit. Dvöldust þar
40 börn um nokkurra vikna skeið
við leiki og æfingar.
Tekjur félagsins námu alls 2
milj. 660 þúsund krónur. Er það
fyrst og fremst ágóðahluti af
eldspýtnasölu — 1476 þúsund kr.
og síðan dánargjöf Ástríðar Jó-
hannesdóttur og Magnúsar Þor-
steinssonar húseignin Eiríksgötu
19 talin á brunabótamati rúm-
lega 1 miljón krónur.
Þessum tekjum var varið til
að greiða rekstrarhalla á æfinga
stöð félagsins og á rekstri sumar-
Björn Þorsteins-
son vann jólahrað
skákmótið.
HIÐ árlega jólahraðskákmót
Taflfélags Reykjavíkur fór fram
síðastliðinn sunnudag, 29. des.
Þátttakendur voru 42, og voru
tefldar 10 umferðir eftir Monrad
kerfi, þó svo að hver umferð
var raunverulega tvöföld, 2 skák
ir á 10 mínútum. Þótt mann-
val væri gott þarna söknuðu
menn þó ýmsra beztu hraðskák-
manna okkar.
Sigurvegari varð hinn ungi
hraðskákmeistari, Björn Þorst-
einsson, hlaut 17J/2 vinning (af
20). Var hann greinilega í sér-
flokki.
2—4 urðu þeir Björn Jóhann
esson, Haukur Angantýsson og
Bragi Kristjánsson, nveð 13y2 v.
hver.
dvalarheimilis, sem samtals nam
rúmlega 1 miljón krónur. Til
eignaaukningar fóru 1577 þúsund
krónur. Hrein eign félagsins nam
skv. efnahagsreikningi 5,3 miljón
krónum og eru þá þrjár fasteign-
ir félagsins taldar á brunabóta-
mati.
í stjórn félagsins eru nú:
Svavar Pálsson endurskoðandi,
Andrés G. Þormar, aðalgjaldkeri
Baldur Sveinsson, fulltrúi
í framkvæmdaráði eru:
Haukur Kristjánsson, yfirlæknir
Haukur Þorleifsson, bankafullt.
Sigríður Bachmann yfirhjúkr-
unarkona
Guðjón Sigurjónsson, sjúkraþjálf
ari
Páll Sigurðsson, læknir
(Frá Styrktarfélagi lamaðra
og fatlaðra.)
Bækur Ingstod
gefnnr út í USA
New York. —
NORSKI landkönnuðurinn,
dr. Helge Ingstad, sá er fann
rústir af víkingabúðum á Ný-
fundnalandi, hefur gert samn
ing við útgáfufyrirtækið St.
Martins í New York. Bók um
þetta efni skal vera tiibúið
eftir 18 mánuði.
St. Martins hefur einnig
aðra bók eftir Ingstad í undir
búningi, og á hún að koma út
á næsta hausti. Nafn bókar-
innar verður „Land undir pól
stjörnu“, og fjallar um land-
nám víkinga á Grænlandi.
— Erling
Aþena, 30. des. — NTB:
Páll Grikkjakonungur til-
nefndi í dag varaframkvæmda
stjóra Þjóðbankans, Johannes
Paraskevopoulus, forsætis-
ráðherra í embættismanna-
stjórn.
Jafnframt ákvað konung-
ur að fallast á kröfur fráfar
andi forsætisráðherra, George
Papandreous. um nvjar kosn
ingar.
FH og ÍR unnu
í 1. deild
Handknattleiksmóti íslands 1964
var fram haldið á laugardag og
sunnudag.
Tveir leikir fóru fram í 1. deild
karla. FH vann KR 36:25 og ÍR
vann Víking í tvísýnum og spenn
andi leik 23:20.
f 2. deild urðu úrslit þau að
Akranes vann Breiðablik með
36:12 og Þróttur vann Val með
20:19 og Akranes vann Kefla-
vík á sunnudag með 30:22.
Önnur úrslit urðu þau að í
3. fl. vann Víkingur Þrótt með
16 gegn 9, ÍR vann Hauka með
14:16 og Þróttur vann ÍBK með
12:9. í 2. flokki karla vann FH
Ármann 18:13, ír vann Hauka
með 20:12 og Fram vann Þrótt
með 14:10.
Hlýtnr Solsjen-
itsin Lenin-
verðlnun?
Moskvu, 28. des. — (NTB)
ALEXANDER Solsjenitsin,
höfundur bókarinnar „Dagur í
lífi Ivans Denisovits“, er með-
al þeirra sovézku Iistamanna,
sem til greina koma við út-
hlutun Leninverðlaunanna
1964. Fréttastofan Tass skýrði
frá þessu í gær og sagði, að
alls kæmu 69 listamenn til
greina.
Saga Solsjenitsins sætti
nokkurri gagnrýni í Sovét-
ríkjunum og hefur verið þýdd
á f jölda tungumála, þar á með
al íslenzku.
Ný bók eftir Solsjenitsin,
sem út kom fyrir skömmu,
hefur verið gagnrýnd harð-
lega í málgagni sovézka rit-
höfundafélagsins „Literatur-
naja Gazeeta.“
Argoud neit-
ar að svara
París 27. des. - NTB.
AMTMINE Argoud, fyrrum of-
ursti, sem frá maí 1962 stjórn
aði hryðjuverkahreyfingunni
OAS, og nú er fyrir rétti í Frakk-
landi, neitaði í dag að svara
öllum spurningum dómarans
varðandi ákæruatriði. Verjendur
Argouds halda því fram, að lög-
fræðilega séð hljóti Argoud að
teljast vera í Múnchen í Þýzka-
landi en ekki í réttarsal í París.
Argoud var rænt í Múnchen á
sínum tíma og fluttur nauðugur
til Frakklands. Argoud er ákærð
ur fyrir liðhlaup, hryðjuverk, —
samsæri gegn ríkinu og tilraun
til þess að hrifsa völd með að-
stoð vopna. Við þessum ákæru-
atriðum getur legið dauðadóm-
ur.
Áður hafði Argoud verið
dæmdur til dauða af frönskum
rétti, að honum fjarstöddum. —
Var það vegna liðsforingjaupp-
reisnannnar í Alsír í apríl 1961.
Þetta ákæruatriði er einnig fyrir
réttinum nú.
Erhard lætur vel af
Johnson forseta
segir vináttu hafa tekizt með þeim
Bonn, 30. des. — (NTB)
LUDWIG Erhard, kanzlari
V-Þýzkalands, skýrði frá því
í dag, að tengsl hans og
Johnsons, forseta Bandaríkj-
anna, væru náin. Ríkti með
þeim vinátta.
Erhard kom í dag heim til
Bonn, en undanfarna tvo
daga hafa þeir Johnson ræðzt
við í Texas, þar sem Erhard
hefur dvalizt í opinberri heim
sókn. Sagði Erhard viðræð-
urnar hafa farið fram af mik-
illi vinsemd.
Við ræddum saman i hrein-
skifni. og sneiddum ekki hjá
vandamálunum, sem við reynd-
um að kryfja til mergjar", sagði
kanzlarinn. „Af umræðuefnum
má nefna hagsmunamál Vest-
ur-Þýzkalands á alþjóðasviðinu,
stjórn- og efnahagsmál Evrópu,
afstöðu Evrópulanda til væntan-
legra umræðna um gagnkvæmar
tollalækkanir landan#ia beggja
vegna Atlantshafsins og sameig-
inlegar varnir, þ.á.m. Atlantshafs
bandalagið," hermdi kanzlarinn
ennfremur.
í lok viðtals þess, sem vitnað
er í, hér að ofan, sagði Erhard:
„Það er engin ástæða til að ef-
ast um einlægni og stuðning
Bandaríkjanna.“
Deilt um fiskverðið
DEILU um verðákvörðun á bol-
fiski á næsta ári hefur nú verið
vísað til yfirnefndar. Var það
gert 21. desember.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
gat ekki komið sér saman um
verðið, en ráðið skipa 12 menn,
Hljóðfæraleikar-
ar aflýsa verk-
falli
SAMKVÆMT upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér hjá framkvæmdastjóra Sam-
bands veitinga- og gistihúsaeig-
enda (SVG), Jóni Magnússyni,
kemur ekki til verkfalls hjá
hljóðfæraleikurum nú um ára-
mótin, þar sem hljóðfæraleikar-
ar hafa aflýst boðuðu verkfalli.
Verkfall þetta taldi Samband
veitinga- og gistihúsaeigenda
m.a. ólöglega boðað. Samnings-
viðræður milli SVG og FÍH hefj
ast þegar upp úr áramótum.
Sæmdur Fálka-
orðunni
HINN 27. des. sl. sæmdi forseti
íslands Einar Baldvin Guð-
mundsson, hæstaréttarlögmann,
formann stjórnar Eimskipafélags
íslands, riddarakrossi hmnar is-
lenzku fálkaorðu fyrir störf í
þágu viðskipta- og samgöngu-
mála.
(Frá Orðuritara)
sex frá seljendum og sex frá
kaupendum, Landssamband ís-
lenzkra útvegsmánna (LÍÚ) til-
nefnir þrjá menn í ráðið, Al-
þýðusamband íslands (ASÍ) einn
Sjómannasamband íslands eínn,
Farmanna- og fiskimannasam-
band Íslands einn, Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna (SH) þrjá,
Samband íslenzkra samvinnufél
aga (SIS) einn, Samlag skreiðar
íramdeiðanda einn og Sölusam-
band íslenzkra fiskframleiðenda
(SÍF) einn.
Fisksverðdeilunni var því vís-
að til yfirnenfdar, sem er skipuð
fimm rnönnum. Hún er þannig
mönnuð: LÍÚ tilneíndi Kristján
Ragnarsson, sjómenn sameigin-
lega Tryggva Helgason, fisk-
kaupendur Helg.a Þórðarson og
Valgarð J. Ólafsson oe Hæsti-
réttur íslands skipaði oddamann,
Hákon Guðmundsson, hæstarétt-
arritara, sem er formaður nefnd
arinnar.
Yfirnefndin hélt fyrsta fund
sinn í gær.
Vinningar síma-
happdrættisins
DREGIÐ var á Þorláksmessu í
símahappdrætti Styrktarfélaga
lamaðra og fatlaðra. Aðalvinn-
ingar að verðmæti kr. 225.000.ÓO
hvor komu á símanúmer 17147
og 23111.
Aukavinningar að verðmæti
kr. 10.000.00 hver komu á þessi
símanúmer: 37270 21437 17175
51500 (Hafnarfjörður) 18352
37789 12283 34406 15860 40426
(Kópavogur).
i Um hádegi í gær var austan
strekkingur undan Eyjafjöll-
um, en annars hæg norðaust
an átt um allt land með vægu
frosti og nokkrum éljadrög-
um á N- og A-landi. Alldjúp
lægð er vestur af Skotlandi
og hreyfist hægt norðauastur
eftir, en mun ekki hafa miki)
áhrif hér á landi. Hlýr suð-
vestlægur loftstraumur renn
ur nú yfir Bretland og Mið-
Evrópu, enda var þar 6—10 st
hiti.
I