Morgunblaðið - 10.12.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.12.1964, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 10. des. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 23 Soffía Jóhannesdótti kaupkona áttræð MARGIR ísfirðingar myndu vilja eiga þess kost, að sjá frú Soffíu Jóhannesdóttur á áttræðisafmæli hennar, en á ísafirði átti hún heima í meira en 60 ár, og síðan á Akureyri. Hún fæddist á ísafirði, næst- elzt sex systkina. Faðir hennar, Jóhannes Guðmundsson, verzlun- armaður, var ísfirzkur að ætt, prúður maður og vinsæll, og móð ir hennar, Sigríður Bjarnadóttir, var eyfirzk að ætt, greindarkona og sköruleg. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap á ísafirði, vin- sæl og vel metin. Eftir að hafa lokið skélanámi á Akureyri, sneri Soffía sér að verzlunarstörfum heima á Isa- firði. Má af því marka hæfileika hennar, að snemma voru henni falin störf, sem ekki var títt að trúa konum fyrir. Á þeim árum Var hún lengi í þjónustu Edin- borgar-verzlunar á ísafirði. Þar man ég hana fyrst, ekki að búð- arstörfum, eins og margar aðrar stúlkur, heldur prúðmannlega búna og prúðmannlega í háttum með farmskírteini sín og „con- nossement“ við afgreiðslur gufu- skipanna á Isafirði. Frú Soffía virtist flest leika í hendi. Faðir minn sagði, að gleggri starfsmann hefði hann naumast fengið að Landsbankan- um á ísafirði en hana, einkum við ársuppgjör, sem mikillar ná- kvæmni krafðist, áður en reikn- ingsvélar komu til sögu. Um alllangt skeið rak frú Sofíía verzlun sína á ísafirði, en sakir þess trausts, sem hún naut, komst hún ekki hjá að gegna ýmsum öðrum störfum. Hún var lengi bókavörður Bókasafns ísá- fjarðar. Þá sneri hún sér að út- gerðarmálum og rak um skeið með frábærri fyrirhyggju útgerð á ísafirði, fyrst mótorbátaútgerð og síðan togaraútgerð, sem aðal- eigandi með ísafjarðarkaupstað. Hafði hún jafnan ráð og fram- kvæmdir með höndum, sem Vöktu virðingu ísfirðinga. Þar réð ekki heppni ein, heldur það, að þar fór mikil hæfileikakona, sem lék sér að verkefnum, sem konur leiða að jafnaði hjá sér. Þá stofnaði hún Soffíubúð hér í Reykjavík með frænda sínum, Axel Ketilssyni, og lagði þar grundvöll að mjög arðbæru fyrir- tæki. Hún hefur enn á hendi framkvæmdastjórn á Austur- etræti 14 í Reykjavík o. fl. Á ísafirði söknuðu menn frú Soffíu, er hún fluttist þaðan burt rúmlega sextug. Á Akureyri hafði hún byggt sér stórt og vand að íbúðarhús á stórri og fagurri lóð, sem amma hennar og nafna hafði látið henni eftir. Þar bjó hún með systrum sínum tveim, sem nú eru látnar. Hún er eftir I húsinu ein, en í næsta húsi býr systir hennar, frú Fanney, ekkja Jóns Sveinssonar, bæjarstjóra. Ég vissi ekki til að nokkur kona á ísafirði nyti meiri virð- ingar en frú Soffía, enda tókst hún á við verkefni, sem fátítt er að konur fáist við, einkum í út' gerðarmálum. Hún stóð straum af stóru rausnarheimili, og hún hefur fen-gið að lifa það, að sjá þeim öllum farborða, sem á veg um hennar voru. Ég geri engum góðum rangt til þótt ég segi, að frú Soffía hafi gert stórmann legar við ættingja og venzlafólk en ég veit um aðrar konur. Og þegar leitað var fjárframlaga til einhvers á Isafirði, var frú Soffía oft eina konan þar á lista og jöfn þeim fremstu að rausn. Hún hef ur lengi búið við góðan efnahag. en aldrei verið sparsöm. Þessa afmælisgrein verður vin- kona mín, frú Soffía, að fyrir- gefa mér. En ég veit, að ómak- legt hefði mörgum ísfirðingum þótt, ef enginn ísfirðingur hefði minnzt hennar í dag. Þótt frú Soffía hafi lengi ævi fengizt við mál, sem að jafnaði eru falin karlmönnum, er hún kvenleg kona í bezta skilningi. Rausnarlegri húsfreyja er fágæt, og yndi hafa allir sem í hús henn ar koma, af samtölum við hana og sálufélagi. Um hana er allt stórbrotið, en samt er hún hóg- vær kona. En það er hlustað á það, sem hún segir. Þannig man ég hana frá ísa- firði, en milli foreldra minna og hennar var ævivinátta, sem þeim var dýrmæt. Hún var á hvort- tveggja jafnvíg, að ræða útgerð- armál og vandamál viðskiptalífs- ins við föður minn, og að ræða um sérmál konunnar við móður mína, og bækur. Karl Sigurðsson bóndi Knútsstöðum í Aðaldal Fyrir vgstan er þessarar óvenju svipmiklu og glæsilegu konu minnzt með virðingu margra. Svo minnast hennar ísfirðingar, sem fluttir eru burt. Jón Auðuns. Rósa Sigríður Guðjónsdóttir STUNDIN er liðin og starfinu hér er lokið fyrr en varir. Vonir rættust og lífið blasti við í vax- andi ljóma og sólin varpaði geisl- um sínum á umhverfið í hækk- andi gengi. En skyndilega syrti að. Ógnþrungin myrkva dró fyr- ir sólu. Lífinu var lokið. En þó var svo margt, sem kallaði á blíða móðurhönd og kærleika, til að umvefja litíu börnin og leiða þau áfram til þroskandi lífs. Það var hin æðstra þrá hinnar ungu móður, er hún var kölluð áfram til æðra lífs. Vér skiljum eigi. En WWR snúum oss í auðmjúkri bæn til Hans, sem heyrir bænir okkar. Hann bænheyrir og blessar oss. Látum það vera huggun vora. Rósa Guðjónsdóttir andaðist skyndilega í Keflavík 2. þ. m. í dag verður hún jarðsungin í Foss vogskirkju. Rósa Guðjónsdóttir var fædd 30. maí 1929 í Þorlákshöfn. For- eldrar hennar eru hjónin Guðjón Brynjólfsson og Helga Jónsdóttir. Hún ólst upp að mestu hér í bæ og starfaði hér unz hún 26. des. 1957 giftist eftirlifandi manni sínum, Boga Benedikts- syni. Reistu þau bú hér í bæn- ujn, en fluttu bráðlega til Kefla- víkur og eignuðust þar hlýlegt og yndislegt heimili. Þau eignuðust 2 sonu, Guðjón, sem nú er 5 ára, og Benedikt, 3 ára. Batt hún miklar vonir við þessa litlu drengi og fórnaði þeim ógleymanlegan kærleika. Sá kær leikur fylgir þeim, þó hún falli. Ég kveð þig og blessa minningu þína. Vors og söngva vina, góðar nætur. Vertu sæl, þú prýddir landsins dætur. G. H. í DAG er gerð frá Kapellunni I Fossvogi útför Rósu S. Guðjóns dóttur, sem andaðist 2. des. eftir mjög stutta legu í Sjúkrahúsinu í Keflavík. Kom hið skyndilega andlát hennar vandamönnum og vinum mjög á óvart. Rósa var fædd í Þorlákshöfn Helgu Jónsdóttur og Guðjóns Bry n j ólf ssonar. Hún fluttist á fyrsta ári með foreldrum sínum til Reykjavíkur og ólst síðan upp á heimili þeirra ásamt tveim systkinum. Dvaldist hún í foreldrahúsum, þar til hún giftist 26. des. 1957 Boga stýri- manni Benedikssyni frá Bolung arvík og stofnaði sitt eigið heim- ili. Bjuggu þau fyrst í Reykjavík, en fluttust síðan til Keflavíkur og komu sér þar upp eigin ibúð, Þau eignuðust tvo efnilega drengi, sem nú eru 5 og 3 ára og verða nú svo ungir að árum að sjá á bak móður sinni. Rósa var ein af þeim konum sem vinna störf sín í kyrrþey og hávaðalaust og með þeirri alúð, sem góðum konum er eiginleg Hún var að eðlisfari dul og fá- skiptin og flíkaði ekki tilfinn- ingum sínum. Hún var viðkvæm í lund og ekki ávallt svo hraust sem skyldi, enda mun hún oft ekki hafa gengið heil til skógar, þó hún léti ekki á því bera. Eng inn bjóst samt við, að’dauðinn myndi kveðja svo skjótt dyra, sem nú hefur orðið raunin á. Þessi unga kona er nú horfin sjónum, en eftir lifir minningin um góða konu, sem dó fyrir ald- ur fram. Allir fara að lokum þessa sömu leið, sumir vonum fyrr, aðrir vonum seinna, en lífið heldur áfram og tíminn græðir sárin. Með þeirri von og vissu votta ég ástvinum hinnar látnu mína innilegustu samúð. J. J. P. ÞANN 27/11 sl. andaðist að heimili sínu, Knútsstöðum í Aðaldal, S-Þing., Karl Sigurðs- son, bóndi þar, f. 6/7 1890 á Kraunastöðum. Karl var sonur Sigurðar sterka Guðmundssonar, frá Grímsstöðum við Mývatn og síð- ari konu hans, Guðfinnu Jóns- dóttur frá Kraunastöðum í Aðal- dal. Sigurður faðir Karls bjó m. a. að Hlíðarhaga á Mývatns- fjöllum og að Þeystareykjum í Reykjaheiði,_ langt frá manna- byggðum. Lét Sigurður ei á sig fá, þótt munnmælasögur hermdu að tvívegis hefðu bjarndýr eytt byggð að Þeystareykjum, enda var hann risi að vexti og ann- álaður fyrir krafta. Karl sonur Sigurðar líktist föður sínum og gerðist, er hann óx svo tröllauk- inn að afli og vexti að einstakt telst. Karl var maður skýr og grein- argóður, en ekki lét hann á sér bera sem slíkum. Hann var og hagur á tré og járn. Oft sýndi Karl meiri fyrirhyggju en al- mennt gerðist. Fyrir allmörgum, árum bjargaði hann manni úr Laxá í S-Þing., er fallið hafði niður um veikan ís, á miklu dýpi. Við björgun þessa sýndi Karl frábæra fyrirhyggju, snar- ræði og áræði. öllum varð mjög starsýnt á Karl, er hann sáu og undruðust hans mikla Vöxt. Sá er þetta rit- ar hefur aldrei séð mann svo riðvaxinn um herðar eða eins sterklegan og Karl var. Karl var mjög rólegur í lund, en var þó gæddur gamansemi. Hann hafði og gaman af að takast á við menn í góðu og brá því fyrir sig fram eftir árum. Það bar til eitt sinn, er Karl var kominn af léttasta skeiði, að hann flaugst á við tvo unga menn, er taldir voru í hópi sterk ustu manna. Lyktaði þeirri við- ureign með því að Karl felldi menn þessa báða undir sig í einu og hélt þeim þannig í helj- argreipum sínum. Einu sinni var Karl að störf- um í útihýsi nokkru, ásamt fleiri mönnum. Verður það nú að einn manna þessara, sem var yfir þrjár álnir að hæð, sterkur og vanur glímum, langaði til að reyna afl sitt við Karl og ræðst því á hann. Skiptir það síðan skömmum togum að Karl hefur mann þenna upp og heldur með hann í áttina að útidyrum. Hurð- in á dyrunum var lokuð að inn- an með krók, en sigin á hjörum og dróst með jörð, þá hún var opnuð. Þessu næst fer Karl að opna hurðina með annarri hend- inni, en heldur manninum á lofti undir hinni hendi sér. Er Karl hafði nú opnað hurðina, Magnús Torfi Ólafsson og Möckel ræðast við. Austur-þýzk bókasýnin^ urinn um vísindi og tækni. Magn 30. maí 1929, dóttir hjónanna ús Torfi Ólafsson deildarstjóri í SÍÐUSTU viku var opnuð í sýndi blaðamönnum og boðsfólki sýninguna ásamt Mödkel, verzl- unarfulltrúa austur-Þjóðverja hér. Atíhygli vakti, hvað bæk- urnar voru ódýrar. Bækurnar eru allar til sölu. Sýningin stend- ur til 12. þ.m. Aðgangur er ó- heldur hann áleiðis út úr hús- inu, en þá nær viðfangsmaður hans taki á dyrakörmum og held ur sér. Er hér var komið sögu, slítur Karl manninn af dyra- körmunum, gengur með hann spölkorn frá húsinu og leggur hann því næst niður í lækjar- sprænu, er þarna rann. Síðar var Karl að því spurður hvort ekki hefði verið erfið viðureignin við mann þenna, í umrætt sinn. Karl lét lítt af því og kvaðst hafa átt erfiðast með að beygja sig með hann niður í lækinn, þar sem gigt þjáði sig í baki. Ýmsar sögur fleiri mætti segja af Grettistökum Karls, en hér verður nú staðar numið. Karl var kvæntur Sigríði Kristjánsdóttur á Knútsstöðum, sem lifir mann sinn. Þau bjuggu jafnan að Knútsstöðum og varð 6 barna auðið, sem öll náðu fuli- orðinsaldri. Fátækur mun Karl hafa verið á fyrstu búskaparárum sínum, en er frá leið og synir hans uxu upp, ræktuðu þeir feðgar hina frjósömu bakka vestan Laxár og breyttu i víðáttumikil tún. Einn- ig reistu þeir mikil hús á jörð sinni. Hefur því lengi að undan- förnu verið rekið stórt bú á Knútsstöðum. Skömmu fyrir lát Karls, and- aðist sonur hans Jón að nafni. Maður á góðum aldri, sem unnið hafði við búið á Knútsstöðum og verið stoð foréldra sinna. Er því mikill harmur kveðinn að Knúts staðaheimilinu nú á skömmum tíma. Sigríði á Knútsstöðum og fjöl- skyldu hennar sendi ég. að síð- ustu, hugheilar samúðarkveðjur. Hallgrímur Jónsson. húsakynnum MálS- og menningar við Laugaveg mjög myndarleg yfirlitssýning á austur-þýzkum bókum. Um 800 bækur eru á sýningunni og er stærsti flokk keypis og öltum heimill. — Eftir sex ára þögn Framhald af bls. 17 málstaðar, sem hún fylgir. Her- luf Daa verður t.d. allur annar en Herlegdáð þjóðsagnanna, og Guðbrandur biskup mun birtast í sögunni nákvæmlega. eins og Jóni finnast rök liggja til, hvort sem þessum eða hinum kynni að virðast eitthvað annað. Þá er á- stæða til að taka það fram, áð sakakonan Þórdís, barnsmóðir Tómasar Böðvarssonar, verður fyrst verulega geðþekk í krafti móðurástar sinnar, og lengi vel einhver ógeðfelldasta persóna sögunnar, séra Magnús, verður að stórmenni á örlagastund af því að ást hans hefur ekki verið neitt hagsmuna- eða stundarfyr- irbæri, heldur mesti og sannasti veruleiki lífs hans. Þá mun Sól- rún gamla verða lesendum minn- isstæð. I umkomuleysi sínu og skorti á hvers konar lífsins salti og safa gengur hún samvizkulaus veg slefberans og mútuþegans, en þá er þeir atburðir gerast, sem hún telur sig að nokkru eiga sök á og koma hart og sárt við hús- bændur hennar og Þórdísi og litlu dóttur hennar, verður gamla konan í senn norn og hetja. Lýsing sú á aldarfarinu, sem fram kemur í sögunni, er allt annað en glæsleg, enda er þarna að hefjast annað ömurlegasta tímabilið í allri þjóðarsögunni. En þótt nú sé öldin önnur og mætti virðast betri í öllu tilliti, er glöggum lesanda auðsætt, að Jón hefur oft í huga hliðstæður úr samtíð sinni, og mundi þar einkum að nefna múgsefjun, fé- græðgi, falsrök, eftir því sem henta þykir þá og þá, og þann meinlega þjóðarlöst, hve frænd- semi, samábyrgð sékra, hags- munabundið flokksfylgi, völd og auður ráða oft miklu um það, hvort þjóðfélagsborgari verður að gjalda glapa sinna og mis- ferlis — eða hvort maður á þess nokkurn kost að ná rétti sínum. Þetta er mesta saga Jóns, og væri nú fróðlegt að sjá hann snúa sér beint að samtíð sinni. Bókin er vel og snoturlega úr garði gerð frá hendi útgefanda. Guðmundur Gislason Hagalín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.