Morgunblaðið - 06.07.1965, Blaðsíða 1
32 sí«iui
$2. irgangwr.
149. tbl. — Þriðjudagur 6. júlí 1965
Prentsraiðja Morgunblaðsin*.
Efnahagsbandafag ústarfhæft
Fulltrúar Frakka
ganga af Mum
Brússel, 5. júlí (NTB-AP)
FULLTÚAK Frakka hjá Efna
hagshandalagi Evrópu í
Ilrússel tilkynníu í dag að
l»eir hefðu fengið fyrirmæli
frá stjórninni í París um að
hætta allri þátttöku í störfum
handalagsins um óákveðinn
tíma. Þýðir þetta það að allar
nefndir verða óstarfhæfar þar
til Frakkar skipta um skoð-
un. Nær vinnustöðvun þessi
til 18 franskra fulltrúa, sem
að jafnaði starfa í aðalstöðv-
um bandalagsins í Brussel. —
Ákvörðun þessa mun franska
etjórnin hafa tekið vegna mik
ils ágreinings um landbúnað-
armál.
Frönsku fulltrúarnir tóku þátt
í fundum og störfum bandalags-
ins fram að hádegi í dag. En þeg-
ar síðdegisfundir áttu að hefjast
tiikynnti einn frönsku fulltrú-
anna, V. Ullrich, að Frakkar
tækju ekki þátt í áframhaldandi
fundarhöldum né nefndarstörf-
um. Sagði hann að fastafulltrúi
Frakka, Jean-Marc Boegner
sendiherra, mundi láta af emb-
setti á morgun, þriðjudag.
Á miðvikudag stóð til að halda
fund í stjórnarnefnd bandalags-
ins, en í dag var tilkynnt að
fundi þessum væri frestað. Nefnd
þessi er ein hin þýðingarmesta
innan bandalagsins, því hún á-
kveður m.a. tolla og verð á land-
búnaðarvö-rum. Talsmaður nefnd
atinnar sagði í dag að vonazt
væri til þess að Frakkar héldu
áfram störfum í stjórnarnefnd-
inni. í nefnd þessari eru 17 full-
trúar, og áttu Frakkar fjóra
þeirra. Komi Frakkar ekki til
fundar er nefndin óstarfhæf, því
eamkvæmt starfsreglum hennar
verða fulltrúar allra aðildarríkja
EBE að vera viðstaddir þegar á-
kvarðanir eru teknar. Vonað er
að unnt verði að halda fund í
nefndinni í næstu viku og að
Frakkar hafi þá skipt um skoðun.
Eftir að frönsku fulltrúarnir
hættu nefndarstörfum í dag var
ákveðið að umræðum um land-
búnaðarmál yrði engu að síður
haldið áfram í Palais de Congres
í Brússel. En fundir stóðu ekki
lengi. Ýmsa nefndarfundi átti að
halda á morgun, en talið að full-
trúar Frakka mæti. Hafa fulltrú-
ar hinna aðildarríkjanna snúið
sér til ríkisstjórna sinna og bíða
fyrirmæla um hvað gera skuli.
Lands-
leikurinn
Erlend aöstoð fúslega
þegin sé hún án
BoumedSenrie Viarðorður
í garð Ben Bella
Algeirsborg, 5. júlí (AP-NTB).
I DAG var þess minmzt í Alsír,
að þrjú ár eru liðin frá því landið
varð sjálfstætt. í því sambandi
flutti Houari Boumedienne of-
ursti, formaður byltingarráðsins,
útvarpsávarp til þjóðar sinnar.
Skýrði bann þar í fyrsta sinn
frá þv* hverjir skipa hina nýju
stjórn, sem tók við völdum í land
imi eftir að Ben Bella var steypt
af stóli hinn 19. júní s.l. Er stjórn
in skipuð 24> mönnum, og eru
flestir þeirra úr herforingjaráði
Boumediennes.
Skömmu áður en Boumedienne
flutti ávarp sitt var skotið 101
fallbyssuskoti í Algeirsborg í til
efni dagsins. Borgin var fánum
prýdd, en útvarpað var hergöngu
lögum. Svo flutti Boumedienne
ávarp sitt eftir að útvarpsþul-
urinn hafði kynnt hann sem
„bróður Boumedianne". Hann réð
ist harðlega á Ben Bella, fyrrum
forseta, sem hann kallaði ein-
40 látast í óveðri á Italíu
Hvirfilvindar hafa gengið yfir
norðurhluta landsins í tvo daga
Róm, 5. júlí (NTB)
á Hvirfilvindar bafa nú
geisað á Norður-Ítalíu í tvo
daga og valdið miklu tjóni.
46 menn hafa látizt af völd-
um þeirra og rúmlega 200
særzt.
| í gær fylgdu miklar
rigningar og haglél í kjöl-
far hvirfilvindanna, en áð-
ur en hvessti hafði hita-
bylgja gengið yfir ítaliu og
var hitinn allt að 40 gráð-
um í skugganum.
♦ í dag var óveðrið á leið
auslur yfir Pódalinn í átt
til Júgóslavíu og Austur-
rikis. í hafnarborginni Tri-
este leystu skipin landfest-
ar og héldu til hafs undan
veðrinu.
Ástæðan til óveðursins er,
að yfir Norður-Ítalíu hafa
mætzt kaldur lofsstraumur
frá Atlantshafinu og heitur
lofsstraumur frá Sahara.
Skemmdir hafa orðið mjög
víða af völdum hvirfilvind-
anna, tré rifnað upp með rót-
um, þök íokið af húsum, rúð-
ur brotnað og bifreiðir feykzt
út af vegunum. Nokkrir öku-
menn hafa látið lífið í slíkum
slysum.
Fólk í Pódalnum segir, að
mjög furðulegt hafi verið að
sjá, er bifreiðir tókust á loft
í veðurofsanum á sunnudags-
kvöldið. Þær hafi kastazt í
loft upp og framluktirnar lýst
upp skýin eins og ljóskastarar.
Bærinn Busserto nálægt
Parma lagðist nær algerlega í
eyði í óveðrinu, en flestir íbú-
anna sluppu ómeiddir. í Padri
ciano í NA-Ítalíu misstu
hundrað manns heimili sín. —
Mikil flóð urðu í Mílanó. —
Vatn fossaði um göturnar og
olli miklum skemmdum, og
járnbrautarsamgöngur milli
borgarinnar og Bologna lágu
niðri margar klukkustundir
vegna skemmda á teinunum. í
haglélinu, sem fylgdi í kjölfar
hvirfilvindsins á sunnudag-
inn, eyðilagðist um 80% vín-
uppskerunnar í héruðunum
umhverfis Veróna.
vald og lýðskrumara, og sagði
Ben Bella bera ábyrgð á efna-
hagsvandræðum í landinu.
Framhald á bls. 31.
1ALDVIN Baldvinsson mið-
íerji, skoraði eina mark Is-
ands í leiknum gegn Dönum
gærkvöldi, sem Danmörk
ann með 3-1. Þetta er í fyrsta
dnn sem Baldvin klæðist
andsliðspeysu og stóð hann
ig mjög vel — ógnaði dönsku
örninni oft með hraða sín-
im og baráttuvilja. Hér hef
ur hann komizt í svipað færi
og hann siðar skoraði mark
itt úr — en hér tókst danska
markverðinum Max Möller að
bjarga. — Frásögn og fleiri
myndir frá landsleiknum eru
á iþróttasiðu á bls. 30.
(Ljósm. Sv. Porm.)
„Gemiiii 5“
frestað
Kennedyhöfða, 5. júlí.
HAFT var eftir áreiðanlegum
heimildum á Kennedyhöfða í
dag, að frestað hefði verið
geimferð „Gemini 51', en hún
átti að fara fram í byrjun
ágúst. Gert er ráð fyrir að
ferðin verði farin 17. ágúst.
Sem kunnugt er, á „Gemini
5“ að vera átta daga á ferð
umhverfis jörðu. Með geimfar
inu verða 2 geimfarar, Gordon
Cooper og Charles Conrad.
Philip prins vítíur
fyrir óþarfa afskipti af
málum Rhodesiu
London, 5. júlí (AP)
JOSEPH Murumbi, utanríkis-
ráðherra Kenya, réðist í dag
harðlega á Philip prins, eigin-
mann Elisabetar Bretadrottn-
ingar, fyrir afskipti hans af
málefnum Rhódesíu. En fram
tíð Rhódesíu er mikið deilu-
mál innan brezka samveldis-
ins. —
Prinsinn flutti á föstudag ávarp
til stúdenta við Edinborgarhá-
skóla, og skýrði þar skoðanir sín-
ar á ýmsum málum varðandi
samveldið í heild. Varðandi Rhó-
desíu sagði hann að sjálfstæðis-
mál landsins og valdataka blökku
manna þar yrðu að bíða síns
tíma ef koma ætti í veg fyrir
blóðug átök. En hann sagði einnig
að aliir viðurkenndu að sá tími
Framh. á bls. 31