Morgunblaðið - 23.09.1965, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 23. sept. 1965
MOHGUNBLADIÐ
3
SIMSTHM
Guðinn sem brást
Setustofan á Hótel Garði hefur nú verið teppalögð og búin þægilegum húsgögnum.
f heimsókn á Hótel Garði
HASKÓLASTÚDENTAR hafa
nú annazt rekstur Hótel Garðs
í u.þ.h. sex ár og gert það
með sóma. Á þessu tímabili
hafa Garðarnir tekið miklum
stakkaskiptum enda hefur
ágóða undanfarinna ára nær
eingöngu verið vrið til endur-
bóta á þeim.
Nýlega buðu stjórnendur
HóteX Garðs blaðamönnum og
starfsmönnum flugfélaga og
feröaskrifstofa til „töðu-
gjalda“ eins ©g stúdentar
kalla það og af því tilefni
ræddum við svolítið við hót-
elstjórann, Kristján Torfason,
stud. jur. og fyrirrennara hans
í starfi Steinar Berg Björns-
son stud. oecon, sem lét af
starfi hótelstjóra í júlílok.
— Hótel Garður tók til
starfa í júníbyrjun venju skv.
og hefur aðsókn í sumar verið
nokkuð góð, segir Kristján,
þótt margt bendi tjl þess að
ferðamannatíminn sé fremur
að styttast en hitt. Flestir
gestir á Hótel Garði eru frá
nágrannalondum okkar, Bret-
landi og Þýzkalandi og svo
auðvitað frá Norðurlöndun-
um. Ferðir Bandaríkjamanna
hingað eru að aukast og einn-
ig er farið að koma hér ríkara
fólk en áður að sögn þeirra
Kristjáns og Steinars. -
En til marks um það hvað
Hótel Garður er orðið vel-
þekkt gistihús víða um heim,
segja þeir félagar okkur, að
fyrir nokkru hafi borizt pönt-
IVfyndarlegur hóielrekstur háskólastúdenta
Herbergjagangur á Gamla Garði. — Myndir tók Gísli Gestsson.
un um herbergi frá mennta-
málaráðuneytinu Saudi-Arab-
íu og ennfremur berst mikill
fjöldi bréfa frá löndum við
Karabíska hafið og einnig frá
Asíu.
Hótel Garður var til
skamms tíma stærsta hótel á
íslandi en eftir að Hótel Saga
kom til sögunnar er því ekki
lengur að heilsa. Hótel Garð-
ur tekur flest 162 gesti í rúm,
en í sumar hafa flestir gestir
yfir nótt verið 156. Miklar
endurbætur hafa verið gerðar
á hótelinu, öll snyrtiherbergi
endurbætt, teppi lögð á ganga
og setustofu og nýir lampar
keyptir í öll herebrgi.
Þeir Kristján og Steinar
segja okkur, að mjög skorti
á heildarskipulagningu ferða-
mála hér á landi og sérstak-
lega sé knýjandi nauðsyn á,
að þær fjölmörgu ráðstefnur,
sem haldnar eru hér á landi,
verði setta á annan árstíma
en hásumarið, þegar allt er
hér krökkt af erlendum ferða
mönnum og öll hótel full.
Til þess að stuðla að gesta-
komu á öðrum tíma en yfir
hásumarið hefur Hótel Garður
ákveðið að veita 20% afslátt
frá sumarverðinu á tímabilinu
frá opnun hótelsins og fram
til 15. júní og aftur frá 20.
ágúst til þess tíma er hótelið
lokar.
Greinilegt er, að Hótel Garð
ur er rekið af dugnaði og
myndarskap, og háskólastúd-
entum til sóma, skýrt dætni
um það sem þeir geta fengið
áorkað, ef viljinn og áhuginn
er fyrir hendi.
Kristján Torfason, stud. jur. hótelstjórl á Hótel Garði og Steinar Berg Björnsson, stud.
oecon., fyrirrennari hans í því starfi.
Það fer ekki framhjá nein-
um, sem Xes s-jórnmálaskrif
kommúnistamálgagnsins dag-
lega, að’ vonbrigði kommúnista
hér á landi yfir því, sem er að
gerast í Sovétríkjunum eru vax
andi og ljóst, að sértrúarflokk-
ur þeirra hér á landi, er að
missa þá fótfestu í lífinu, sem
Sovétríkin hafa veitt honum í
nokkra áratugi. Þegar maður
missir skyndilega trúna á það,
sem líf hans hefur frá upphafi
byggst á, verður honum fyrst til
að grípa til einhvers annars
og leita þar þess stuðnings í
harðri lífsbaráttu, sem hann
áður hafði, en er nýbúinn að
missa. Það er þetta, sem komið
hefur fyrir kommúnista héT á
landi og skín í gegnum stjórn-
málaskrif málgagns þeirra. So-
vétríkin hafa brugðist, og nú
setja þeir allt sitt traust á
Kína. Sovétríkin eru orðin sæmi
lega friðsamleg i utanrikispóli-
tík sinni, og þau eru farin að
grípa til alls konar kapítalískra
ráðstafana í efnahags- og at-
vinnumálum. Það er skiljanlegt,
að sértrúarflokkur þeirra hér á
landi hafi orðið fyrir vonbrigð-
um ,og reyni nú að hengja sig
utan í kínverska félaga.
Kínaför ritstjórans
Heimsókn stjórnmálaritstjóra
Þjóðviljans til Kína hefur ekki
átt minnstan þátt í að stuðla að
vaxandi Kínaást kommúnista
hér á landi og er greinilegt af
skrifum nefnds ritstjóra, að
hann hefur orðið ákaflega hrif-
inn af því sem fyrir augu bar
í Kína, og sérstaklega hefur hin
mikla friðarást kínverskra
kommúnista haft djúpstæð
áhrif á gestinn. Það liggur við,
að hann hafi orðið fyrir sams
konar áhrifum í Kína og Ey-
steinn virðist hafa meðtekið í
Búlgaríu. A.m.k. tehir Þjóð-
viljinn litla hættu stafa af
hernaðarmætti Kínverja, en því
meiri félagslega hættu.
Rauða hættan
Sannleikurinn er auðvitað sá,
sem allir gera sér grein fyrir
nema e.t.v. örfáir kreddutrúar-
menn hér uppi á íslandi, að
Kína er að verða mesti ógn-
valdur við friðinn í heiminum.
Og það eru mestu öfugmæli
sem hugsazt getur, þegar því er
haldið fram í málgagni komm-
únista hér á landi, að því sé
ekki svo farið, og á það bent
til sönnunar, að enginn kín-
verskur hermaður dveljist utan
landamæra heimalandsins.
Spyrja má, hvað Kínverjar séu
þá að gera í Tíbet? Eða er það
kannski allt í einu orðið kín-
verskt lands? Hvað voru Kín-
verjar að gera í Kóreu fyrir ein
um áratug? Hvað eru
þeir að gera við landamæri Ind
lands í dag? Hvaða starfsemi
stunda þeir í sambandi við Viet
Nam styrjöldina? Hver er hlut-
ur þeirra í átökunum milli
Indónesíu og Malasíu? Kínverj-
um hefur tekizt ótrúlega vel að
magna ófriðarelda án þess að
taka beinan þátt í hernaðarað-
gerðum. En með því er ekki ÖU
sagan sögð, eins og hér hefnr
verið bent á. Hitt er svo ákaf-
lega athyglisvert, og ástæða til
að menn minnist þess að
málgagn kommúnista hér á
landi, hefur nú tekið ótvíræða
og afdráttarlausa afstöðu með
utanríkisstefnu Rauða Kína, og
telur, að heimsfriðnura stafi
engin hætta af þeirri stefnu.
Kommúnistar hér á landi hafa
nú sýnt sitt rétta andlit. Þeir
styðja þá og styrkja, sem kynda
bál ófriðarins, hvar sem þeir
geta, og sem hefur þegar haft
ólýsanlegar hörmungar í för
með sér fyrir mUIjónir manna
í nágrannalöndum þeirra. Á því
taka kommúnistar hér á landi
ábyrgð.