Morgunblaðið - 23.09.1965, Síða 5
Fimmtudagur 23. sept. 1965
M f> I?ó ,f ' I s •) j 3
5
gMM
ww”1
MILLI Breiðavíkur og svo-
nefndrar Búðaví'kur á sunnan
verðu Snæfellsnesi gengur
fram einkennilegur hraun-
tangi, nokkuð breiður og
kollóttur og kallaðist Kletts-
hraun fyrrum, en nú Búða-
hraun. Upp úr því mi'ðju rís
eldgígur og sýnist nokkuð hár
tilsýndar. Hann kallast Búða-
klettur, og líkist þó meira há-
um mel en kletti. Úr honum
hefir þetta hraun komið og
eru takmörk þess glögg á
alla vegu, og nær það hvergi
saman við önnur hraun. Þarna
hafa orðið mörg gos í fornöld
og hafa hraunstraumarnir
hlaðist hver ofan á annan. Er
allt hraunið mjög sprungið og
umíbylt og örðugt yfirferðar,
og má sjá, að vatnsgufur hafa
verið þar að verki. En litið er
á landaþréfið má sjá að þessi
hrauntangi, sem er um 15 fer-
km. að flatarmáli, er viðbót
við landið. Þarna hefir áður
verið ein vík, þar sem nú eru
tvær, og s.tröndin bein eða
aðeins íbogin. Eldsupptökin
hafa því verið úti í sjó, enda
er sýnilegt ættarmót með
Búðakletti og Surtsey. Með-
an gosið var í sjó, sundraðist
eldkvikan í vikur, öskur og
sindur, er hlóðst upp á gos-
staðnum þar til komin var
ey. Og þessi ey hafði hækkað
'svo, að sjór náði ekki að
renna inn í gíginn, tók hann
að gjósa hrauni- En vegna
þess hve miklu grynnra var
þarna út af Axlarhyrnu held-
ur en þar sem Surtur hóf
starfsemi sína, hefir Búða-
kiettur getað hla'ðið utan um
sig miklu stærri hraundyngju
heldur en Surtur. Sjálfur eld-
gígurinn sannar uppruna sinn
og ætterni. Hann er allur
hlaðinn upp úr vikri og gjalli
og stingur mjög í stúf við
hraunin, sem hann hefir dreift
umhverfis sig. Eldgígurinn
hefir stigið upp úr djúpinu
eins og hann enn er, og hefir
( síðan skapað þessa 15 ferkm.
landaukningu á Snæfellsnesi.
— Hér má líta mynd af Búða-
kletti og hrauninu næst hon-
um.
Innan við hraunið er Hraun
hafnarós, gömul höfn, sem
getið er á nokkrum stöðum í
fornsögum. Þar var síðar
lengi mikil verzlun og útgerð
og hélzt allt fram á þessa öld.
Átti þar þá stundum heima
nokkuð á annað hundrað
manns, og má enn sjá ýmsar
minjar frá þeim tíma, þótt
byggðin sé nú öll önnur- Þar
er nú bóndabær og kirkju-
staður, og þar í hraunjaðrin-
um við ósinn stendur sumar-
gistihúsið Búðir. Er myndin
af því, en í baksýn er hið ein-
kennilega og fagra Mælifell.
ÞEKKIRÐU
LANDIÐ ÞITT?
VHSUKORIM
Ég stóð út á altaninu í kvold-
kyrrðinni og horí'ði á tréin í
kvöldkyrrðinni, sem eru að klæð
ast litskrúði haustsins.
Hugann róar kvöldsins kyrrð,
kætir ríka og snauffa,
þessi Ijómi og litadýrff,
er lífinu boðar dauffa.
Jakob Jónasson.
Akranesferðir: Sérleyfisbifreiðir
Þ.Þ.Þ. Frá Reykjavík alla daga kl.
8:30 frá BSÍ og kl. 6:30 frá BSR,
nema laugardaga kl. 2 frá BSR.
sunnudaga kl. 9 e.h. frá BSR og 11:30
frá BSÍ. Frá Akranesi: kl. k og 12
alla daga nema laugardaga kl. 8 og
sunnudaga kl. 3 og 6.
Á ferð og flugi ................... 222
Hafskip h.f.: Langá er I Gdynia.
Laxá er á Akureyri. Rangá er í Huli.
Selá er í Hamborg.
Skipaútgerð ríkisins: Heklia fer frá
Amsterdam í dag áleiðis til Rvíkur.
Esja er á Austfjörðum- á norðurleið.
HerjóLfur fer frá Vestmanmiaeyjum 1
dag til Homaifjarðar. Skjaldbreið er
í Rvík. Herðubreið er í Rvík.
H.f. Jöklar: Drangajökull fór 1 gær-
kvöldi frá Kiel til Vestur-India. Hofs
jökull fór 14. þm. frá Dublin til
Glouester, NY. Wilmimgton og Char-
leston. Langjökull fór 18. þm. frá
Jakopstad, FinmJandi til Belfast. Vatna
jökull lestar í Neskaupstað í dag, fer
þaðan vænjtanJega í kvöld til Belfast,
LiverpooJ, Cork, Lomdon, Rotterdam
og Hamborgar. Minni Basse fór í
gærkvöldi frá London til Hamborgar
og Rvíkur.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Katta er í Kristiamsamd Askja kemur
til Vsldemarsvík í Svíþjóð frá Heröya
í Noregi.
Skipaleiðir h.f.: Anna Borg fór frá
Kedliavík 20. þ.m. á leið til Napoli.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell er á
Akureyri. Jökuifell er í Keflavík, fer
þaöan í dag til Grimsby og CaJais.
Dísarfeli kemur til Bolungarvíkur í
dag, fer þaðam til Rvíkur. Litiafell
fer í dag frá Rvik til Norður- og
A usturlancishaifina. Helgafeli fer í dag
frá Helisingfors til Ábo. Hamrafeli
fer væntanJega í dag frá Comstamza tii
Rvikur. Stapafeil fór 21. frá Rotter-
daim til Rvíku-r. Mælifell er væntan-
legt til Rvíkur í dag frá Gloucester.
Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug
GuLlfaxi fór til Glasgow og Kaup-
mannahafnair kl. 08:00 1 morgun.
Væntain-Legur aftur til Rvíkur kl.
22:40 í kvöld. Sólfaxi er væntamlegur
til Rvíkur kl. 15:00 í dag frá Kaup-
mannahöfn og Bergen. Innanlandsflug
í dag er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (3 ferðir), Vestmaninaeyja (2
ferðir), Egilsstaða,' (ísafjarðar, Kópa-
skers, Þórshafnar, Húsavíkur og Sauð
árkróks.
LoftJeiðir h.f.: Vilhjálmur Stefáns-
son er væntanlegur frá NY kl. 09:00.
Fer áleiðis tid Luxemborgar kl. 10:00
Er væmtanJegur rfl baka frá Luxem-
borg kl. 01:30 1 nótt. Heldur áfram
til NY kl. 02:30. Leifur Eiríksson er
væmtanlegur frá NY kJ. 07:00. Fer
til ba-ka til NY kl. 02:30. Snorri Þor-
finrasson fer til Óslóar k»l. 08:00. Er
væntamJegur til baka kl. 01:30 í nótt.
Snorri Sturluson fer til Gautaborgar
og Kaupmannahaifma'r kl. 08:30. Eirík-
ur rauði er væntanJegur frá Kaup-
mannahöfn og Gautaborg kl. 01:30 í
nótt.
að hann hefði verið að fljúga
um yfir Miðborginni í gær, og
séð þar nokkura lögregluþjóna
vera að ýta einum bíl í gang.
Alltaf er veri'ð að skammast út
í lögregluna, en má ég þá segja,
sagði storkurinn, betri menn
þekki ég ekki, máski af því, að
mér er málið pínulítið skylt, og
þó held ég, að lögreglumennirnir
vilji hvers manns vanda leysa,
O'g það á raunar að vera aðals-
merki hvers opinbers starfs-
manns, að gera, hvað hann get-
ur, til að liðsinna fólkinu í 1-and-
inu. Hinu má þó ekki gleyma,
að lögreglumenn eru refsivönd-
Telpa óskast
til barnagæzlu 3—4 tíma
á dag. Uppl. í sima 21554.
Keflavík
Stúlka eða kona óskast til
afgreiðslustarfa. Matstofan
Vík.
[Stúlka óskast
á lítið heimili í nágrenni
Reykjavíkur. Má hafa
barn. Uppl. í síma 19861.
ur, og það allharður, þegar það
á við. Og svo ber að vera.
Sem ég nú flaug þar yfir
Mfðborgina, sem svo er nefnd
af þeim, sem endilega vilja
klastra einhverju útborgarnafni
hin borgarhverfin, sem í sjálfu
sér eru í dag miklu merkilegri
borgarhverfi en þessi margum-
talaða Miðborg, sem á ekkert
annað en gamla bárujárnskofa,
þröngar götur, sem þó standa
til bóta, þá hitti ég mann þar
við Aðalstrætið, þetta var raun-
ar enginn maður. Mætti maður
vænta einhvers sérstaks við
Aðalstræti borgarinnar, Aust-
urstræti, Bankastræti og
Laugaveg, Þetta eru þó göturnar
sem hafa staðið sig í ge.gnum'
árin. að ógleymdri Hverfisgötu
og Hafnarstræti þar sem sú
fræga verzlun Edinborg hefur
verið til húsa í hartnær aldar-
helming við góðan orðstír, og
hennar verður vafalaust saknað,
þegar hún flyzt inn á Laugaveg-
Einhvern veginn finnst mér,
sagði storkurinn, að ég kunni
ekki við EDINBORG annarsstað-
ar en í Hafnarstræti. Ásgeir
Sigurðsson stofnaði þessa verzl-
un á sínum tíma til að vega upp
á móti hinu danska kaupmanna-
valdi, til þess að sýna, að fs-
lendingar gætu staðið á eigin
fótum.
Út af öllu þessu rabbi mínu
um Edinborg, hitti ég engan
mann, áð lokum oog læt það
nægja í dag að endurtaka, að
Verzlunin EDINBORG hefur svo
sannarlega staðið sig í gegnum
árin, hvert svo sem hún flytur
í dag. Hún bryddaði upp á mörg-
um nýjungum, sem brátt voru
upp teknar af öðrum íslenzkum
verzlunum. Fyrir þetta erum við
í dag, þakklát EDINBORG, sagði
storkurinn og með þáð flaug
hann upp á þakið á pylsuvagn-
inum í Tryg.gvagötu, sem er eini
sanni pylsuvagninn í þessari
borg. Reynið það sjálf, góðu les-
endur, með nógu sinnepi og hrá-
um lauk.
gStúlka óskast
við aðgöngumiðasölu. —
Gamla bíó.
JStúlka
Okkur vantar stúlku, 15
ára eða eldri til aðstoðar
í brauða og mjólkurbúð, 5
tíma á dag. Upplýsingar í
síma 33435.
|Fundist hefur
•drengjareiðhjól (rautt). •
Upplýsingar í síma 11118
frá kl. 12—1 og á kvöldin.
Til sölu á sama stað 8 cyl.
mótor í Ford ’55 með sjálf
skiptingu.
|Til leigu
3ja herb., ný íbúð á Sel-
tjarnarnesi. Upplýsingar í
sima 18531, kl. 10—12 og
17—19.
[Lagtækir verkamenn
óskast í byggingavinnu.
Trésm. Björns Ólafssonar,
Reykjavíkurveg 68, Hafnar
firði, símar 50174 og 51975
|Volkswagen árg. 1965
til sölu. Upplýsingar í síma
16884, frá kl. 3—7.
Ensk hjón
hljóðfæraleikarar með Sin
fóníuhljómsv. fsl. óska eft
ir 2 herb. með húsg. og
eldhúsi, frá 20. okt. eða
fyrr. Fyrirframgr. mögu-
leg. Uppl. í síma 1-4992
fyrir kl. 5.
Vörubifreið til sölu
Ford, árg. 1960, með krana.
Nánari upplýsingar gefur
Finnur Óskarsson í síma
146, Seyðisfirði.
Keflavík
Píanó til sölu. Upplýsingar
í síma 2012.
2ja til 4ra herb. íbúð
óskast til leigu 1. okt., fyr-
ir hjón utan af landi, með
eitt barn. Upplýsingar í
síma 10730.
Kaupið 1. flokks húsgögn
Sófasett, svefnsófar, svefn-
bekkir, svefnstólar. 5 ára
ábyrgð. Valhúsgögn, Skóla
vörðustíg 23. — Siml 23375.
Klæðum húsgögn
Klæðum og gerum upp.
bólstruð húsgögn. Sækjum
og sendum yður að áostnað
arlausu. Valhúsgögn, Skóla
vörðustig 23. — Sími 23375.
Til leigu
fyrir einhl'eypa konu, 1 her
bergi, skáli, eldhús og bað.
Tilboð ásamt upplýsingum
sendist blaðinu merkt „Sel
tjarnarnes—2297“ fyrir há-
degi laugardag.
Radial bútsög
til sölu. Kr. 25 þús. Tré-
smiðja Björns Ólafssonar,
Reykjavíkurveg 68, Hafnar
firði. Símar 50174 og 51975
Hestamenn
Til sölu góður hestur, jarp-
toppóttur, 6 vetra, þýður
og lipur töltari. Einnig
sundurtekinn Willys-jeep,
árg. ’47. UpplýSingar í
síma 36230 kl. 4—6 í dag.
Bifreiðaeigendur athugið
Hef opnað réttingarverkstæði að Miðtúni
við Vífilsstaðaveg.
Tek bíla til réttinga, rúðuþéttingar,
hurðastillingar og allskonar smá viðgerða.
Hringið í síma 51496, — fljót og góð
afgreiðsla.
Réttingaverkstæði
ÓLAFS JÓHANNSSONAR.
Aðstoðarstúlka
á skrifstofu óskast til þess að annast símavörzlu
o. fl. Vélritunarkunnátta ekki skilyrði. Umsóknir
sendist afgr. Mbl. fyrir 30. þ.m. merkt:
„Aðstoðarstúlka — 7547“.
Hófe/ fi/ sö/u
Af sérstökum ástæðum er hótel Snæfell á Seyðis-
firði til sölu með öllu tilheyrandi til veitinga-
reksturs, væg útb. — Nánari uppl. gefur
Nýja fasteignasalan
Laugavegi 12 — Sín:i 24300
og kvöldsími 18546.