Morgunblaðið - 23.09.1965, Qupperneq 14
14
MORGUNBLADIÐ
Fimmtudagur 23. sept. 1965
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjó.ri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Knstinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
SAGAN ENDUR-
TEKUR SIG
17’aupgjald hækkar, rekstr-
arvörur landbúnaðarins
hækka ásamt því kaupgjaldi,
sem bóndinn verður að
greiða, dreifingarkostnaður
og vinnslukostnaður landbún
aðarafurða hækkar og niður-
staðan verður. að verðlag
landbúnaðarafurðanna hækk
ar. Fólkið verður að greiða
hærra yerð fyrir mjólk og
kjöt, garðávexti, smjör og
osta.
Þetta er gömul og ný saga.
Kaupgjald og verðlag eru
tveir samofnir þættir, • sem
hafa rík áhrif hver á ann-
an, ekki sízt þegar þeir hafa
beinlínis verið tengdir sam-
an með löggjöf.
Vitanlega telja neytendur
sér hækkun verðlagsins jafn-
an óhagstæða. Þeir gera sér
hins vegar ljóst, að kaup-
hækkanir og aukinn rekstrar
kostnaður bænda hlýtur að
hafa í för með sér hærra af-
urðaverð. Það þarf engum að
koma á óvart. Bændur fá hins
vegar aðeins hluta þeirrar
hækkunar, sem nú hefur orð-
ið á afurðaverði. En sú hækk-
un sem bændur fá nú, 11,2%,
frá síðastl. hausti, er byggð
á því samkomulagi-, sem náð-
ist í sex-manna nefndinni í
fyrra. Bændur fá með öðrum
orðum bættar þær hækkanir
í afurðaverði sínu, sem orðið
hafa síðan á kaupgjaldi og
rekstrarvörum samkv. út-
reikningi Hagstofu íslands.
Ástæðulaust er að gera
breytingar á verði landbún-
aðarafurða á þessu hausti að
tilefni æsinga og uppnáms.
Gildandi löggjöf og ákvarð-
anir um verðlagsgrundvöll
landbúnaðarafurða hafa ver-
ið teknar af öllum stjórnmála
flokkum og fulltrúum neyt-
enda og framleiðenda.
Hækkað afurðaverði fylgir
altlaf í kjölfar hækkaðs kaup
gjalds. Það er staðreynd, sem
þýðingarlaust er að loka aug-
unum fyrir.
Það sem mestu máli skiptir
er hins vegar að þjóðin geri
sér ljóst, að áframhaldandi
kapphlaup milli kaupgjalds
og verðlags er háskalegt.
Þetta kapphlaup verður að
stöðva, ef grundvöllur ís-
lenzkrar krónu á ekki enn að
ráskast og ný verðbólgualda
að rísa, öllum til tjóns nema
þeim upplausnaröflum, sem
leynt og ljóst stefna að því
að trufla jafnvægi íslenzks
efnahagslífs, og leiða hrun og
vandræði yfir þjóðina. Slík
áform mega ekki takast. ís-
lendingar mega ekki leiða þá
ógæfu yfir sig, að góðæri og
stórfelldu uppbyggingarstarfi
verði snúið upp í kyrrstöðu
og erfiðleika.
STÆKKUN
SKIPAST ÖLSINS
Gkipastóll íslendinga er nú
^ um 150 þús. brúttó smá-
lestir að stærð. Hefur flotinn
vaxið hröðum skrefum síð-
ustu árin, og er óhætt að
fullyrða, að aldrei hafi ís-
lendingar átt jafn glæsilegan
og fullkominn flota fiskiskipa
og í dag.
Árið 1955 er brúttó smá-
lesta tala íslenzka flotans 98
þús. smálestir, árið 1959 118
þús. smálestir, árið 1960 132
þúsund smálestir og í dag eins
og áður segir 150 þúsund smá-
lestir. Mjög stór hluti þess
flota, sem við eigum í dag
er nýr og búinn fullkomnustu
tækjum, sem um getur í sögu
íslenzkra fiskveiða og far-
mennsku.
Þessi þróun er vissulega
gleðileg. Án hennar væru t.d.
síldveiðar á fjarlægum mið-
um óhugsandi.
Þessi stórfellda uppbygging
aðalframleiðslutækja íslend-
inga er enn ein sönnun þess
að stefna Viðreisnarstjórnar-
innar hefur haft heillavæn-
leg áhrif á íslenzkt athafna-
líf. Hún hefur leitt til geysi-
legrar framleiðsluaukningar,
sem síðan hefur orðið grund-
völlur bættra lífskjara og
aukins afkomuöryggis alls al-
mennings.
ALVARLEGASTA
HÆTTAN
17" ommúnistablaðinu á ís-
^ landi finnst það mikið
öfugmæli, þegar því er haldið
fram hér í blaðinu, að „alvar-
legasta hættan sem steðjar að
heimsfriðnum í dag“ séu hót-
anir Rauða Kína í garð ná-
granna sinna. Síðan reynir
kommúnistablaðið að færa
rök að því, að Kínverjar séu
friðelskandi þjóð og komm-
únistastjórnin í Peking ógni
hvorki frið né öryggi í ver-
öldinni!
Þá vita íslendingar hver af-
staða íslenzkra kommúnista
er til styrjaldaræsinga Pek-
ingstjórnarinnar. Þeir taka af
stöðu með Rauða Kína en á
móti Sovétríkjunum, sem
hafa varað Pekingstjórnina
við að blása að glæðum ófrið-
arins milli Indverja og Pak-
istana. Engum dylst að Sovét-
stjórnin hefur þungar áhyggj
ur vegna styrjaldarhótana
•v-
Frá hátíðahöldum á Tien An Men-torginu í Peking. Heljarmikil stytta af Mao í baksýn.
Um afmælishald og minn-
ingarhátíðir í Peking
KÍNVERJAR eru nú í óða
önn að undirbúa mestu af-
mælishátíðahöld ársins — 1.
október-hátíðina, sem haldin
er til að minnast stofnunar
Alþýðulýðveldisins 1949 og
sendinefndir erlendra ríkja
eru þegar farnar að koina til
Peking. En þó þessi hátíða-
, höld séu flestum öðrum íburð
armeiri, eru þau ekki nema
ein af mörgum. Það líður
varla sá dagur, að ekjti sé
haldin hátíð í Peking til að
minnast einhvers liðins at-
burðar eða merkismanns.
i Stundum eru meira að segja
margar minningarhátíðir á
dag.
Minningarhátíðir þessac
eða afmæli gefa kínverskum
kommúnistum handhægt til-
efni til að hrósa vinum sín-
um, afla áhugamálum sínum
fylgis eða úthúða óvinum
sínum. Þau má líka nota til
nýrrar útleggingar á mann-
kynssögunni eða til að skrifa
upp aftur einn og einn kafla.
Ein slík endurritun átti sér
stað nú fyrir skömmu þegar
stjórnin í Peking ákvað að
3. september skyldi það hald
ið hátíðlegt að þann dag
yæru liðin tuttugu ár síðan
sigur var unninn á Japön-
um. Fjöldi áróðursrita var út
gefiíin þar sem frá því var
skýrt, að sigurinn hefði
unnizt fyrir tilstilli skæru-
liða kommúnista. Á hlut
Bandamanna að sigrinum er
ekki minnzt og ekki er held-
ur vikið að íhlutun Sovét-
ríkjanna á síðustu dögum
styrjaldarinnar, sem áður
var mjög á loft haldið. Eng-
um blöðum var um það að
fletta, hverja lexíu átti af
áróðri þessum að draga: þá,
að eins og skæruliðar hefðu
unnið sigur í Japan eins
myndu þeir vinna sigur á
Bandaríkjamönnum í Viet-
nam.
Hvers vegna 3. september
varð fyrir valinu er hrein
ráðgáta. Japanir gáfust upp
14. ágúst og uppgjafarskjölin
voru undirrituð 2. septem-
ber. Annart dag héldu Kín-
verjar hátíðlegan í ár, 27.
júní, sem ekki var síður
erfitt að henda reiður á. Þá
var þess minnzt, að liðin
væru fimmtán ár frá því
,J3andaríkjamenn hertóku
Taiwan (Formósu)“. Þann
dag voru haldnar „miklar
kröfugöngur" að sögn Kín-
vérja og heimtað að eyjan
yrði sem bráðast „frelsuð“ úr
höndum þjóðernissinna. Þessa
dags hafði ekki áður verið
minnzt í Kína, en þegar til
átti að taka, varð fyrir val-
inu dagurinn sem Truman
Bandaríkjaforseti tilkynnti
áð Sjöundi flotinn myndi
verja Formósu.
Meðal afmælisdaga þeirra,
sem Kínverjar hafa sérstakt
dálæti á, eru and-banda-
rískir afmælisdagar allir.
Meðal þeirra sem minnzt
hefur verið undanfarið voru
áttunda afmæli uppþotanna
gegn Bandaríkjastjórn á For
mósu, fimmtánda dánaraf-
mæli bandaríska rithöfund-
arins og kommúnismans
Agnesar Smedley og fimm
ára afmæli stjórnarbyltingar
innar í Kóreu, er Syngman
Rhee var steypt af stóli.
Eins og að líkum lætur,
hafa kínverskir kommúnist-
ar fundið sér margs að minn-
ast í sambandi við Vietnam.
Þeir héldu til dæmis hátíð-
legan 5. ágúst í minningu
þess að þá var eitt ár liðið
frá fyrstu loftárás Banda-
ríkjamanna á N-Vietnam, og
ekki létu þeir heldur hjá
líða að minnast'fjögurra ára
afmælis stofnunar Frelsis-
hreyfingar kvenna í S-Viet-
nam og tíu ára afmælis járn
brautarsamnings Kína og
Vietnam.
Þá má og nærri geta, að
ekki líða hjá athugasemda-
laust afmæli samriinga
þeirra, sem Kínverjar gera
við önnu ríki og auðvitað er
einnig minnzt allra afmæla
kommúnanna úti um land og
sömuleiðis allra merkisdaga
í sambandi vi, ræður Mao
Tse Tung, ritverk og yfirlýs-
ingar.
Það fer að jafnaði eftir
stjórnmálaástandinu á hverj-
um tíma, hvernig slík hátíða
höld fara fram. Afmæla er
kannske minnzt með po.np
og pragt eitt árið, en rétt
vikið að þeim örfáum línum
í dagblöðum næsta ár, eða
jafnvel ekki einu sinni það.
Til dæmis var þess minnzt,
er eitt ár var liðið frá því
að kveikt var í bókasafni
bandarísku upplýsingaþjón-
ustunnar í Kairó, en er tvö
ár voru liðin frá atburðin-
um, leið sá dagur hjá athuga
semda- og tíðindalaust. Ef
ekkert sérstakt er um að
vera í stjórnmálum innan-
lands eða utan, hallast Kín-
verjar mjög að því að halda
einkum hátíðleg fimm ára
afmæli og tíu ára og svo
margfeldi þeirra. Það er að
segja, fimm eða fimmtán ára
afmæli einhvers atburðar er
að jafnaði íburðarmeira en
venjuleg afmæli og enr;
meira er við haft þegar ur;
er að ræða tíu eða tuttug
ára afmæli.
Framhald á bls. 19
Pekingstjórnarinnar. — En
mennirnir sem skrifa komm-
únistablaðið á íslandi hafa
engar áhyggjur af því þótt
við borð lægi að % hluti
mannkynsins hæfi stórstyrj-
öld. Mennirnir, sem á undan-
förnum árum hafa barið sér
á brjóst og flíkað friðarást
sinni eru rólegir. Rauða Kína
má hóta Indverjum árásar-
styrjöld. Rauða Kína má líka
ráðast á nágranna sína ef því
sýnist svo. „Friðarsinnarnir“
við íslenzka kommúnistablað-
ið standa með Rauða Kína.
Friðelskandi fólk um víða
veröid fagnar því hins vegar
að vopnahlé kemst nú á með-
al Indverja og Pakistana og
Rauða Kína hefur hikað við
að gera alvöru úr hótunum
sínum.