Morgunblaðið - 23.09.1965, Side 27
Fimmtudagur 23. sept. 1965
MORGUHBLAÐID
27
— Vopnahlé
Framh. af bis. 1.
inn í boðskap sínum að ályktun
Öryggisráðsins, sem krafan um
vopnahlé fólst í, hafi verið
óheppileg, en með tilliti til
heimsfriðari'ns hefði Pakistan
engu að síður fallizt á að
beygja sig fyrir ályktuninni.
Ayub sagði einnig, að tækist
Öryggisráðinu ekki innan
ákveðins tíma að leysa hið
eiginlega Kasmírvandamál,
myndi Pakistan segja sig úr
SÞ. „En Pakistan óskar eftir
samstarfi við U Thant, sem er
mikill „Asíumaður", bætti for-
setinn við.
Bhutto sagði að Pakistan
hefði gert U Thant það ljóst, er
hann var í Rawalpindi, að land-
ið óskaði eftir friði, en það yrði
að vera slíkur friður að Pakist-
an og Indland gætu lifað í sátt
og samlyndi sem góðir nágrann-
ar. Sagði Bhutto það vera al-
gjört aðalatriði í stefnu Pakist-
an að skapa vinsamleg sambönd
við öll nágrannaríki sín.
Áður hafði U Thant greint
Öryggisráðinu frá því, að Ind-
land hefði tjáð sig reiðubúið að
fara að fyrirmælum ráðsins um
vopnahlé.
Formaður Öryggisráðsins, Art-
hur Goldberg, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá SÞ, kvaðst fyrir
Ihönd meðlima ráðsins vilja
þakka leiðtogum Indverja og
Pakistana fyrir þá ákvörðun
Iþeirra að fara að fyrirmælum
ráðsins. Sagði Goldberg að þetta
vandamál hefði e.t.v. verið hið
erfiðasta, sem SÞ hefðu nokkru
sinni staðið andspœnis. Kvað
Goldberg Öryggisráðið mundu
gera allt, sem í þess valdi stæði,
til þess að tryggja varanlegan
frið á því svæði, sem um væri
eð ræða.
Öryggisráðið samþykkti síðan
é þessum fundi að framlengja
frestinn um vopnahlé þar til kl.
22 í kvöld (ísl. tími).
Shastri tárast
Lal Bahadur Shastri, forsætis-
ráðherra Indlands, flutti í dag
ræðu í Indverska þinginu, og til-
kynnti að hann hefði skipað herj
um landsins að leggja niður vopn
í styrjöldinni við Pakistan og að
þjóðirnar á Indlandsskaga yrðu
að láfa saman í friði. Grét Slhastri
í ræðustólnum, er hann tilkynnti
um skipun sína til hersins.
Shastri varaði samtímis þjóð
sína við því, að Kína „væri jafn-
vel enn hættulegra“, og yrði
þjóðin að vera staðráðin í því að
varðveita sjálfstæði sitt.
„Við vitum ekki, hvað Kín-
verjar gera næst“, sagði hann.
Þingmenn virtust vera í hinu
bezta skapi, en greinilegt var að
Slhastri tók ekki þátt í gleði
þeirra. Hann talaði í alvörutón,
og þegar hann minntist þeirra
indversku hermanna, sem fallið
Ihafa í styrjöldinni, féll Shastri
saman í ræðustólnum.
Einkennileg þögn varð um
allan þingsalinn, er hér var
komið sögu, þar til forsætisráð-
herran hafði náð valdi á tilfinn-
in um sínum.
&hastri sagði síðan að öllum
tPcringjum hersins hefði verið
send skipun um að láta af hern-
aði í styrjöldinni, sem hann kvað
hafa hafizt 5. ágúst, er flugumenn
Pakistan hefðu haldið innreið
sína í Kasmír.
Shastri kvaðst vilja gera öllum
lji;t, að Indland hefði fallizt á
„einfalt vopnahlé", og fæli það
ekki í sér neina stjórnmálalega
samninga um ágrei.ning Indlands
og Pakistan. Kvað hann nákvæm
ar umræður þurfa að fara fram
um þá htið málarina. í þessu
sambandi sagði hann að Indland
hefði fallizt fyrir sitt leyti á hið
góða boð Kosygins. forsætisráð-
herra Sovétríkjanna. Kosygin
hafði áður stungið upp á því, að
Ayub Khan. forseti Pakistan og
Shastri, hittust í Sovétríkjunum,
tii þess að ræða hina 18 ára
gömlu deilu landa sinna. Shastri
kvaðst hafa þegið boð Kosygins
sökum þess að augljós væri, að
Indland og Pakistan yrðu að lifa
saman í friði.
Rödd forsætisráðherranns varð
enn alvörufyllri, er hann tók að
ræða um Kína. „Við lítum mjög
alvarlegum augum á starfsemi
Kínverja á landa:hærunum, og
vopnaðan ytirgang þeirra á lands
svæðum okkar“, sagði hann.
Hann kvað yfirlýsingui Kínverja
um hernsöarundirbúning Ind-
verja á landamærunum afsprengi
hugmyndaflugs þeirra.
Ayub flytur útvarpsræðu
Ayub Kh.-n, forseti Pakistan,
flutti útvarpsræðu til þjóðar
sinnar í dr.g, og skýrði frá því, að
hann hefði fyrirskipað herjum
Pakistan að leggja niður vopn kl.
22 í kvöld (ísl. tími) og skjóta
eftir það ekki á óvinahermenn,
nema skoitð yrði á þá að fyrra
bragði. Hann bætti því við að
Pakistanar myndu halda núver-
andi stöðvum sínum í bili, eða
þangað til óskað yrði eftir því að
þeir yfirgæfu þær.
„Það var ekki fyrr en eftir að
Indverjar réðust á okkur 6. sept-
ember sl. að við tókum áskorun-
ínni, og við höfum sýnt hvað í
okkur býr“, sagði Ayub. Hann
bætti því við, að SÞ. yrðu að
finna varauléga lausn á Kasmír-
deilunni, ef tr.vggja ætti frið í
þessum hermshluta, og kvaðst
hann vona að Indland og Pakist
an gætu sainið um frið, sem báð-
ir aðilar gætu sætt sig við.
Loftárás á Amritsar
Aðeins nokkrum klukkustund-
um áður en vopnahlé átti að
ganga í gildi gerðu fimm þotur
flughers Pakistana, af gerðinni
Sabre mikla loftárás á Amritsar,
hina heilögu borg Sikhanna í
Indlandi. Munu a.m.k. 45 manns
hafa farizt í loftárás þessari, en
talsmaður indverska varnarmála-
ráðuneytisins sagði að meira en
vel gæti verið að yfir 100 manns
hafi farizt.
Þ o t u r Pakistana slepptu
sprengjum sínum yfir mjög þétt-
býl hverfi 1 Amritsar, en aðal-
mark þeirra var járnbrautarstöð
borgarinnar. Talið er að sprengj-
urnar hafi vegið hálft tonn hver.
Fyrr í dag höfðu indversk yfir-
völd tilkynnt að flugvélar Pak-
istana hefðu gert árás á fangelsi
í Jodhpur í ríkinu Rajastan.
Hefðu 30 sjúklingar í fangelsis-
sjúkrahúsinu farizt í árás þess-
ari. Jodhpur er um 480 km. frá
landamærum Indlands og V-
Pakistan, en Amritsar er hins-
vegar aðeins 25 km frá landa-
mærunum og Lahoresvæðinu, en
þar hafa hörðustu bardagar hins
þriggja vikna gamla stríðs Ind-
lands og Pakistan geisað. Áður
en fregnirnar um þessar árásir
Pakistana spurðust hafði ríkt
mikil gleði í Nýju Delhí og ann-
ars staðar í Indlandi vegna
vopnahlésins.
Indverskir embættismenn
sögðu í dag, að baráttan um
Kasmír væri síður en svo á enda.
Indland muni ekki vilja að á-
standið í Kasmír yrði eftirleiðis
eins og það var áður en styrjöld-
in hófst, því Pakistanir geti þá
ógnað Indverjum í Kasmír. í
Nýju Delhí er því reiknað með
að bæði Indverjar Og Pakistanir
muni halda þeim stöðvum, sem
þeir hafa unnið, til þess að hafa
sem flest spil á hendi í væntan-
legum samningaviðræðum. Að
því er indverskar heimildir
segja, hafa Indverjar náð á sitt
vald töluverðu landssvæði Pak-
istana milli Lahore og Sialkot.
Indver'ar hafa einnig sótt fram
fvrir hina gildandi vopnahlés-
línu í Kasmír til þess að tryggja
hið lífsnauðsynlega samband sitt
við Ladakh. en það er á þeim
slóðum, sem mest ógn stendur
af Kínverjum. Hinsvegar hafa
Pakistanar hernumið hluta af
Vestur-Kasmír, sem stjórnað hef
ur verið af Indverjum.
Byssurnar þagna
Pakistanmegin víglínunnar dró
smátt og smátt úr orrustugnýn-
um í kvöld. Drunur hinna stóru
fallbyssna urðu færri, gelt vél-
byssna og skothvellir riffla urðu
stöðugt veikari, og lengra leið
milli skothvella. En hermenn Pak
istans stóðu í öllum herklæðum
við víglínuna og biðu; þess að
vopnahléið gengi í gildi, tveimur
í
Einn íslandsfaranna val-
inn til 96 mín. geimgöagu
— á næsta ári
Houston, Texas, 21. sept.
GEIMFARINN David R. Scbtt,
einn þeirra geimfara, sem
hingað komu til þjálfunar í
júlímánuði, hefur verið val-
inn til 96 minútna „geim-
göngu“ umhverfis jörðu
snemma á næsta ári. Þetta
verður lengsta slík ferð, er
nokkur maður hefur farið í
geimnum. Scott verður annar
Ameríkumaðurinn, er fer út
úr geimfari á braut um jörðu.
Til að stjórna hreyfingum
sínum í geimnum mun Scott
— sem fer í Gemini-8 — nota
nýrri og fullkomnari gerð af
„loftbyssu" eða stjórntæki en
geimfarinn Edward White
beitti í 20 mínútna geimgöngu
sinni yfir þvert meginland
Ameríku 3. júní sl. í Gemihi-4
geihiferðinni. White var fyrsti
maðurinn, er stjórnaði hreyf-
ingum sínum í geimnum með
blásturstæki.
Eins og White verður Scott
geimfari í um 160 kílómetra
hæð úti í geimnum, þegar
hann stígur út úr geimfarinu
og hefur göngu sína umhverfis
jörðu. Hann verður klæddur
sterkum búningi til varnar
gegn geimgeislum og ryki.
Geimrannsóknaráð Banda-
ríkjanna hefur tilkynnt, að
Neil Armstrong, fyrsti geim-
farinn, sem ekki er úr hópi
manna í herþjónustu, muni
verða flugstjóri í Gemini-8-
geimferðinni. Þessi tveggja til
þriggja daga geimferð er á-
formuð í apríl eða júlí, en get-
ur orðið fyrr.
Á þessari löngu geimgöngu
sinni mun Scott, sem er 33ja
ára, reyna.sitthvað, sem ekki
hefur fyrr verið gert. Hann
David R. Scott.
mun ekki nota 7,5 metra líf-
taug heldur 22,5 metra langa.
Gullhúðuð líftaugin, sem er að
þvermáli svipuð garðslöngu,
tengir hann geimfarinu og flyt
ur honum lífsnauðsynlegt súr-
efni, og í gegnum hana hefur
hann talsamband við Gemini-
geimfarið og heimsbyggðina.
Scott mun þoka sér kringum
geimfarið með stóran súr-
efnisgeymi. Sennilega mun
hann þá nota tækifærið til
myndatöku. Hann mun reyna
nokkrar skrúfur og bolta og
sérstök geimtól, og hann mun
láta sig líða í loftinu að stilli
tækjahluta geimfarsins og
taka þaðan geislamælinga-
tæki, sem fest er utan á geim
farið.
Á þeytingnum gegnum rúm
ið með átta kílómetra hraða
á sekúndu, vonast Scott til að
geta gert athugar.ir á Agena-
eldflaug, sem mun verða á
ferð þar í grendinni og skotið
verður á loft áður. Einnig
munu geimfararnir oftsinnis
náigast og koma Gemini-far
inu samsíða Agena-eldflaug-
inni, en þetta er aðferð, sem
bráðnausyniegt er að geta
beitt, er Bandaríkjamenn
senda mannað geimfar til .
tunglsins fyrir árið 1970.
Armsírong geimfari hefur
geimflugsrevnslu, en ekki
Scott, þar sem Armstrong,,
sem er 35 ára að aldri, hefur
reynslufiogið geimþotunni
amerísku X-15. Árið 1962
hætti hann tilraunaflugi og
gerðist geimfari.
Meðan áætlanir eru gerðir
fyrir Gemini-8-ferðina, held-
ur áfram undirbúningur í
geimstöðvunum á Kennedy
höfða í Fíorida fyrir Gemini-
6 og 7-ierðirnar.
í Gemini-6-ferðinni í haust
munu geimfararnir Walter
Schirra og Thomas Stafford
gera tilraunir til að mæta og
leggjast að Agendaeldflaug-
inni á braut. Og á þessu ári
eða snemma árs 1966 munu
tveir aðrir ameriskir geimfar-
ar þjóta út í geiminn með
Gemini-7-farinu í tveggja
vikna metferð.
klukkustundum fyrir sólarupp-
rás.
Engin merki sjást þess meðal
fólksins í Pakistan að því hafi
létt og það sé ánægt með tíðindin
um vopnahléð. Virðist menn þar
almennt hafa orðið fyrir von-
brigðum, því flestir höfðu talið
að Pakistan myndi berjast áfram
þar til Indverjar neyddust til
þess að fallast á að þjóðarat-
kvæði færi fram í Kasmír.
Gæzlusveitir SÞ
í New York átti U Thant eril-
saman dag við að undirbúa stofn
un gæzlusveita SÞ, sem senda á
til Kasmír, og nauðsynlegar eru
til þess að sjá um að vopnahléið
vr ' "'rt af báðu maðilum. Hef-
--t snúið sér til all-
á, og beðið þær að
leg_ . lið til gæzlustarfa.
Meðal þzzsara þjóða eru Ástral-
ía, Kanada, Ítalía og Noregur.
Ráðgert er að gæzlusveitirnar
skuli hafa höfuðstöðvar í Jull-
undir á Indlandi og Lahore í Pak
istan. U Thant segir að reyna
eigi að koma gæzlusveitunum á
staðinn sem allra fyrst, og jafn-
framt hefur Odd Bull, hershöfð-
ingi, yfirmaður gæzlusveita SÞ í
Palestínu, lofað að leggja frarri
30 menn af liði sínu til gæzlu-
starfa til bráðabirgða, eða þang-
að til hinar nýju gæzlusveitir eru
reiðubúnar.
Viðbrögð manna
Johnson, Bandaríkjaforseti, tal
aði í síma í dag við Ayub Khan,
forseta Pakistan. Var það Pakist-
anforseti, sem átti frumkvæðið
að símtalinu og hringdi til Hvíta
hússins. Lofaði Johnson því að
Bandaríkin myndu styðja í orð-
um og verki aðgerðir SÞ og til-
raunir til að reyna að koma á
erdanlegum friði með Indlandi
og Pakistan. Las Johnson upp
fyrir Ayub tilkynningu, sem síð-
ar var gerð opinber.
í yfirlýsingu sinni segir John-
son að vopnahléið „hafi fært oss
stórt skref frá þeirri hræðilegu
hættu, sem ógnað hafi þessum
hluta Asíu“.
Forseti Allsherjarþings SÞ,
Amintore Fanfani, utanríkisráð-
herra ftalíu, sagði í aðalstöðvum
SÞ í dag að ákvörðunin um
vopnahlé hafi verið mjög mikil-
vægur atburður, og lofaði þetta
góðu um starf Allsherjarþingsins.
Hann kvaðst hylla þann sam-
vinnuanda, sem fram hefði kom-
ið á ákvörðunum Indlands og Pak
istans að fallast á vopnahléið.
í London var tíðindunum um
vopnahléið vel tekið. í París
sagði franski upplýsingamálaráð-
herrann, Peyrefitte, að franska
stjórnin teldi aðgerðir SÞ vitur-
legar og raunsæar. Blaðið Le
Monde í París sagði í dag að Ör-
yggisráðið hafi nú í fyrsta sinn
reynzt vandanum vaxið.
— Brandt
Framh. af bls. 1.'
Brandt fór beizkum orðum
um óhróðursherferð þá, sem
hann kvað hafa verið gerða
gegn sér í kosningabaráttunni,
og kvaðst hann ekki hafa kom
ið heill út úr þeirri hríð. —
Hann nefndi veru sína í Nor-
egi á nazistatímabilinu, og
kvaðst hafa komið þaðan til
Þýzkalands með hreina sam-
vizku.
Brandt kvaðst enga mögu-
leika telja á því að mynduð
yrði samsteypustjórn allra
flokka í V-Þýzkalandi.
í tilkynningu, sem flokks-
Stjórn sósíaldemókrataflokks-
ins gaf út í dag, er Willy
Brandt þakkað starf hans í
kosningabaráttunni. Jafnframt
kveðst flokksstjórnin virða
óskir hans um að halda borg-
arstjóraembættinu áfram, og
gefa sig algjörlega að því.
— Fundur
Framhald af bls. 2
ist vera viðstaddur „Dag V-
Þýzkalands“ á hinni alþjóðlegu
efnafræðisýningu, sem nú stend-
ur yfir í borginni. f Bonn hefur
hinsvegar ekki verið dregin dul
á að von manna þar sé að Car-
stens geti bætt samkcmulag V-
Þýzkalands og Sovétríkjanna.
Er Carstens kom til fyrrnefndr
ar sýningar í dag, var hann í
fylgd með Kuznetsov og Vladi-
mir Semjonov, varautanríkisráð-
herra. Kuznetsov gegnir nú störf-
um utanríkisráðherra á meðan
Andrei Gromyko situr Allsherj-
arþing SÞ. Carstens sagði að báð-
ir aðilar væru sammála um að
persónuleg samskipti væru æski-
leg, og kvað hann kurteisi hafa
einkennt viðræðurnar.
Carstens mun eiga viðræðu-
fund með Semjonov á mánudag
nk. áður en hann heldur heim-
leiðis.
Vantar stúlkur
Hótelið á Hornafirði vantar nu þegar eina eða
tvær stúlkur í eldhús og á herbergin.
Upplýsingar gefur hótelstjórinn